Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.2015, Blaðsíða 42
G
raníthöllin Legsteinar hefur
getið sér gott orð fyrir góða
þjónustu og fallegar vör-
ur. Granít er afar harðgerð
steintegund sem hentar ís-
lenskri veðráttu hvað best. Steinninn
veðrast lítið og þrif og annað viðhald
er því í lágmarki. Hjá Graníthöll-
inni getur þú fundið eitt mesta úr-
val landsins af legsteinum úr graníti
ásamt fylgihlutum.
Ánægðir viðskiptavinir
„Við leggjum mikla áherslu á að veita
viðskiptavinum okkar fyrsta flokks
þjónustu. Erfiðasta skrefið er oftast
val á „rétta“ steininum. Við erum til
aðstoðar á öllum stigum, tökum vel á
móti viðskiptavinum, aðstoðum fólk
eftir fremsta megni við að velja leg-
stein sem hentar og bendum á fylgi-
hluti sem passa vel við,“ segir Heiðar
Steinsson, eigandi Graníthallarinn-
ar, en hann á að baki 24 ára reynslu
af meðhöndlun náttúrusteins og
margra ára reynslu af vinnu við leg-
steina.
Uppsetning allt árið um kring
„Þegar kemur að uppsetningu, þá
skiptir máli að vanda til verks og
ganga um leiðin af nærgætni og
virðingu. Við höfum þróað aðferð
sem gerir okkur kleift að setja upp
legsteina allan ársins hring, engu
máli skiptir hvort frost sé í jörðu
eða ekki. Þegar legsteinn er settur
upp byrjum við á að skipta um jarð-
veg undir steininum, hellusandur
er settur í stað moldarinnar, hann
þjappaður og sléttaður þannig að
hann myndar sterka og frostfría
undirstöðu undir steininn. „Auð-
vitað getur alltaf komið upp að
steinarnir taki að halla eða síga. Veð-
urfarið getur haft áhrif á jarðveginn.
Frost, þíða og mikil bleyta á víxl getur
valdið hreyfingu steinsins. Þá bregð-
umst við skjótt við, mætum á stað-
inn, lögum steininn og rukkum ekk-
ert aukalega fyrir það næstu þrjú ár
frá kaupdegi,“ segir Heiðar.
Graníthöllin tekur einnig að sér
viðgerðir og viðhald á eldri legstein-
um, jafnvel þótt þeir séu ekki frá fyr-
irtækinu sjálfu. Það margborgar sig
að laga legsteina sem eru farnir að
halla eða við það að falla á hliðina en
það hafa orðið alvarleg slys erlend-
is af völdum þess að steinar falla um
koll. Einnig býður Graníthöllin upp á
hreinsun eldri legsteina, viðbót við
áletrun eða endurmálun þegar farið
er að sjá á letri.
Mikið úrval
Graníthöllin hefur á lager yfir hund-
rað og þrjátíu mismunandi liti og
gerðir legsteina. Allt frá einföldum
og klassískum legsteinum og upp í
skrautlega steina með miklum út-
skurði. Flestir ættu því að geta fund-
ið legstein sem þeim líkar við.
Allt innifalið
Þessa dagana býður Graníthöllin
upp á sérlega hagstætt tilboð. Veg-
legur kaupauki fylgir öllum legstein-
um, áletrun nafns hins látna, graf-
skrift, og ígreypt mynd er innifalið í
verði. Starfsmenn Graníthallarinnar
sjá svo um að flytja steininn á réttan
stað og koma honum haganlega fyrir
við leiði viðkomandi. Sú þjónusta er
alfarið innifalin sé uppsetning inn-
an höfuðborgarsvæðisins, en vægt
viðbótargjald bætist við sé ferðinni
heitið út á landsbyggðina. Verðtilboð
með öllu inniföldu er frá kr. 149.000.
Góð þjónusta
og fallegar vörur
Eitt mesta úrval landsins af granítlegsteinum hjá Graníthöllinni
Heiðar Steinsson „Við leggjum mikla
áherslu á að veita viðskiptavinum okkar
fyrsta flokks þjónustu,“ segir Heiðar Steins-
son, eigandi Graníthallarinnar.