Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Side 13
Fréttir 13
hluti Straums, eins og greint var frá í
DV þann 9. janúar á þessu ári. Ekki
reyndist stuðningur á meðal allra
hluthafa Straums við tilboðið enda
þótt Finnur Reyr, stjórnarformað-
ur Straums, hafi átt frumkvæði að
því að fara þess á leit við MP banka
að gert yrði kauptilboð í fjárfestinga-
bankann. Í svari sínu til MP banka,
sem barst 7. janúar, kom ekki fram
gagntilboð en bankinn sagðist engu
að síður áfram vilja kanna hvort
forsendur væru fyrir sameiningu fé-
laganna. Gerði tilboðið ráð fyrir því
að bankarnir yrðu metnir á nánast
sama gengi miðað við bókfært eigið
fé þeirra og ekki var ágreiningur um
skiptihlutföll við mögulega samein-
ingu bankanna.
Brotthvarf lykilstarfsmanna
Samkomulag náðist hins vegar
nokkrum vikum síðar um helstu skil-
mála samruna félaganna og gerðu
þeir þá meðal annars ráð fyrir því
að sameinaður banki yrði skipað-
ur tveimur forstjórum – Jakobi Ás-
mundssyni og Sigurði Atla Jóns-
syni. Þau áform urðu síðan að engu
þegar tilkynnt var um það í síðustu
viku að samkomulag hefði náðst um
að Jakob, sem á 8,4% hlut í bank-
anum, myndi hætta sem forstjóri
Straums. Fram kom í fréttatilkynn-
ingu að samkomulagið hafi verið
gert að beiðni Jakobs en hann sagðist
þar frá upphafi hafa talið „það betra
að hafa einn forstjóra í stafni bank-
ans en tvo.“ Á meðal sumra hluthafa
félaganna, einkum hjá stórum hlut-
höfum MP banka, hafði það ekki
verið neitt launungarmál að þeir
töldu afar óheppilegt að sameinaður
banki myndi hafa yfir að ráða tveim-
ur forstjórum. Þannig námu greiðsl-
ur vegna launa og hlunninda til for-
stjóra MP banka og Straums á öllu
árinu 2014 samtals um 90 milljónum
króna.
Á sama tíma og stjórnir bankanna
voru að ná samkomulagi um samein-
ingu hættu tveir af lykilstarfsmönn-
um Straums í markaðsviðskiptum
störfum hjá bankanum – þeir Harald-
ur I. Þórðarson, framkvæmdastjóri
markaðsviðskipta, og Steingrímur
Arnar Finnsson. Fjórum vikum síðar
sögðu upp störfum tveir starfsmenn
í markaðsviðskiptum til viðbótar.
Ástæða uppsagnanna, eins og áður
hefur verið greint frá í DV, tengdist
einkum ósætti í garð Jakobs og þeirri
stefnu sem hefði verið mörkuð með
samrunanum við MP banka. Brott-
hvarf þeirra var óneitanlega mik-
il blóðtaka fyrir Straum – og veikti
einnig nokkuð stöðu Jakobs í sam-
runaferlinu – en markaðsviðskipti
bankans höfðu verið langsamlega
stærsti tekjupóstur Straums. Síðar á
árinu stofnuðu þessir sömu starfs-
menn, ásamt Sigurbirni Þorkelssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá
Lehman Brothers, verðbréfafyrirtæk-
ið Fossar markaðir.
Ný stjórn kjörin eftir helgi
Á fyrsta hluthafafundi sameinaðs fé-
lags, sem verður haldinn næstkom-
andi mánudag, verður kjörin ný
stjórn bankans. Gert er ráð fyrir því
að hún verði skipuð sjö manns og
að Þorsteinn Pálsson verði stjórn-
arformaður og Finnur Reyr Stefáns-
son varaformaður stjórnar. Þá stend-
ur einnig til að upplýsa um hverjir
muni skipa framkvæmdastjórn sam-
einaðs banka en samkvæmt heim-
ildum DV er meðal annars ljóst að
Bjarni Eyvinds Þrastarson verður
framkvæmdastjóri markaðsviðskipta
og Sigurður Hannesson yfir eigna-
stýringu en sameinað félag mun vera
með yfir 200 milljarða króna í stýr-
ingu. Báðir koma þeir frá MP banka.
