Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 4
Helgarblað 25.–29. júní 20154 Fréttir JEPPADEKK Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð og endingargóð vetrardekk sem koma þér örugglega hvert á land sem er Viltu mála Laugaveginn? Síðasta sumar var hluti Lauga­ vegarins málaður, sá hluti sem er skilgreindur sem sumargata og er því aðeins fyrir gangandi vegfar­ endur. Verkefnið vakti mikla lukku og á nú að endurtaka leikinn og mála þann hluta Laugavegar sem er göngugata. Allir sem hafa áhuga geta tekið þátt. Laugavegurinn verður málaður frá horni Vatnsstígs að gatnamót­ um Ingólfsstrætis. Vinnan hefst kl. 11.00 föstudaginn 26. júní. Þeir sem eiga rúllur og pensla eru beðnir um að taka þá með, en einhver verkfæri verða á staðnum. Ekki verður málað á gangstéttir svo umferð gangandi og hjólandi vegfarenda ætti að ganga greið­ lega fyrir sig. Keyrði utan í dreng á hjóli Í síðustu viku slösuðust fimm vegfarendur í fimm umferðar­ slysum á höfuðborgarsvæðinu. Þriðjudaginn 16. júní var bif­ reið ekið utan í dreng á reiðhjóli. Óhappið varð við hraðahindrun í Stjörnugróf við Víkingsheimilið. Drengurinn leitaði aðhlynningar á slysadeild. Þann 17. júní féll reiðhjóla­ maður fram fyrir sig þar sem hann hjólaði eftir slóða í Lækjar­ botnalandi. Hann var fluttur á slysadeild. Að kvöldi fimmtudagsins 18. júní féll maður af bifhjóli í Lækj­ argötu í Reykjavík þegar bifreið var beygt áleiðis í veg fyrir hjólið. Hann leitaði sér sjálfur aðhlynn­ ingar á slysadeild. Föstudaginn 19. júní rann reiðhjólamaður á malarkafla á göngustíg við Kársnesbraut 85 og féll af hjólinu, hann var fluttur á slysadeild. Laugardaginn 20. júní féll kona af reiðhjóli á Korputorgi og var í kjölfarið flutt á slysadeild. Ótrúlegt að ekki hafi orðið alvarlegri slys n Átta slösuðust á Bíladögum n Sérfræðingur segir leiðbeiningar rangar Á tta manns slösuðust við að láta sig falla á loftdýnu úr skæralyftu á Bíladögum á Akur eyri um síðustu helgi. Meðal annars fótbrotnuðu tveir. Skæralyftan var í 12 metra hæð frá jörðu sem þýðir að hreint fall á dýnuna var 8–9 metrar. Málið er nú í rannsókn hjá Heil­ brigðiseftirliti Norðurlands og Vinnueftirlitinu samkvæmt frétt en þessir aðilar gera úttekt á búnaðin­ um. Dýnan er með svokallaða CE vottun og uppfyllir því evrópska ör­ yggisstaðla. Samkvæmt áliti sér­ fræðings um falláhættu er öryggis­ vottunin marklaus því slysahættan skapist af lofthæðinni og litlum lendingarfleti. Íþróttaferill listhlaupara á skautum í hættu Meðal þeirra sem slösuðust á dýn­ unni var Elísabet Sævarsdóttir, 16 ára landsliðskona í listhlaupi á skautum. „Þetta þýðir því 400 þúsund króna tjón fyrir okkar, því hún var á leiðinni í æfingabúðir í Tékklandi – en það sem verra er þá gæti allur íþrótta­ ferillinn verið í hættu. Ég var búin að banna henni að fara en miðað við hennar dæmi virðist fólk ekki hafa verið spurt um aldur. Hún er bara 16 ára og ekki sjálfráða. Þegar hún kom upp í lyftuna spurði hún starfs­ manninn: „Er þetta öruggt?“ Hann sagði „Já, stökktu bara.