Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Side 56
Helgarblað 12.–15. júní 2015
Blint stefnumót
Í
vikunni las ég pistil þar sem því
var haldið fram að Íslendingar
færu aldrei á blind stefnumót.
Það er ekki alveg satt.
Seint á síðustu öld fékk ég
sumarvinnu í einni stærstu
byggingarvöruverslun landsins.
Ég var á lagernum og eitt af verk-
efnunum var að taka saman vör-
ur í sendingar sem fóru á aðra út-
sölustaði. Ein slík verslun var á
Selfossi. Í tölvukerfinu sem við
notuðum var afar frumstæð út-
gáfa af einhvers konar spjalli og
þannig höfðum við samskipti við
hinar búðirnar. Snapchat hefði
verið vel þegið á þessum árum,
það hefði komið í veg fyrir at-
burðarásina sem fór af stað.
Ég og vinnufélagi minn feng-
um fregnir af því að á Selfossi
sæju nokkrar stúlkur um að
panta vörurnar og þær væru
hver annarri fallegri. Ein átti víst
að hafa keppt í Ungfrú Suður-
landi. Ég vildi að ég hefði verið
þroskaðri en þetta en svo var ekki.
Meira þurfti ekki til. Hormónar
tóku völdin.
Næstu vikur fóru í endalaus-
ar skeytasendingar. Þar fékk ég að
njóta mín því að lyklaborðið hef-
ur alltaf verið vinur minn. Sendi-
bílstjórinn sem keyrði vörurnar
austur var síðan sá sem gat gef-
ið okkur félögunum upplýsingar
af vettvangi. Hvernig bröndurun-
um væri tekið og hvað væri bara
almennt að frétta. Hann var góð-
ur sögumaður, sá skratti. Fljót-
lega bárust þær fregnir að Suður-
landið væri sú sem hefði sig mest
í frammi á spjallinu. Sem þýddi
fleiri skeyti frá mér.
Þegar á leið sumarið bárust
mér þau tíðindi að uppi væru
hugmyndir um að við þyrftum að
hittast, mögulega einhvers konar
stefnumót. Skilaboðin frá bílstjór-
anum voru einfaldlega á þá leið
að Björninn væri að slá í gegn fyr-
ir austan. Aftur tóku hormónarnir
völdin. Áður en ég vissi af var búið
að bóka bíóferð næstu helgi og ég
bauðst til þess að sækja dömuna.
Á Selfoss. Hormónar brengla rök-
hugsun.
Í rauninni var öll næsta vika
ein samfelld brenglun. Ég hr-
ingdi til dæmis í bílaleigu til þess
að kanna sólarhringsverð á ein-
hverjum almennilegum kagga.
Frúarbíllinn hennar mömmu var
ekki alveg að miðla þeim ágenga
kynþokka sem ég vildi gjarnan
koma á framfæri til Suðurlands-
ins. Önnur sturlun fólst í því að
ég gerði mér för í apótek til þess
að kaupa smokka. „Þú getur ekki
farið verjulaus austur,“ sagði vin-
ur minn . Brøste hefði tárast yfir
glópslegri bjartsýninni.
Ég var nefnilega frekar seinn
til í málefnum ástarinnar og hafði
því ekki mikla reynslu af því að
vígbúast með þessum hætti. Ég
hafði einu sinni stolið smokk af
vini mínum. Forvitnari menn en
ég hefðu sennilega mátað bún-
inginn og hafist svo handa við að
millifæra handvirkt inn á reynslu-
bankann. Blessunarlega vissi ég
hins vegar að sjálfsfróun leiðir til
varanlegrar blindu.
En stóri dagurinn rann upp og
ég lagði í hann. Þetta var í fyrsta
sinn sem ég keyrði út fyrir Reykja-
vík, fyrsta ferð af fjórum yfir Hell-
isheiði þetta kvöld. Illa sáttur.
Samt fáviti.
Ég fann húsið á Selfossi, flaut-
aði létt eins og um var samið,
og beið eftir Suðurlandinu. Ég
átta mig á því núna að enginn
kvenmaður hefði getað staðist
væntingar mínar og hvað þá hin
ósköp venjulega stelpa sem gekk
út. Stelpa sem átti eitthvað betra
skilið en ósköp venjulegan lúða
eins og mig. Það var því með öllu
ósanngjarnt að svipurinn á mér í
bílstjórasætinu hafi verið eins og
FRÍKÍNG Gilitrutt hefði komið
stökkvandi út úr húsinu, organdi
af frygð, og æddi nú í loftköstum
að bílnum. Væntingastjórnun,
krakkar. Væntingastjórnun.