Óvíst er hvort Leó Hauksson, sem
núna er framkvæmdastjóri fyrir-
tækjaráðgjafar Straums, eigi að stýra
fyrirtækjaráðgjöf sameinaðs félags,
eins og áætlanir höfðu áður gert ráð
fyrir. Þá hafa einnig verið uppi hug-
myndir um að Þorlákur Runólfsson,
sem tók við sem framkvæmdastjóri
markaðsviðskipta Straums í mars
síðastliðnum, muni verða yfir einka-
bankaþjónustu í hinum nýja sam-
einaða banka. Þorlákur var áður for-
stöðumaður einkabankaþjónustu
Kaupþings en frá 2009 til 2015 starf-
aði hann hjá Banque Havilland, áður
Kaupþing í Lúxemborg.
Höfuðstöðvar bankans verða í
Borgartúni 25, þar sem Straumur er
núna til húsa, og verður bankanum
gefið nýtt nafn sem kynna á innan
tíðar. n
Helgarblað 25.–29. júní 2015
Gleraugnaverslunin Eyesland
5. hæð Glæsibæ www.eyesland.is S: 577-1015
Létt og þægileg í veiðina
Veiðigleraugu með og án styrktarglugga
Kíktu við og mátaðu!
Bankasamruni ári eftir að þreifingar hófust
sameiningu ári eftir að óformlegar viðræður hófust n Hættu við að hafa tvo forstjóra
Líklegir stjórnendur sameinaðs banka
Þorsteinn Pálsson
stjórnarformaður
Thomas Skov
Jensen
Áhættustýring
Finnur Reyr Stefánsson
varaformaður stjórnar
Sigurður Atli Jónsson
forstjóri
Sigurður
Hannesson
Eignastýring
Bjarni Eyvinds
Þrastarson
Markaðsviðskipti
Ásgeir Helgi
Reykfjörð Gylfason
Fyrirtækjasvið
Magnús Ingi
Einarsson
Fjármál
Sigþór Jónsson
Sérhæfðar
fjárfestingar
Töldu samruna geta
sparað 666 milljónir
Hluthafar bankanna horfa til þess að hægt
verði að ná fram verulegri hagræðingu
með samruna félaganna en fram kom í
fjárfestakynningu sem Straumur gerði í
október á síðasta ári að áætlanir gerðu
ráð fyrir því að rekstarkostnaðar myndi
lækka um 666 milljónir króna. Þegar slíkri
kostnaðarsamlegð yrði náð – eftir 6 til 12
mánuði – þá myndi hagnaður sameinaðs
félags verða yfir 1.200 milljónir króna og
ávöxtun á eigið fé gæti aukist um allt að 10
prósentur. Á síðasta ári högnuðust bank-
arnir samtals um 560 milljónir króna eftir
skatta.
Í fjárfestakynningunni, sem ber heitið
Project Snæfellsjökull og DV hefur undir
höndum, segir að „veruleg samlegðaráhrif“ myndu nást með mögulegri
sameiningu Straums og MP banka. Þar ræður mestu fækkun starfsmanna
en gert er ráð fyrir því að þeim fækki um 23 talsins, sem samsvarar 21%
af heildarstarfsmannafjölda sameinaðs félags, og að stöðugildin verði
samtals 87. Þær áætlanir miðuðu við stöðu félaganna um mitt síðasta ár
en í árslok 2014 störfuðu 108 manns hjá bönkunum. Ljóst er stjórnendur
munu einkum horfa til þess að vinda ofan af viðskiptabankastarfseminni
en MP banki hefur á undanförnum misserum markvisst reynt að fækka
smærri viðskiptavinum sínum.
Samkvæmt Project Snæfellsjökull er markmiðið með samruna MP
banka og Straums að koma á fót leiðandi fjárfestingabanka á Íslandi.
Arðsemismarkmið sameinaðs félags yrði 15-20% ávöxtun eiginfjár og í
kynningunni er sérstaklega bent á að „gríðarlegir möguleikar“ séu fólgnir
í einskiptishagnaði vegna skatteignar Straums fjárfestingabanka að fjár-
hæð 153 milljarðar króna. „Sameinaður banki mun ekki þurfa að greiða
tekjuskatt fram til 2019 og jafnvel lengur,“ segir í kynningunni. Skatteign
Straums kemur til vegna starfsemi Straums Burðaráss fjárfestingabanka
sem fór í greiðslustöðvun í mars 2009 og lauk síðar með nauðasamning-
um 2011.