Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Qupperneq 46
Helgarblað 12.–15. júní 201538 Sport Birkir Kristinsson Eftirminnilegur leikur: Birkir átti frábæran dag þegar Ísland vann frækinn sigur á Spánverjum 2-0 á Laugardalsvelli í september mánuði árið 1991. Hann var alltaf traustur fyrir Íslenska landsliðið. Butrageno átti ekki breik í Birki þann daginn. Guðni Bergsson Eftirminnilegur leikur: Var mjög góður þegar íslenska lands- liðið gerði mikla hetjuför til gömlu Sovétríkjanna árið 1989 og náði ótrúlegu 1-1 jafntefli gegn rúss- neska birninum í Moskvu. Þarna var sovéska liðið frábært með Zavarov, Bessanov, Protosov, Rass, Dobrovolski og Aleinikov í broddi fylkingar. Eyjólfur Sverrisson Eftirminnilegur leikur: Brást aldrei íslenska landsliðinu og í raun var það stórleikur hans með ungmennalandsliðinu sem hóf hans ævintýri. Einn besti leikur Eyjólfs með landsliðinu var gegn Tékkum hér heima í frægum 3-1 sigri á Laugardalsvelli 2001. Eyjólfur kórónaði stórleik sinn með frábæru marki beint úr aukaspyrnu. Atli Eðvaldsson Eftirminnilegur leikur: Eftir að hafa skorað fimm mörk fyrir Düsseldolf (já 5 mörk) í þýsku Bundesligunni gegn Frankfurt laugardaginn 4. júní þurfti Atli að drífa sig heim og spila landsleik daginn eftir gegn Möltu. Í stað þess að mjólka fjölmiðlaathyglina í Þýskalandi í kjölfar markanna fimm spilaði Atli landsleikinn og gerði eina mark leiksins. Gylfi Sigurðsson Eftirminnilegur leikur: Gylfi hefur átt marga eftirminnilega leiki með landsliðinu. En einn sá allra flottasti var gegn bronsliði Hollands hér á Laugardalsvellinum síðasta haust. Gylfi stjórnaði leiknum og gerði bæði mörk íslenska liðsins. Ásgeir Sigurvinsson Eftirminnilegur leikur: Ásgeir er einn besti fótboltamaður Íslands frá upphafi. Hann átti sannkallaðan stórleik þegar Ísland gerði jafntefli við Wales á útivelli 2-2 árið 1991. Ásgeir gerði tvö frábær mörk í leiknum. Rúnar Kristinsson Eftirminnilegur leikur: Rúnar er leikjahæsti landsliðsmaður í sögu Íslands. Hann gat spilað bæði sem bakvörður og á miðri miðjunni. Leikurinn frægi gegn heimsmeisturum Frökkum árið 1998 líður mönnum seint úr minni. Þar var Rúnar einn allra besti leik- maður Íslands í 1-1 jafntefli. Arnór Guðjohnsen Eftirminnilegur leikur: Arnór átti marga góða landsleiki. Hann var mjög góður í jafntefli gegn Sovétmönnum hér heima og gerði mark Íslands í 1-1 jafntefli. En eftir- minnilegasti leikur var þegar hann gerði fernu í 5-1 sigri á Tyrkjum hér heima sumarið 1991. Þrjú af mörkunum fjórum gerði Arnór með kollspyrnu. Eiður Smári Guðjohnsen Eftirminnilegur leikur: Verð- andi heimsmeistarar Ítala mættu hingað til lands árið 2004 og rúm- lega 20 þúsund áhorfendur horfðu á Eið Smára leika Buffon og félaga grátt. Eiður var langbesti leikmað- urinn á vellinum og Mourinho, þá nýorðinn knattpsyrnustjóri Chelsea, var í stúkunni og fylgdist með honum. Sú frammistaða skemmdi ekkert fyrir Eiði sem var mikilvægur hlekkur í ævintýratímabili Chelsea 2004/2005. Ríkharður Jónsson Eftirminnilegur leikur: Mér finnst ég alltaf vera að hlusta á mér eldri menn segja mér frá fótboltan- um hér á árum áður. Heilu kvöldin sagði Gunnar Guðmannsson, sigursælasti leikmaður íslenska fót- boltans ásamt Sigursteini Gíslasyni, frá Ríkharði Jónssyni, markahróki Skagamanna og Fram. Efirminni- legasti leikur Ríkharðs fyrir lands- liðið var 4-3 sigur Íslands á Svíþjóð 1951. Ríkharður gerði öll mörk Íslands í leiknum sem var fyrsti innbyrðis leikur okkar við Svía. Kolbeinn Sigþórsson Eftirminnilegur leikur: Þrátt fyrir að vera aðeins 25 ára gamall þá er Kolbeinn þriðji markahæsti leikmaður Íslands frá upphafi með 16 mörk. Aðeins samherjar hans í þessu liði, þeir Eiður(25 mörk) og Ríkharður (17 mörk) hafa skorað fleiri mörk. Það var mark Kolbeins gegn erkifjendum okkar í Noregi sem tryggði umspil fyrir HM í Bras- ilíu. Einn fjölda stórleikja Kolbeins í þeirri undankeppni. Guðni Gylfi Eiður Arnór Birkir Atli Kolbeinn Rúnar Ríkharður