Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Síða 28
Helgarblað 25.–29. júní 201528 Umræða Í síðustu viku var fjallað um til- komu unglingatískunnar og Karnabæjar ævintýri Guðlaugs Bergmanns. Hér verður Guð- laugur enn til umfjöllunar en árið 1967 stóð hann fyrir Hátíð ungu kyn- slóðarinnar. Þar var valin stúlka sem „fulltrúi ungu kynslóðarinnar“ og „hljómsveit ungu kynslóðarinnar“. Þessi hátíð var samstarfsverkefni Karnabæjar og Vikunnar. Frekar dauft var yfir fegurðarsamkeppni Ís- lands á þessum tíma og var hin nýja keppni hugsuð sem mótvægi við hana. Hér skyldi meira lagt upp úr persónuleika stúlknanna, hvernig þær töluðu, hvaða hæfileika þær hefðu og þess háttar. Verðlaunin voru að komast á vandaðan tungumála- skóla í Bretlandi. „Bara enn eitt bisnessbragðið“ Því var haldið fram að þarna væri bara „einn eitt bisnessbragðið hjá Gulla Bergmann“. Um það fórust honum svo orð: „Reyndar er ég þeirr- ar skoðunar að vel heppnað bisness- bragð sé þannig að á því hagnist bæði viðkomandi og þjóðin samtím- is. Þess vegna á frelsi einstaklinganna að vera í því fólgið að gefa mönn- um möguleika á að skapa og búa til eitthvað sem gagnist þeim sjálfum og heildinni. Annað mál er að gefa mönnum eða fyrirtækjum óheft- ar hendur til að draga til sín fjár- magn og völd á kostnað annarra.“ Hljómsveitar keppnin var nýstárleg, en Guðlaugur fékk mann frá Apple- fyrirtæki Bítlanna til að koma hing- að til lands til að hlusta á íslenska poppið og dæma um gæði þess. Um líkt leyti gerðist Guðlaugur umboðs- maður Trúbrots/Hljóma erlendis, sem þá kölluðu sig Thor's Hammer. Ekki tókst þó að gera Thor's Hammer heimsfræga frekar en aðrar íslenskar hljómsveitir þess tíma. Hátíðin fór fram á tveimur kvöldum. Árið 1968 var keppnin haldin í Austurbæjarbíói og voru ýmis tónlistaratriði flutt, þar á meðal söng María Baldursdóttir með Hljómum og stúlkurnar úr keppninni árið áður sýndu fatnað úr Karnabæ. Þá sagði frá því í auglýsingu að með- al dagskráratriða yrði „Hárgreiðslu „show““ sem væri „ótrúleg sýning“. Hljómsveitirnar sem öttu kappi voru Hljómar, Flowers og Óðmenn. Barnaverndarnefnd skerst í leikinn Þetta sama ár reyndu barnaverndar- nefnd og lögregla að koma í veg fyrir hátíðina. Formaður nefndarinnar, Sigurlaug Bjarnadóttir, hafði ritað langar greinar í blöðin þar sem hún fann bítlagarginu, síða hárinu og annarri unglingamenningu flest til foráttu. Að mati barnaverndarnefnd- ar var hér um að ræða varasama skemmtun, öskrað og gargað væri á börnin sem yrðu gersamlega tryllt. Lögregla og barnaverndarnefnd vöktuðu alla innganga keppninnar þetta ár, sem varð til þess að keppn- inni seinkaði. Kynnirinn, Svavar Gests, bað gestina afsökunar á töfun- um sem væri til kominn vegna þess að lögregla og barnaverndarnefnd væri að skipta sér af hlutum sem þeim kæmi ekkert við. Salurinn tók undir með Svavari og baulaði á yfir- völdin. Fulltrúar barnaverndarnefndar og lögreglu æstust verulega við Svavar baksviðs í kjölfarið, steyttu hnefann og viðhöfðu hótanir á borð við: „Þú skalt verða dreginn fyrir lög og dóm, það skal ekki verða önnur svona sýn- ing, við skulum stöðva þetta.“ Svavar svaraði hinum æstu yfirvöldum af mestu rósemi og spurði hvað þau væru eiginlega að gera á staðnum og hvort hann hefði misskilið eitthvað. Hvort þau væru ekki á staðnum til að hjálpa og samgleðjast með unga fólkinu. Ef þetta væri allt saman tóm- ur misskilningur skyldi hann glað- ur fara fram í sal og leiðrétta það. Fékk Svavars hersinguna frá barna- verndarnefnd og lögreglu með sér upp á svið. Því næst tók hann sér hljóðnemann í hönd og sagði að hér hefði orðið „smámisskilningur“. Hann hefði haldið að barnaverndar- yfirvöld hefði komið á staðinn til að trufla skemmtunina en þau væru í reynd komin til að hjálpa og fá að vera með á skemmtuninni. Hann vildi nota tækifærið og biðja barna- verndarnefndina og lögreglu afsök- unar og bað áheyrendur að vera svo elskulega