Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Page 50
Helgarblað 12.–15. júní 201542 Menning
E
r eitthvað meira „swinging
sixties“ heldur en Tom Jones?
Já, kannski, en ekkert af því var
statt í Reykjavík í vikunni. Tom
Jones, hins vegar, var hér. Í upp-
hafi kvölds minnti viðburðurinn þó
frekar á leiksýningu, hófst stundvís-
lega á slaginu átta og gestum er vís-
að til sætis. Enginn er hér í stæði og
menn vilja komast snemma heim,
enda margir hverjir jafn gráir að sjá
og hinn 75 ára maður á sviðinu (sem
þó fær prik fyrir að lita sig ekki).
Engin klósöpp eru sýnd á tjaldinu
af stjörnunni, það myndi ekki
eiga við. Í staðinn fáum við netta
psýkadelíu á skjánum. Sir Tom er
enginn Dylan eða Lennon, hann
samdi jú ekki mikið sjálfur og var
aldrei talsmaður heillar kynslóð-
ar. En kannski einmitt þess vegna
getur hann farið um víðan völl. Og
kannski er það vegna þess að hann
átti aldrei eins og hálfs árs týnda
helgi eða kynnti Bítlana aldrei fyr-
ir hassi að rödd hans er undarlega
ósnert af hálfri öld liðinni frá því
heyrðist í honum fyrst. Sungið getur
hann enn.
Slagararnir It‘s Not Unusual,
Delilah og Sex Bomb óma, þótt því
og
Smáratorgi · Korputorgi
HUNDAFÓÐUR
FÆST HJÁ OKKUR
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Tónlist
Tom Jones í Höllinni
Karl sem elskar konur
Metsölulisti
Eymundsson
3.– 9. júní 2015
Allar bækur
1 HamingjuvegurLiza Marklund
2 Blóð í snjónumJo Nesbø
3 Tapað fundið Árelía Eydís Guðmundsdóttir
4 Auga fyrir augaRoslund & Hellström
5 Risaeðlur í ReykjavíkÆvar Þór Benediktsson
6 SkuggadrengurCarl-Johan Vallgren
7 Skutlubók VillaVilhelm Anton Jónsson
8 Iceland In a BagÝmsir
9 Breyttur heimurJón Ormur Halldórsson
10 Independent People Halldór Laxness
Lokað, búið, bless?
n Íslenski skálinn á myndlistarhátíðinni í Feneyjum enn lokaður n Enginn fær að sjá verkið sem Íslendingar greiddu fyrir
S
jaldan hefur listaverk á veg-
um Íslands vakið jafn mik-
ið umtal og athygli erlendis
og framlag Íslands til mynd-
listartvíæringsins í Fen-
eyjum í ár. Eftir einungis 13 daga
var innsetningunni Moskunni,
sem er hugarsmíð seyðfirsk-sviss-
neska listamannsins Christopher
Büchels og sýningarstjórans Nínu
Magnúsdóttur, lokað af feneysk-
um borgaryfirvöldum. Hún er enn
lokuð þremur vikum síðar. Bæði
aðstandendur verkefnisins og ís-
lenskir listsérfræðingar hafa sagt
lokunina vera aðför að tjáningar-
frelsi listamanna. Þrátt fyrir að boð
um þátttöku Íslands berist mennta-
málaráðuneytinu og þrátt fyrir að
íslenskir skattgreiðendur hafi greitt
meira en 30 milljónir til að gera
verkið að veruleika hafa íslensk
stjórnvöld ekki talið ástæður til að
beita sér í málinu.
Listaverkið
Listaverkið MOSKAN – fyrsta mosk-
an í Feneyjum, eftir Christopher
Büchel er tuttugasta og annað fram-
lag Íslands á Feneyjatvíæringinn,
þekktustu og eina virtustu mynd-
listarhátíð heims. Innsetningin felst
í byggingu mosku í afhelgaðri kirkju
í gamla bænum í Feneyjum. Inn-
setningin var unnin í samvinnu við
samfélög múslima í Feneyjum og
á Íslandi sem samþykktu að nota
hana sem samkomustað og menn-
ingarmiðstöð í þá sjö mánuði sem
hátíðin stendur yfir. Þannig átti að
skapa rými fyrir samtal þvert á trú-
arhópa.
