Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 2
2 Fréttir Helgarblað 25.–29. júní 2015
Sársauki minnkar strax
• Kaldur gelsvampur & gel
• Lækkar hita í brunasárum um 6-7 °C
• Gelsvampur helst vel á, dettur ekki af
• Tea Tree & Lavender
- sótthreinsar, róar & deyfir
• Sterílar umbúðir
Virkar á sviða og sársauka af:
sólbruna - skordýrabiti
brenninettlum - húðflúrum
laser og núningsbruna
Fæst í apótekum.
Celsus ehf. www.celsus.is
AbsorBurn®
Kælir brunasár, hratt og lengi
Telja hvali á
Atlantshafi
Gísli Víkingsson, hvalasérfræðing-
ur hjá Hafró, stýrir hvalatalningu
sem nú fer fram á Norður-Atlants-
hafi. Hvalir eru taldir í fyrsta sinn
í átta ár en markmiðið er að meta
stofnstærðir helstu hvalategunda
við landið. Morgunblaðið grein-
ir frá þessu en rannsóknarskip-
in Árni Friðriksson og Bjarni
Sæmundsson eru notuð við taln-
inguna. Talið verður fram í ágúst-
mánuð. Að verkefninu standa
einnig Færeyingar, Norðmenn og
Grænlendingar en leitin er skipu-
lögð af Norður-Atlantshafssjáv-
arspendýraráðinu, NAMMCO.
Verk efnið fékk 150 milljóna króna
framlag úr ríkissjóði.
Hafa ekki
dregið til baka
uppsagnir
Að sögn Önnu Sigrúnar Baldurs-
dóttur, aðstoðarmanns forstjóra
Landspítalans, hafði enginn
hjúkrunarfræðingur dregið
uppsögn sína til baka á miðviku-
dag. Á undanförnum vikum hafa
rúmlega 180 hjúkrunarfræðingar
sagt upp störfum í tengslum við
kjaradeilur við ríkið. Á þriðju-
dagskvöld skrifuðu hjúkrunar-
fræðingar undir samning sem
hljóðar upp á 18,6% launahækk-
un. Er sá samningur í takt við það
sem ríkið hafði boðið áður, en
Ólafur G. Skúlason, formaður
Félags hjúkrunarfræðinga, sagði
við fjölmiðla í kjölfar undirritun-
arinnar að rétt væri að láta
hjúkrunarfræðingar greiða
atkvæði um samning núna
fremur en að bíða úrskurðar
gerðardóms.
Tíu ára áætlun
vegna Dynjanda
Áætlun um að efla verndun á svæðinu
U
mhverfisstofnun hefur í sam-
starfi við landeigendur RARIK
og Ísafjarðabæ lokið vinnu
við gerð verndar- og stjórnun-
aráætlunar fyrir náttúruvættið Dynj-
anda.
Áætlunin er gerð til 10 ára ásamt
aðgerðaráætlun til næstu fimm ára,
að því er kemur fram á vef Umhverfis-
stofnunar. Markmið með áætlun-
inni er að efla verndun á svæðinu og
viðhalda verndargildi náttúruvættisins.
Fjöldi ferðamanna sem koma á Dynj-
anda hefur margfaldast á undanförn-
um árum og er nú svo komið að innvið-
ir á svæðinu eru ekki nægir til að taka á
móti fólkinu.
„Búist er við því að að aukinn fjöldi
gesta heimsæki svæðið á næstu árum,
ekki síst með bættu aðgengi. Gæta þarf
að þolmörkum svæðisins, stuðla að
því að heimsóknir dreifist yfir lengra
tímabil en nú er og að ferðaþjónusta
þar sé sjálfbær og valdi ekki röskun eða
óþarfa álagi á lífríki svæðisins,“ segir í
skýrslu Umhverfisstofnunar.
Dynjandi er á appelsínugulum lista
sem þýðir að svæðið er undir töluverðu
álagi og við því þarf að bregðast. Í ár
stendur til að fara í miklar framkvæmd-
ir á Dynjanda þar sem m.a. verður farið
í uppbyggingu og viðhald á göngustíg-
um, endurnýjun og fjölgun á upplýs-
inga- og fræðsluskiltum, auk þess sem
aðstaða verður bætt á bílastæði bæði
fyrir einkabíla og rútur. n freyr@dv.is
Sumargjöf ÁTVR
kostaði 13 milljónir
n Starfsfólk fékk 60 þúsund króna göngubuxur n Fengu skó og flíspeysu í fyrra
A
llir starfsmenn ÁTVR fengu
göngubuxur að verðmæti
um 60 þúsund króna í sum-
argjöf frá fyrirtækinu í byrj-
un júní. Samkvæmt upp-
lýsingum DV fékk ríkisfyrirtækið
magnafslátt af buxunum og greiddi
rúmar 35 þúsund krónur fyrir stykk-
ið. Sumargjöfin kostaði ÁTVR því
rúmar þrettán milljónir króna en
fyrirtækið greiddi álíka mikið fyrir
gönguskó og flíspeysur sem það gaf
starfsfólki sínu í maí í fyrra.