Næstu andartök eru sennilega
uppeldislegur hápunktur foreldra
minna. Allar taugar líkama míns
öskruðu: „ANDSKOTINN HAFI
ÞAÐ, BJÖRN, FORÐAÐU ÞÉR.
STÍGÐU Á BENSÍNGJÖFINA.“ En
ég opnaði bílhurðina brosandi.
Maður leikur sér ekki að tilfinn-
ingum annarra.
Stefnumótið sjálft er eins og
í móðu. Ég setti landsmet í rall-
íakstri frá Selfossi og að Stjörnu-
bíói og hélt uppi laufléttu spjalli
á meðan akstrinum stóð. Aðal-
lega um byggingarvörur. Ég veit
ekkert hvaða fjandans mynd við
horfðum á enda var ég upptek-
inn við að stjaksetja meinta vini
mína og vinnufélaga í huganum.
Sló landsmetið á seinni hring yfir
Hellisheiðina og kvaddi döm-
una með handabandi þegar hún
ætlaði að yfirgefa bílinn. Handa-
bandi!
Ég og Suðurlandið áttum að-
eins þetta eina kvöld saman. Ég
fékk helgina til að jafna mig og
mætti svo brosandi út að eyr-
um í vinnuna á mánudeginum.
Hernaðaráætlunin var að láta á
engu bera. Þrjótarnir áttu það
ekki skilið að sjá mig sturlast. n
Sjónvarpsdagskrá
RÚV Stöð 2 SkjárEinn Stöð 2 Sport
Föstudagur 12. júní
15.55 Ljósmóðirin (5:8) (Call
the Midwife III) e
16.50 Vinabær Danna tígurs
17.03 Jessie (14:26)
17.25 Litli prinsinn (18:18)
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Fréttir
18.20 Veðurfréttir
18.25 Ísland-Tékkland B
(Forkeppni EM karla
í fótbolta) Bein út-
sending frá leik Íslands
og Tékklands á Laugar-
dalsvelli í forkeppni
Evrópumótsins 2016 í
fótbolta.
20.25 EM stofa - saman-
tekt Samantekt frá
öllum leikjum dagsins í
forkeppni Evrópumóts
karlalandsliða í
knattspyrnu 2016.
20.50 Drekasvæðið (6:6) Ný
íslensk gamanþáttaröð.
21.20 Séra Brown (8:10)
(Father Brown II)
22.10 Einkaspæjarinn (3:3)
(Case Histories II)Bresk
sakamálaþáttaröð
byggð á sögum eftir
Kate Atkinson um fyrr-
verandi hermanninn og
lögguna Jackson Brodie
sem gerist einkaspæjari
í Edinborg.
23.40 Átök um ástina 7,5
(Scott Pilgrim vs. the
World) Sígilt ástarævin-
týri fært í gamansaman
nútímastíl. Scott Pilgrim
hefur fundið ástina en
þarf að yfirbuga sjö
fyrrverandi kærasta
stúlkunnar til að vinna
hjarta hennar. e
01.30 Útvarpsfréttir í dag-
skrárlok
Stöð 2 Sport 2
Stöð 3
07:00 NBA Final Game
(Cleveland - Golden
State: Leikur 4)
11:50 Formúla 1 2015 (Kanada)
14:05 NBA 2014/2015 - Final
Game (Cleveland -
Golden State: Leikur 4)
15:55 Undankeppni EM 2016
(Kazakhstan - Tyrkland) B
18:10 Þýsku mörkin
18:40 Undankeppni EM 2016
(Lettland - Holland) B
20:45 NBA (Shaqtin' a Fool:
Midseason)
21:10 Goðsagnir efstu deildar
21:45 Undankeppni EM 2016
(Ísland - Tékkland)
23:30 Undankeppni EM 2016
(Króatía - Ítalía)
01:10 Undankeppni EM 2016
(Kazakhstan - Tyrkland)
11:40 Premier League World
12:10 Undankeppni EM 2016
(England - Litháen)
13:50 Pepsí deildin 2015
(Víkingur - FH)
15:40 Pepsímörkin 2015
16:55 Premier League
(Arsenal - Liverpool)
18:40 Undankeppni EM
2016 (Wales - Belgía) B
20:45 Stuðningsmaðurinn
(Lúðvík Arnarson)
21:15 MD bestu leikirnir
(Inter - Arsenal - 25.11.05)
21:45 Manstu
22:35 Premier League
World 2014/
23:05 Undankeppni EM