“ Þegar við töluðum við þá eftir slysið sögðu þeir hins vegar að þeir segðu alltaf öllum að stökkva í fósturstellingunni því það væri það eina örugga. En enginn sagði henni að stökkva í fósturstell­ ingu,“ segir móðir Elísabetar, Inga Randversdóttir. Samkvæmt heimildum DV er alrangt að rétt sé að stökkva í fóstur­ stellingu á dýnuna heldur þykir best að lenda á bakinu og skapa þannig sem stærstan lendingarflöt og lág­ marka þar með höggið. Þórunn Anna Arnbjörnsdóttir, 21 árs tveggja barna móðir, sleit vöðva í annarri öxl, tognaði á öðrum fæti við ökkla og rist og marðist illa á öðru hné við að lenda á dýnunni. Hún segir að dýnan hafi verið afar hörð viðkomu við fallið og logandi sárs­ auki farið um líkamann. Álit sérfræðings: Öryggis­ vottun dýnunnar marklaus vegna lofthæðarinnar Sindri Viborg, yfirþjálfari hjá Gerplu og yfirþjálfari Parkour á Akranesi, er sérfræðingur í stökkum og fall­ áhættu. Hann hefur meðal annars lært háföll hjá þekktum áhættuleik­ ara í Þýskalandi. Sindri segist furða sig á því að ekki hafi orðið enn verri slys á fólki, ekki síst eftir að hafa skoðað kynningarmyndband frá eigendum dýnunnar á Youtube og séð þar hvernig fólk ber sig að við stökkin: „Ef þú ert með tíu kílóa kodda og tíu kílóa nál og leggur koddann ofan á brjóstkassann á þér þá meiðirðu þig ekki neitt, en ef ég set 10 kílóa nál á þig með oddinn niður, þá fer hún í gegnum þig. Punkturinn er að þegar krakkarnir eru að hoppa, meira að segja í þessu kynningarmyndbandi, þá eru þeir að lenda á fótunum. Jafn­ vel þó að dýnan gefi eftir einn metra – þá ertu samt að falla þarna niður eftir átta metra, þú ert að falla rúma 12 metra á sekúndu. Höggþunginn á ökklann er það mikill að það er bara mesta furða að einstaklingar skuli ekki hafa slasast meira.“ Sindri segir að öryggisvottun dýnunnar breyti engu um hættuna: „CE vottunin segir bara að dýnan sjálf, efnið, dælur, festibúnaður og svoleiðis sé öruggt.“ Hann leggur áherslu á að fallþunginn og lítill lendingarflötur séu það sem skapi slysahættuna: „Líkurnar á tjóni miðað við þau stökk sem eru sýnd í myndbandinu eru verulegar enda var aðeins einn einstaklingur í myndbandinu sem hoppaði næstum því rétt.“ n Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Bíladagar Á myndinni sést dýnan, en Sindri segir að öryggisvottun dýnunnar breyti engu um hættuna. Íþróttaferillinn í hættu Meðal þeirra sem slösuðust á dýnunni var Elísabet Sæv- arsdóttir, 16 ára landsliðskona í listhlaupi á skautum. Sérfræðingur Sindri Viborg, yfirþjálfari hjá Gerplu og yfirþjálfari Parkour á Akranesi, er sérfræðingur í stökkum og falláhættu. BBC mætir á Furðuleikana Taka upp efni fyrir sjónvarpsþáttinn All Over The Place S tarfsfólk breska ríkissjón­ varpsins, BBC, ætlar að taka upp efni fyrir þáttinn All Over The Place á hinum árlegu Furðuleikum á sunnudaginn. Leikarnir eru lokahnykkur bæjar hátíðarinnar Hamingjudagar á Hólmavík og er þetta í 12. sinn sem þeir eru haldnir. Ester Sigfúsdóttir, fram­ kvæmdastjóri Sauðfjársetursins á Ströndum, sem heldur Furðuleik­ ana, segir að tveir keppendur komi frá BBC. Þeir hafi ferðast út um allan heim og tekið þátt í furðulegum greinum og nú er röðin komin að Ís­ landi. Með þeim í för verður mynda­ tökufólk. „Þetta verður öðruvísi en síðustu ár og mjög spennandi,“ segir Laufey og hvetur almenning til að láta sjá sig. Á síðasta ári tóku um 200 manns þátt og skemmtu sér vel. Ókeypis er að taka þátt og þarf fólk ekki að skrá sig áður en það mætir á staðinn. Furðuleikarnir fara fram á Sævangsvelli við Steingrímsfjörð. Keppt er í ýmsum óvenjulegum íþróttagreinum, þar á meðal öskur­ keppni, kvennahlaupi þar sem karl­ ar hlaupa með konur sínar á bak­ inu, ruslatínslu, stígvélakasti og farsímakasti. Í síðastnefndu grein­ inni er snjallsími í verðlaun, að því er kemur fram á vefsíðu Stranda­ byggðar. n freyr@dv.is Öskurkeppni Leikarnir fara fram árlega á Sævangsvelli við Steingrímsfjörð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.