Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 38
2 Sumarhátíðir - Kynningarblað Helgarblað 25.–29. júní 2015
Einstakt Eistnaflug
Árshátíð rokkara haldin í 11. sinn – Fávitar ávallt verið bannaðir og það skilar sér
A
ðra helgina í júlí í tíu ár hef-
ur rokkhátíðin Eistnaflug
verið haldin í Neskaup-
stað. Hátíðin verður haldin
í ellefta sinn dagana 8.–11.
júlí næstkomandi í íþróttahúsinu
í Neskaupstað þar sem nær allur
skali rokktónlistarinnar er spannað-
ur og fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir
rokkáhugamenn. Hátíðin hefur haft
það orð á sér að vera árshátíð eða
uppskeruhátíð rokkarans og hefur
hún fengið lofsamlega umfjöllun í
fjölmiðlum. Eistnaflug hefur rutt
sér til rúms sem einn þýðingarmesti
vettvangurinn fyrir íslenskar rokk-
hljómsveitir og einn eftirsóttasti
rokkviðburður íslensks tónlistarlífs.
Verðlaunahátíð
Tónleikarnir verða í íþróttahúsinu
í Neskaupstað svo að allir komist
fyrir, hægt verði að selja fleiri miða
og fá fleiri þekktar erlendar hljóm-
sveitir til að mæta. Til marks um það
aukna vægi sem hátíðin hefur fengið
í gegnum tíðina þá hlaut Eistnaflug
2012 Menningarverðlaun Austur-
lands auk þess sem hún var tilnefnd
til Eyrarrósarinnar 2013 og Íslensku
tónlistarverðlaunanna 2014. Þá var
Eistnaflug valinn tónlistarviðburð-
ur ársins af Menningarverðlaunum
DV.
Þungarokkarar til fyrirmyndar
Hátíðin er orðin fastur liður í tón-
listarlífi Austurlands og njóta íbú-
ar Neskaupstaðar góðs af þeim fjöl-
mörgu tónlistaráhugamönnum
sem leggja land undir fót og kaupa
þar ýmsa vöru og þjónustu. Upp-
selt hefur verið á hátíðina síðustu ár
og og á bilinu 1.500 til 1.700 manns
hafa sótt viðburðinn. Hátíðin hef-
ur ætíð farið vel fram og segja lög-
gæslumenn fyrir austan vera sóma
af. Lögregla og gæslumenn vinna í
góðu samstarfi við skipuleggjendur
enda segja þeir það vera þeim mik-
ið kappsmál að viðhalda því orð-
spori sem Eistnaflug hefur: Það er,
rokkhátíð sem fram fer í bróðerni og
með samstöðu.
Útlendingar áhugasamir
Hróður Eistnaflugs hefur einnig
borist langt út fyrir landsteinana
á undanförnum misserum. Í fyrra
mættu rúmlega 200 erlendir gest-
ir sem var veruleg fjölgun frá ár-
inu 2013 þegar 30 erlendir gest-
ir komu. Í dag er staðan þannig að
sögn skipuleggjenda að 20 prósent
seldra miða séu keyptir af erlend-
um gestum og er búist við að fjöldi
þeirra nái að minnsta kosti 500 í ár
þegar allt verður talið til. Vinsæld-
ir hátíðarinnar hafa orðið til þess
að búið er að koma á rútuferðum
milli Neskaupstaðar og Reyðarfjarð-
ar þar sem gistipláss eru uppbókuð í
Neskaupstað. Að sögn aðstandenda
hátíðarinnar eru gestir byrjaðir að
bóka sig á Eskifirði og Reyðarfirði,
og verður þeim síðan keyrt á milli.
Fagtímarit fylgjast með
Eistnaflug er ekki aðeins vettvang-
ur fyrir rokkara að hittast og hlusta
á góða tónlist heldur einnig stökk-
pallur fyrir hljómsveitir til að koma
sér á framfæri. Tíu erlendir blaða-
menn þáðu boð um að sækja há-
tíðina í fyrra og verður annar eins
fjöldi í ár. Bætist þar enn við tæki-
færin fyrir íslenskar hljómsveit-
ir til að koma sér á kortið enda
Eistnaflug nú komið í samstarf við
tímaritið Metal Hammer sem er
eitt virtasta, vinsælasta og stærsta
þungarokkstímarit heims. Tímaritið
verður með blaðamenn og ljós-
myndara á staðnum sem munu gera
hátíðinni góð skil. Þá á hátíðin sam-
starf við tímaritin Terrorizer, Iron
Fist, Classic Rock Magazine, Loud!
og fleiri.
