Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Page 40
4 Sumarhátíðir - Kynningarblað Helgarblað 25.–29. júní 2015
Það verður Kátt í Kjósinni
Sveitahátíð verður haldin í perlu Hvalfjarðar þann 18. júlí
Fagurt syngur svanurinn
Þjóðlagahátíð haldin á Siglufirði í sextánda sinn
D
agana 1.–5. júlí verð-
ur haldin Þjóðlagahá-
tíð á Siglufirði í 16. sinn.
Margur undrast það að
hægt skuli vera að halda
alþjóðlega tónlistarhátíð árlega í
litlu plássi á hjara veraldar. Helsta
ástæðan fyrir því er sú að á Siglu-
firði myndast einstakt andrúmsloft
meðan á hátíðinni stendur; inn-
lendir sem erlendir gestir skapa
með sér samhljóm sem aðeins
kviknar í þröngum fjallasal norður
við heimskautsbaug. Á lognkyrrum
sumarkvöldum skín gleði úr hverju
andliti og er sem allt standi í stað;
fuglar þagna, aldan kyrrist; sum-
arnótt á Siglufirði er einstök upp-
spretta friðsældar og gleði.
Á Þjóðlagahátíðina á Siglufirði
er að þessu sinni von á hópi frá-
bærra tónlistarmanna en listrænn
stjórnandi hátíðarinnar er Gunn-
steinn Ólafsson. Frá Noregi kem-
ur söngkonan Elisbeth Holmertz
ásamt fríðum flokki hljóðfæraleik-
ara að flytja tónlist frá tímum Ólafs
helga Noregskonungs, banda-
ríski fiðlusnillingurinn Jamie Laval
strýkur skosk þjóðlög af strengj-
um, Silver Sepp frá Eistlandi hamr-
ar ásamt Kristiinu Ehin á ryðgaða
nagla og kennir eistneska þjóð-
dansa. Þá leika portúgölsku tónlist-
armennirnir Joao Afonso og Filipe
Raposo ástar- og byltingarsöngva
landa síns José Afonso. Á hátíðinni
má heyra finnskt klezmer, einnig
lög sem hin sænska Mónika Zett-
erlund gerði vinsæl á sínum tíma
og loks verða kenndir dansar sem
nutu vinsælda í Danmörku á 18.
öld – og þar með einnig á Íslandi.
Íslensk alþýðulög eru sem fyrr í
brennidepli á Þjóðlagahátíðinni á
Siglufirði. Rósa Jóhannesdóttir og
fjölskylda kveða vísur handa börn-
um, Hallveig Rúnarsdóttir syngur
sönglög Sigursveins D. Kristins-
sonar og fleiri íslenskra tónskálda,
söngkvartettinn Kvika fer með
tvísöngsstemmur og fjórradda
sönglög og Hundur í óskilum kem-
ur með Lúðrasveitina Svaninn með
sér norður til þess að flytja rjómann
af vinsælustu lögum sínum. Hin sí-
unga Heddý úr Stykkishólmi vermir
hjörtun með vinsælum dægurlög-
um og síðast en ekki síst frumflytur
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
nýjan fiðlukonsert eftir Hildigunni
Rúnarsdóttur, sem byggir að hluta
á íslenskum þjóðlögum. Einleikari
er Sólrún Gunnarsdóttir.
Siglufjörður er heimili íslenska
þjóðlagsins. Þar bjó sr. Bjarni Þor-
steinsson í hálfa öld og gaf út þjóð-
lagasafn sitt fyrir rúmum 100 árum.
Vonandi munu fjölmargir láta
verða af því að heimsækja síldar-
bæinn í norðri fyrstu dagana í júlí
og hlýða á svanina syngja m eðan
sólin stráir geislum sínum yfir
lognkyrran fjörðinn. Nánar um
Þjóðlagahátíðina á Siglufirði á folk-
musik.is. n
Dansað við Þjóðlagasetrið Á Þjóðlagahátíðina á Siglufirði er að þessu sinni von á hópi frábærra tónlistarmanna. Einstakt andrúmsloft
skapast á þessari alþjóðlegu tónlistarhátíð. MynD AðsenD
söngkvartettinn Kvika Mun syngja
fyrir gesti Þjóðlagahátíðar í Bátahúsinu
fimmtudagskvöldið 2. júlí. MynD AðsenD„Á Siglufirði
myndast einstakt
andrúmsloft meðan á
hátíðinni stendur.
S
veitahátíðin Kátt í Kjós verður
haldin í níunda sinn laugar-
daginn 18. júlí og verður
eitthvað í boði fyrir alla víðs
vegar um sveitina.