J. Ásgeir Eyjólfur Besta lið frá upphafi M argir telja núverandi landslið vera það sterkasta sem við Íslendingar höf- um átt. Það má færa rök fyrir því að þetta lið sé það sterkasta. Við komumst í umspil fyrir síðustu heimsmeistarakeppni, náð- um okkar besta árangri á FIFA-styrk- leikalistanum og erum í góðum mál- um í undankeppni EM sem fram fer í Frakklandi eftir ár. En hvernig væri besta lið Íslands frá upphafi, blandað leikmönnum frá öllum kynslóðum? Áður en liðið er talið upp verður það að koma fram að Albert Guðmunds- son stórstjarna lék aðeins sex leiki og því erfitt að velja hann í liðið. n Hjörvars Hafliðasonar Hápressa Sex leikmenn sem gætu verið súrir Þ að eru alltaf einhverjir sem verða sárir þegar landsliðs- hópurinn er valinn í hvert skipti. Lars og Heimir eru íhaldssamir þegar kemur að því að velja hópinn og gera oftast fáar breytingar. Athygli vekur að aðeins einn leikmaður í hópn- um er fæddur 1991 eða seinna, Jón Daði Böðvarsson (f. 1992) það hlýtur að vera met því flest landslið í Evrópu eru með leikmenn úr árgöngum 91, 92, 93 og 94. En svo virð- ist sem þeir ár- gangar séu metnir slakir hér á landi. Þá vekur athygli að Lars og Heim- ir eru reiðubúnir að velja leikmenn úr tiltölulega slök- um deildum eins og frá Kína og héð- an úr Pepsi-deildinni. En auðvitað er það ánægjuefni að leikmenn hér á landi eigi möguleika. 1 Sverrir Ingi Ingason (f. 1993) Þessi 21 árs varnarmaður hefur farið hamförum í Belgíu eftir félagaskiptin frá Víking í Noregi í byrjun árs. Sverrir hlýtur að velta því fyrir sér hvers vegna í ósköp- unum hann er ekki í hópnum. Núverandi mið- verðir eru um og yfir þrítugt og Sverrir er svo sannar- lega maður framtíðarinn- ar. Einhvers staðar hef ég heyrt að honum hafi mistekist að hrífa Heimi og Lars í æfingaleikj- unum í janúar en ég trúi því ekki að þeir hafi lesi mikið í þá leiki gegn Kanada sem spilaðir voru á einhverju bílastæði í Flórída. 2 Hólmar Örn Eyjólfsson (f. 1990) Rosenborg hef- ur hreinlega ekki hætt að vinna fótboltaleiki eftir að Hólmar gekk til liðs við Þrándheimaliðið. Fengið frábæra gagnrýni í Noregi og hefur væntanlega vonast eftir því að fá kallið frá Heimi og Lars. 3 Ingvar Jónsson (f. 1989)Besti leikmaður Pepsi-deildar- innar á síðustu leiktíð hefur aðeins leikið einn deildarleik frá síðasta landsleik. En það er þó einum deildarleik meira en Ögmundur Kristinsson hefur leikið. Ögmundur lék síðast deildarleik í október á síð- asta ári en Lars og Heimir hafa meiri trú á honum en Ingvari. Guðmund- ur Þórarinsson (f. 1992) – Miðju- maðurinn metnaðarfulli ætlaði sér á meginlandið á þessu ári en endaði í smábænum Farum og leikur með Nordsjælland í Danmörku. Guðmundur hefur leikið ágætlega í Danmörku frá félagaskiptunum og gerir tilkall til landsliðssætis. 4 Arnór Ingvi Traustason (f. 1993) Njarðvíkingurinn hefur farið á kostum með spútnikliði Norrköping í Svíþjóð. Arnór gæti gefið Lars og Heimi öðruvísi valkosti í sóknarleik liðsins. En landsliðs- þjálfararnir ákváðu hins vegar að velja þrjár dæmigerðar „níur“ í liðið í stað þess að taka inn Arnór Ingva. Sóknarmaðurinn var eini íslenski leikmaðurinn sem talinn var einn af 50 bestu leikmönnum Svíþjóðar í úttekt Expressen þar í landi. 5 Hörður Björgvin Magnús-son (f. 1993) Varnarmann- inum öfluga finnst hann eflaust eiga tilkall til þess að vera í lands- liðinu. Hörður lék með Cesena í hinni firnasterku Serie A á Ítalíu en meiddist í síðasta vináttuleik Ís- lands gegn Eistum. Lék aðeins einn deildarleik eftir hann. Herði finnst eflaust hann eiga að vera í liðinu sem „back up“ í vinstri bakverði í stað Kristins Jónssonar. 6 Guðmundur Þórarinsson (f. 1992) Guðmundur ætlaði sér að spila á megin- landinu en endaði í smábænum Farum í Dan- mörku og leikur með Nordsjælland. Hefur gengið ágætlega undir stjórn Ólafs Krist- jánssonar og hefur örugglega gert sér góðar vonir um landsliðssæti. Þjálfari: Lars Lagerbäck
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.