Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 18
18 Fréttir Helgarblað 25.–29. júní 2015 Vorveiðin þokkaleg n Vitað um þrjá tuttugu pundara n Smálaxinn farinn að veiðast L axveiðisumar er að hefjast. Í mörgum ám er veiði þegar hafin, en árnar á Norðvestur­ landi eru nú opnaðar hver á fætur annarri. Mikill snjór á hálendinu gerir að verkum að margar ár eru vatnsmiklar og kald­ ar. Þrír tuttugu pundarar á fyrstu vikum veiðitímans fá menn til verða bjartsýnir á stórlaxinn. Smá­ laxinn lítur vel út og er byrjaður að láta sjá sig. Í Norðurá er veiðin komin í um 130 fiska og eru fiskar að veið­ ast frá Glanna og niður úr. Mik­ ið líf er í Stekknum og ljóst að fisk­ ur er að ganga. Þannig lofar staðan í Norðurá góðu um framhaldið. Í Miðfjarðará byrjuðu menn að veiða viku fyrr en undanfarin ár. Rafn Alfreðsson leigutaki sagði í sam­ tali við DV í gær að vorveiðin væri þokkaleg. „Við erum búnir að landa nokkrum smálöxum og þeir eru virkilega flottir og í góðu standi.“ Fyrsti stórlax sumarsins kom á land úr Miðfjarðará í síðustu viku og vó hann 11,5 kíló og mældist 102 sentimetrar. Breskur veiðimaður setti í fiskinn í Grjóthyl á fluguna Kolskegg. Stefán Kristjánsson, eig­ andi verslunarinnar Kröflu, hann­ aði fluguna Kolskegg og á hann ekki langt að sækja það en faðir hans var landsþekktur hönnuður og fluguhnýtari, Kristján Gíslason. Fleiri tuttugu pundarar Sagt hefur verið frá fleiri metfiskum. Þannig veiddist tuttugu punda fisk­ ur á Árbótarsvæðinu í Laxá í Aðaldal og er góðs viti að efri svæði árinn­ ar séu farin að skila fiski. Vefmið­ illinn votnogveidi.is greindi frá því að Sverrir Þór Skaftason hefði veitt fiskinn í Höskuldarvík. Sverrir var á urriðaveiðum og með tíu punda taum og stöng fyrir línu fimm. Tók baráttan um klukkustund og land­ aði Sverrir 102 sentimetra laxi. Mik­ ið líf er neðan við Æðarfossa og hef­ ur veiði þar verið ágæt. Þriðji stórlaxinn sem upplýst hefur verið um veiddist í Vatns­ dalsá í vikunni. Sá náði reynd­ ar ekki 100 sentimetra markinu en var vigtaður; 10,5 kíló. Björn K. Rúnarsson, leiðsögumaður í Vatns­ dalsá, veiddi laxinn í Forsetahyl og tók hann fluguna Frigga. Björn seg­ ir mikið vatn í ánni og mikla snjó­ bráð. „Þetta er svona vorveiði eins og maður man eftir. Vatnið grátt og kalt og því erfitt að átta sig hversu mikið af fiski er gengið.“ n Eggert Skúlason eggert@dv.is Tuttugu pundari Björn K. Rúnars- son með stórlaxinn sem tók Frigga í Forsetahyl. 97 sentimetrar en vó 10,5 kíló. Ummál 52 sentimetrar. Glæsilegt eintak Hann er fallegur vorlaxinn. Þessi mældist 86 sentimetrar og tók Collie dog- flottúpu í Fleðu í Miðfjarðará. „Vatnið grátt og kalt og því erfitt að átta sig hversu mikið af fiski er gengið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.