Alþjóðlegt samstarf
Eistnaflug er komið í samband við
ýmsar evrópskar tónlistarhátíð-
ir sem hafa áhuga á frekara sam-
starfi við Eistnaflug og geta íslenskar
hljómsveitir því vonandi notið góðs
af því í framtíðinni. Áhugi útlendinga
á Eistnaflugi hefur nú þegar borið
ávöxt því segja má að íslenska hljóm-
sveitin The Vintage Caravan hafi ver-
ið uppgötvuð á Eistnaflugi. Eftir að
hafa spilað þar 2013 komst sveitin
á Roadburn-hátíðina í Hollandi þar
sem erlendur blaðamaður hreifst svo
af þeim að sveitin komst á samning
hjá erlendu plötufyrirtæki og spilar
nú á hátíðum um alla Evrópu.
Eftirsóttur vettvangur
Í ár stendur Eistnaflug frá miðviku-
degi til laugardags og spila ellefu
hljómsveitir hvern dag. Í ljósi vin-
sælda þessarar einstöku hátíðar
og þeirra tækifæra sem þar leyn-
ast er orðið afar eftirsótt að koma
fram á henni. Enda hafa hátt í 300
hljómsveitir sótt um að fá að spila
í sumar, þar af eru 70 prósent er-
lendar sveitir. Á undanförnum
árum hafa heimsþekktar sveitir á
borð við Napalm Death og At the
Gates spilað á Eistnaflugi en í ár
munu tólf erlendar sveitir koma
þar fram. Má þar helst nefna pólsku
risana í Behemoth sem áttu bestu
þungarokksplötu ársins 2014,
Carcass og Rotting Christ, sem eru
að koma í annað sinn, Kvelertak
og Enslaved frá Noregi. Aðstand-
endur segja það mikinn heiður og
viðurkenningu að fá stórsveitir sem
þessar á hátíðina og slíkur hvalreki
auki áhuga erlendra fjölmiðla.
Sérstakir barnatónleikar
Miðvikudaginn 8. júlí verða haldn-
ir sérstakir barnatónleikar á Eistna-
flugi en þar munu koma fram sveit-
irnar The Vintage Caravan, DYS
og LLNN. Eftir krakkatónleikana
ætla Sólstafir að flytja eigin tón-
smíðar á kraftmikinn hátt við vík-
ingamyndina Hrafninn flýgur eftir
Hrafn Gunnlaugsson. Svo verður
Lifun eftir Trúbrot flutt af The Vin-
tage Caravan og fleirum. Í Egils-
búð verður sérstök utandagskrá
(e. off venue) þar sem efnilegar
sveitir koma fram. Þá mun menn-
ingin drjúpa af hverju strái þar sem
boðið verður upp á myndlistar-
sýningar, gjörninga, upplestra og
margt fleira. Dagskráin utan dag-
skrár hefst miðvikudaginn 8. júlí
og lýkur með stórtónleikum laugar-
dagskvöldið 11. júlí.
Fávitar bannaðir
Ágengar auglýsingar Eistnaflugs
hafa oft vakið athygli. Í tíu ár hefur
hátíðin auglýst sérstaklega að það
sé bannað að vera fáviti á Eistna-
flugi. Skipuleggjendur leggja mikla
áherslu á að gestir passi upp á hver
annan og þessi boðskapur hefur
skilað sér til gestanna því umtalað
er hversu vel hátíðin fer fram og
lögregla sjaldan þurft að hafa nokk-
ur afskipti af gestum í gegnum tíð-
ina.
„Ég hef sagt það í viðtölum að
ég hætti að halda þessa hátíð eins
og hún er í dag ef einhverjum verði
nauðgað eða einhver laminn í
klessu. Ofbeldi er ekki velkomið á
Eistnaflug og það hefur gengið upp
í tíu ár,“ segir Stefán Magnússon,
einn aðstandenda hátíðarinnar, og
bendir á aðrar hátíðir hafi tekið sér
þessa afstöðu til fyrirmyndar. n
„Ofbeldi er
ekki vel-
komið á Eistna-
flug.
Ótrúleg upplifun Eistnaflug er einstakur viðburður þar sem áhugafólk um þungarokk kemur saman og sameinast í ástríðu sinni. Hátíðin er líka orðinn mikilvægur vettvangur fyrir
íslenskar sveitir til að koma sér á kortið.
Mikil keyrsla Í ár stendur Eistnaflug frá miðvikudegi til laugardags og spila ellefu hljómsveitir hvern dag.