2016 (Wales - Belgía)
00:45 Premier League
(Aston Villa - Burnley)
18:40 Cougar Town (1:13)
19:00 Junior Masterchef
Australia (11:16)
19:50 Boss (1:8)
20:50 Community (5:13)
21:15 The Lottery (10:10)
21:55 American Horror
Story: Coven (6:13)
22:40 Cougar Town (1:13)
23:00 The Listener (2:13)
23:45 Junior Masterchef
Australia (11:16)
00:35 Boss (1:8)
01:35 Community (5:13)
01:55 The Lottery (10:10)
02:35 American Horror
Story: Coven (6:13)
03:20 Tónlistarmyndbönd
frá Bravó
06:00 Pepsi MAX tónlist
08:00 Everybody Loves
Raymond (6:25)
08:20 Dr. Phil
09:00 The Talk
09:45 Pepsi MAX tónlist
13:35 Cheers (20:26)
14:00 Dr. Phil
14:40 Emily Owens M.D
15:30 Royal Pains (9:13)
16:15 Once Upon a Time
(13:22)
17:00 Eureka (6:14)
17:50 Dr. Phil
18:30 The Talk
19:10 Secret Street Crew
(1:9) Ofurdansarinn
Ashley Banjo stjórnar
þessum frumlega þætti
þar sem hann æfir
flóknar dansrútínur með
ólíklegasta fólki.
19:55 Parks & Recreation
20:15 Bachelor Pad (3:8)
21:45 XIII (3:13) Hörku-
spennandi þættir
byggðir á samnefndum
myndasögum sem fjalla
um mann sem þjáist af
alvarlegu svefnleysi og á
sér dularfulla fortíð.
22:30 Sex & the City (4:18)
Bráðskemmtileg þátta-
röð um Carrie Bradshaw
og vinkonur hennar í
New York.
22:55 Law & Order: SVU
23:40 The Affair (9:10)
Ung þjónustustúlka,
Alison, og eiginmaður
hennar Cole, berjast
við ýmis vandamál í
hjónabandinu í skugga
harmleiks.
00:30 Law & Order (5:22)
01:20 The Borgias (7:10)
02:10 Lost Girl (6:13)
03:00 XIII (3:13)
03:45 Sex & the City (4:18)
04:10 Pepsi MAX tónlist
07:00 Barnatími Stöðvar 2
08:05 The Middle (21:24)
08:30 Glee 5 (13:20)
09:15 Bold and the Beautiful
09:35 Doctors (1:175)
10:20 Last Man Standing
10:45 Life's Too Short (4:7)
11:20 Heimsókn
11:45 Save With Jamie (4:6)
12:35 Nágrannar
13:00 Last Night
14:30 Hulk vs.Wolverine
15:05 The Amazing Race
15:50 Kalli kanína og
félagar
16:10 Batman: The Brave
and the bold
16:35 Tommi og Jenni
16:55 Super Fun Night (15:17)
17:20 Bold and the Beautiful
17:40 Nágrannar
18:05 Simpson-fjölskyldan
18:30 Fréttir Stöðvar 2
18:47 Íþróttir
18:55 Ísland í dag.
19:25 Impractical Jokers
19:50 Poppsvar (3:7)
20:15 NCIS: New Orleans
21:00 Diminished Capacity
5,7 Frábær gamanmynd
frá 2008 sem segir
frá blaðamanninum
Cooper, leiknum af
Matthew Broderick,
sem fer að finna fyrir
minnisleysi.
22:35 The Host 5,9 Ósýnilegar
geimverur ráðast á
jörðina og hýsa sig í
manneskjum, taka yfir
huga þeirra og gjörðir.
00:10 Pain and Gain 6,5
Spennumynd frá 2013
með Mark Whalberg,
Dwayne Johnson og Ed
Harris í aðalhlutverkum.
02:15 Anchorman : The
Legend of Ron Burg-
undy 7,3
03:50 Submarine
05:25 Fréttir og Ísland í dag
falleg minning á fingur
www.jonogoskar.is Sími 5524910 / Laugavegi 61 / Kringlan / Smáralind
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
21
6
6
6
Giftingarhringar
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Helgarpistill „En ég opnaði bíl-
hurðina brosandi.
Maður leikur sér ekki að
tilfinningum annarra.
48 Menning Sjónvarp