Dagblaðið Vísir - DV - 12.06.2015, Side 60
Helgarblað 12.–15. júní 201552 Fólk
Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is
NÝ
TT PRENTAÐU ÞITT EIGIÐ
IPHONE 4/5 HULSTUR
Aðeins 1.690 kr. stk.
P
harrell Williams er einn sá
áhrifamesti í tónlistarbrans-
anum í Hollywood í dag.
Pharrell er 42 ára söngv-
ari, lagasmiður, rappari,
plötuframleiðandi, fatahönnuður og
dómari og þjálfari í raunveruleika-
þættinum The Voice.
Williams kvæntist konunni sinni,
fyrirsætunni og fatahönnuðin-
um Helen Lasichanh, í Frakklandi í
október 2013 en hjónin eiga einn son,
Rocket Williams, sem fæddist í nóv-
ember 2008. Lagið Rocket's Theme úr
kvikmyndinni The Despicable Me var
einmitt sungið til heiðurs Rockets.
Hélt fram hjá
Rapparinn lýsti því í spjalli hjá Opruh
Winfrey hvernig hann hafði þurft að
ganga á eftir Helen í rúm tvö ár áður
en hún gaf sig. „Hún svaraði næst-
um aldrei skilaboðunum mínum. Ég
átti alla þessa peninga og þetta frá-
bæra tengslanet og hélt því að ég
gæti fengið hvaða konu sem var. En
hún hafði engan áhuga og átti auk
þess kærasta,“ sagði Pharrell í við-
tali við Opruh og bætti við að hann
hefði breyst eftir að Helen kom inn
í hans líf. „Ég hafði haldið fram hjá
kærustunum mínum hægri vinstri en
þegar ég kynntist Helen breyttist allt.
Ég beið eftir henni í tvö og hálft ár.
Við gátum bara verið vinir þar til hún
ákvað að hætta með kærastanum sín-
um. Hún var langt frá því að heillast af
mér við fyrstu sýn.“ n
Konan
breytti
öllu
Pharrell hélt að hann gæti fengið hvaða konu sem er
Lágvaxinn Eiginkonan er töluvert hærri
en tónlistarmaðurinn.
Hatturinn frægi Pharrell notar oft þenn-
an stóra hatt til að virka hærri en hann er.
Feðgar Pharrell og Helen eiga einn son,
Rocket, sem er sjö ára í dag.
Tískufyrirmyndir Helen þykir ekki síður
flott í tauinu en eiginmaðurinn. Hún velur
þægindin fram yfir glamúr og blandar
saman götutísku við hátískumerkin.
Vinsæll Einhvern veginn virðist allt verða
að gulli sem Pharrell kemur að.
Brúðkaupsdressið Helen klæddist
efnismiklum kjól á brúðkaupsdaginn.
Sjónvarpsstjarna Pharrell hefur unnið hug og hjörtu áhorfenda og þátttakenda í The
Voice.