Tvisvar fengið buxur
Göngubuxurnar, sem eru framleidd-
ar af þýska íþróttavöruframleiðand-
anum Löffler og eru ætlaðar báðum
kynjum, voru keyptar í Fjallakofan-
um. Allir 380 starfsmenn ÁTVR fengu
gjöfina, bæði fastráðnir sem og aðrir
í hlutastörfum, en þeir fengu einnig
útivistabuxur merktar ríkisfyrirtæk-
inu í sumargjöf fyrir tveimur árum.
Skórnir sem starfsmennirnir
fengu í fyrra voru einnig keyptir í
Fjallakofanum en flíspeysurnar hjá
Cintamani. DV fjallaði um þá sumar-
gjöf í maí í fyrra og kom þá fram að
góður árangur í rekstri og mælingu
Íslensku ánægjuvogarinnar, þar
sem Vínbúðin mældist með hæstu
einkunn, hefði verið tilefni hennar.
Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðar-
forstjóri ÁTVR, sagði þá að starfsfólk
fyrirtækisins hefði áður fengið sum-
argjafir sem tengjast útivist og hvatn-
ingu til heilsueflingar. Kom þá fram
að kostnaður við gönguskóna og flís-
peysurnar hefði numið 36 þúsund
krónum á starfsmann og heildar-
kostnaður ÁTVR því 13.680.000
krónur miðað við 380 starfsmenn.
Ekki náðist í Sigrúnu eða Ívar J. Arn-
dal, forstjóra ÁTVR, við vinnslu frétt-
arinnar.
Árangrinum fagnað í vor
ÁTVR fagnaði einnig góðum árangri
í Íslensku ánægjuvoginni, könnun
Samtaka iðnaðarins, Stjórnvísis og
Capacent Callup á ánægju viðskipta-
vina íslenskra fyrirtækja, síðastliðið
vor þegar starfsfólkinu var boðið að
skipuleggja sameiginlegan viðburð
fyrir sína starfsstöð. Í frétt Morgun-
blaðsins um málið kom fram að
flestir hafi ákveðið að borða saman
en að einnig hafi verið skipulagð-
ar ferðir í leik-
hús, bíó og
keilu. Miðað var
við að kostnaður
væri ekki hærri
en átta þúsund
krónur á hvern þátt takanda
og var kostnaður ÁTVR vegna þessa á
bilinu 1,2 til 1,4 milljónir króna. Rík-
isfyrirtækið hefur að auki haldið árs-
hátíðir og jólaböll síðustu ár, í sam-
starfi við starfsmannafélag ÁTVR, en
einnig Sumarsprell ÁTVR sem er fjöl-
skylduhátíð þar sem meðal annars er
boðið upp á blöðrur, andlitsmálun og
hoppukastala fyrir börn.
Rekstur ÁTVR gekk vel í fyrra,
eins og síðustu ár, en hagnaður ríkis-
fyrirtækisins nam þá 1.287 millj-
ónum króna samanborið við 1.304
milljónir árið 2013. Fyrirtækið veltir
árlega tæpum 30 milljörðum króna
og rennur hagnaður þess óskiptur til
ríkisins. Rekstrartekjur fyrirtækisins,
sem fást með sölu á áfengi og tóbaki,
námu 28 milljörðum króna. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, segir í
nýbirtri ársskýrslu fyrirtækisins fyrir árið
2014, að síðastliðinn vetur hafi verið
starfsfólki hans erfiður. Tíðarfarið hafi
verið með „eindæmum leiðinlegt“ og
neikvæð umfjöllun um ríkisstarfsmenn
áberandi í fjölmiðlum.
„Upplifunin var þannig að ríkisstarfs-
menn eiga helst að vera andlitslaus
grár skari á lágum launum sem ekki má
umbuna fyrir vel unnin störf og hvað þá
fara á námskeið eða fá fræðslu til að efla
sig í starfi. Auðvitað er samt ætlast til að
þeir skili óaðfinnanlegu vinnuframlagi,“
segir Ívar í ársskýrslunni.
Þar lýsir Ívar einnig þungum áhyggjum
starfsfólksins af frumvarpi um afnám
einkaleyfis ÁTVR á smásölu áfengis sem
gæti haft í för með sér að fyrirtækið yrði
lagt niður og starfsfólki hennar sagt upp.
Veturinn erfiður
Ríkið Um 380 starfsmenn
ÁTVR fengu svartar Löffler-
göngubuxur í sumargjöf.
Mynd SiGTRyGGuR ARi
Aðstoðarforstjóri ÁTVR Sigrún Ósk
Sigurðardóttir sagði í samtali við DV í fyrra
að ÁTVR hefði greitt samtals 13,7 milljónir
króna fyrir sumargjöfina það árið.