Að sögn skipuleggjenda gefst
gestum færi á að kynna sér brot af
því besta sem Kjósin hefur upp á að
bjóða. Hjarta hátíðarinnar er hinn sí-
vinsæli sveitamarkaður bæði við og
í Félagsgarði. Ilmurinn af nýbökuð-
um vöfflum kvenfélagskvenna tekur á
móti gestum innan um íslenskt hand-
verk, þjóðlega hönnun og krásir úr
Kjósinni. Þar má finna meðal annars
blúndugler, randalínur, kleinur, kerti,
kort, skart, lopapeysur og matreiðslu-
bækur svo fátt eitt sé nefnt. Markað-
urinn er opinn klukkan 12–17.
Við Félagsgarð munu bændur í
Kjósinni standa við grillið og steikja
safaríka ekta nautahamborgara frá
Sogni og þegar gestir hafa náð að
seðja sárasta hungrið geta þeir nælt
sér í væna steik af holdanauti frá
Sogni til að taka með sér heim
Leiksýningin Búkolla – Ævin-
týraheimur Muggs verður flutt af
Kómedíuleikhúsinu fyrir yngstu kyn-
slóðina. Þar lifna gömlu góðu ís-
lensku þjóðsögurnar og ævintýrin við
með þátttöku allra viðstaddra á tún-
inu við Félagsgarð kl. 13. Strax að leik-
sýningu lokinni munu ungir bændur
etja kappi í hinum ýmsu þrautum og
keppa um titilinn Ungi bóndi Vestur-
lands og Vestfjarða 2015. Keppnin
hefst kl. 14
Kaffi Kjós er heimilisleg þjónustu-
miðstöð staðsett við Meðalfellsvatn,
í raunverulegu sveitaumhverfi. Þar
verður hoppukastali og hægt að kom-
ast í hjólabátsferð út á Meðalfellsvatn.
Opið á Kaffi Kjós alla daga frá klukk-
an 11 til 22.
Þá verður ljósmyndasýning
um hinn vinsæla og sérstaka
persónuleika Björgvin á Fossá í
gamla bænum hans inni við Fossá í
Hvalfirði. Sýningin er opin laugardag
11–17 og sunnudag 13–16. Þar rétt
hjá verður boðið upp á leiðsögn um
hernámsminjar í Hvítanesi og sagt
frá umsvifum breska hersins í seinni
heimsstyrjöldinni.
Í Ásgarði, gamla barnaskólanum,
verður farið 100 ár aftur í tímann til
hins merka árs 1915, þegar konur
fengu kosningarrétt og Ungmennafé-
lagið Drengur var stofnað í Kjósinni.
Á þeim tíma var talað bæði um menn
og konur sem „drengi góða“, sem
merkti væn og góð manneskja sem
sýndi drengskap í íþróttum. Ásgarður
verður opinn frá klukkan 13–16. Gest-
um hátíðarinnar er boðið að Kiðafelli
3 til að líta á úrval garðplantna sem
ræktaðar hafa verið á undanförn-
um árum. Þá geta listunnendur litið
við í Gallerí Nana við Flekkudalsveg
og Glerlistavinnustofunni Ísafell við
Meðalfellsvatn þar sem fólki verður
boðið heim auk þess sem Keramik –
vinnustofa Sjafnar Ólafs verður opin í
sumarhúsahverfinu inn í Elífsdal.
Ekkert kostar að veiða í Meðalfells-
vatni milli klukkan 13–18 í boði Veiði-
kortsins og Veiðifélagsins Hreggnasa.
Vatnið iðar af smábleikju sem hentar
vel fyrir yngstu veiðimennina. Þá er
aldrei að vita nema urriði, sjóbirting-
ur eða jafnvel lax bíti á.
Um kvöldið er því síðan lofað að
enginn fari óþreyttur
heim úr Félagsgarði þar
sem Bjössi Greifi mun
mæta með gítarinn sinn
upp úr klukkan 22 en
Veður-Barinn verður
opnaður klukkan 21 með
tilboði sem hægt er að
kætast yfir.
Kynntu þér hátíðar-
dagskrána á kjos.is og á
Facebook „Kátt í Kjós“ n
Ungir bændur etja kappi Ungir bændur munu keppa um titilinn Ungi bóndi Vesturlands
og Vestfjarða 2015. MynDir AðsenDAr
Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá Sveitahátíðin Kátt í Kjós verður haldin í níunda
skipti þann 18. júlí næstkomandi.
eitthvað fyrir alla
Gestum gefst tækifæri
á að sækja bændur og
íbúa Kjósarinnar heim
og sjá allt það besta
sem perla Hvalfjarðar
hefur upp á að bjóða.