Lokað á listina
Jafnvel áður en moskan var opn-
uð var hún orðin umdeild. Í að-
draganda opnunarinnar sagðist
lögreglan í Feneyjum telja að lista-
verkið ógnaði almannaöryggi, þar
sem hún gæti orðið skotmark bæði
íslamskra og and-íslamskra öfga-
manna. Aðstandendur verkefnisins
sátu fundi með borgaryfirvöldum
sem settu fram ýmsar kröfur sem
aðstandendur tvíæringsins studdu
og listamennirnir brugðust við – til
dæmis var hætt við að áletra „Allah
Akbar“ á framhlið kirkjunnar.
Eftir að moskan var opnuð mót-
mælti kaþólska kirkjan verk-
inu á þeim forsend-
um að byggingin hafi
ekki verið afhelguð.
Í kjölfarið sýndi KÍM
hins vegar fram á að
kirkjan hafi verið af-
helguð árið 1973 af
patríarkanum af Fen-
eyjum, Albino Luciani,
sem síðar varð páfi og
tók sér nafnið Jóhann-
es Páll I. Þetta nægði
þó ekki til og fleiri að-
finnslur birt ust frá
feneyskum stjórnvöld-
um í kjölfarið.
Yfirvöld halda því
meðal annars fram að
notkunin samræmist
ekki deiliskipulagi, þ.e.
að ekki hafi fengist tilskil- in leyfi
fyrir því að búa til stað til trúariðk-
unar. Feneysk stjórnvöld halda því
fram að hér væri um tilbeiðslu-
stað að ræða en sá sem vill koma á
slíkum stað þarf sérstakt leyfi. KÍM
heldur því hins vegar fram að hér sé
fyrst og fremst um listræna innsetn-
ingu að ræða. Ef MOSKAN er staður
til alvöru trúariðkunar er hún ólög-
leg samkvæmt deiliskipulagi hverf-
isins, en ef hún er listaverk er hún
lögleg.
Þá hafa stjórnvöld sett fram
nokkrar aðrar umkvartanir, með-
al annars að of mörgum hafi verið
hleypt inn í rýmið við opnun sýn-
ingarinnar. Samkvæmt KÍM er þetta
þó langt frá því að vera einsdæmi en
öðrum sýningarskálum sem hafa
gerst sekir um slíkt hefur ekki ver-
ið lokað.
Borgaryfirvöld hafa einn mánuð
til að leggja fram sönnunargögn í
málinu. En Nína Magnúsdótir, sýn-
ingarstjóri íslenska skálans, segir
hópinn þó einnig bíða eftir niður-
stöðum úr borgarstjórnarkosning-
um í Feneyjum, en hver tekur við
stöðu borgarstjóra telur Nína að
geti skipt höfuðmáli í deilunni.
Engin viðbrögð frá hátíðar-
höldurum
Það er mikið um pólitíska list í Fen-
eyjum í ár. Slagorð sérsýningar sem
stýrt er af listrænum stjórnanda há-
tíðarinnar, Okwui Enwezer, „All-
ar framtíðir heimsins“, býður upp
á vangaveltur um stöðuna í heim-
inum og hvert stefna skuli. Mörg
verkanna fást við möguleika listar-
innar til að hafa pólitísk áhrif: einn
aðalviðburður hátíðarinnar er þurr
og nákvæmur upplestur á þrem-
ur hlutum Auðmagnsins, höfuðrits
byltingahugsuðarins Karls Marx.
Bent hefur verið á að lesturinn sýni
á kaldhæðnislegan hátt muninn
milli hugsjóna listarinnar og raun-
veruleikans.
Þrátt fyrir þetta hefur Enwezer
á engan hátt tjáð sig um lokun ís-
lenska skálans eða lýst yfir stuðn-
ingi við moskuna, sem er líklega
eina verkið á hátíðinni sem teygir
sig út fyrir skálann og á í víxlverk-
andi samtali við umheiminn, við
raunverulegar stofnanir, lög og
hugmyndir. DV sendi fyrirspurn á
tvíæringinn þar sem óskað var eftir
viðbrögðum Enwezer vegna máls-
ins en póstinum hafði ekki verið
svarað þegar blaðið fór í prentun.