að standa upp og klappa fyrir þessu góða fólki frá lögreglunni og barnaverndaryfirvöldum. Fagn- aðarlátunum ætlaði aldrei að linna meðan fulltrúar yfirvalda stóðu skömmustulegir á sviðinu. Þeir létu sig hverfa stuttu síðar. Samkvæmt frásögn Morgun- blaðsins var skemmtunin mjög glæsileg fyrra kvöldið og framkoma áhorfenda kurteisisleg og skemmti- leg. Skemmtunin væri forstöðu- mönnum hennar til mikils sóma vegna vandaðs flutnings og góðrar skipulagningar. „Lífshættulegar leikfimisæfingar“ Rúnars Barnaverndarnefnd var verulega mis- boðið. Síðari skemmtunin var eftir og degi fyrir hana var Guðlaugur kall- aður á fund lögreglunnar. Með í för var blaðamaður Morgunblaðsins en blaðið hafði greint ítarlega frá af- skiptum barnaverndaryfirvalda af skemmtuninni. Guðlaugur sagðist ekki láta bjóða sér svona framkomu. Hátíð unga fólksins hefði verið vel tekið og fjölmiðlar hrósað framtakinu í hástert sem verið hefði öllum til mik- ils sóma. Guðlaugur hafði sitt fram og seinni skemmtunin var haldin. Sagt var að lokaþáttur Hljóma- syrpunnar í hljómsveitarkeppninni hafi verið „„æðisgenginn“ og ekki al- deilis „frosinn“ eða „niðurgíraður““. Í Vísi sagði að Rúnar Júlíusson hefði framið allt að því „lífshættulegar leik- fimisæfingar“ á sviðinu. Flutningur Óðmanna þótti ekki eins ærslafullur. Sviðsframkoma Shady Owens, hinn- ar nýju söngkonu, vakti mikla athygli. Flowers tókst ekki að ná fram sömu stemningu og Hljómum, en frá því var sagt að Jónas R. Jónsson hefði staðið sig með mikilli prýði og sömu sögu væri að segja af Karli Sighvats- syni á orgelinu. Eftir fyrra kvöldið voru Hljómar með yfir helming greiddra atkvæða gesta í sal. Á meðan stúlkurnar gengu um salinn las Svavar Gests upp svör þeirra við nokkrum spurningum sem fyrir þær höfðu verið lagðar. Þær höfðu meðal annars verið spurðar að því hvers vegna ungir menn neyttu áfengis. Og flestar voru þær sammála um svarið – það gerðu þeir til að losna við feimnina. Hljómar gerðu enn betur seinna kvöldið og fengu alls 658 atkvæði. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1968 var valinn Soffía Wedholm. Úrslitun- um var ákaft fangað og fulltrúi ungu kynslóðarinnar frá árinu áður, Krist- ín Waage, krýndi arftaka sinn. Í við- tali við Vísi sagði Soffía að Hljómar væri sín eftirlætishljómsveit og fór óneitan lega vel á því. Áfengislausar skemmtanir Þessar skemmtanir voru með öllu áfengislausar, en Guðlaugur gerði það að skilyrði, oftast með skriflegu samkomulagi, að hljómarsveitar- menn hefðu ekkert áfengi með í för. Erfitt gat verið að framfylgja þessu banni en Guðlaugur stóð fastur á því. Árið 1970 rann allur ógóði af keppninni til fræðslu um skaðsemi eiturlyfja, útgáfu fræðslurita, sýn- inga fræðslukvikmynda um það efni og fleira. Á hátíðinni það ár komu fram Roof Tops, Náttúra, Ævintýri og Tilvera ásamt fleiri skemmtikröft- um. Einn frægasti umboðsmaður skemmtikrafta á Norðurlöndum var þá viðstaddur, Knud Thorbjörnssen að nafni, en hann starfaði um þær mundir fyrir Rolling Stones. Guðlaugur stóð að keppninni í fjögur ár, en árið 1971 var hátíð unga fólksins komin í þann búning að hann vildi ekki lengur taka þátt. Keppnin hófst þá með kampavíns- veislu á Hótel Sögu og keppnin um fulltrúa ungu kynslóðarinnar var aft- ur orðin hrein fegurðarsamkeppni. Heimildir: Umfjöllun blaðanna og bók Óskars Guðmundssonar: Og náttúran hrópar og kallar. n Björn Jón Bragason bjornjon@dv.is Fréttir úr fortíð Poppgargið að æra börnin Barnaverndarnefnd skerst í leikinn á Hátíð ungu kynslóðarinnar „Fagnaðarlátunum ætlaði aldrei að linna meðan fulltrúar yfir- valda stóðu skömmustu- legir á sviðinu. Þeir létu sig hverfa stuttu síðar. Unga kynslóðin 1968 Barnaverndarnefnd og lögregla reyndu að koma í veg fyrir hátíðina. Vettvangur unga fólksins Flowers, Óðmenn og Hljómar komu fram. „Ekki hafði það beint róandi áhrif," stóð í blaðafrétt.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.