Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2015, Síða 14
Vikublað 18.–20. ágúst 201514 Fréttir Erlent
H
ér er ekkert rafmagn og
þannig viljum við halda því,“
segir Nadine Mukherjee, 37
ára fyrrverandi hjúkrunar-
fræðingur, í viðtali við
Reuters. Nadine ákvað ásamt
hópi fólks að venda sínu kvæði í
kross og flytja í þorpið Odrintsi í
suðausturhluta Búlgaríu. Áður en
hópurinn flutti til Odrintsi bjuggu
fimm manns í þorpinu en nú eru
íbúarnir orðnir tuttugu og sjö.
Fluttu til Tógó
En hvernig kom það til að hópur tutt-
ugu og tveggja einstaklinga með afar
ólíkan bakgrunn ákvað að flytjast bú-
ferlum til Búlgaríu? Hópurinn á ræt-
ur sínar að rekja til Þýskalands og
er upphafsmaðurinn að þessu öllu
Jurgen Hummes. Hummes þessi,
sem er 57 ára og fæddur í borginni
Mönchengladbach, er lærður smiður
en gerðist síðar heilari og andlegur
leiðbeinandi. Í störfum sínum eign-
aðist hann hóp dyggra fylgjenda sem
nú búa með honum í Odrintsi.
Fyrst um sinn
settist hópur-
inn að á gömlu
farfuglaheimili
fyrir ungmenni
í Svartaskógi í
Þýskalandi en
árið 2007 var
ákveðið að setj-
ast að í Afr-
íkuríkinu Tógó –
hraðinn í þýsku
samfélaginu
reyndist hópn-
um um megn. Í Tógó byggði hópur-
inn spítala og tók að sér kennslu fyrir
munaðarlaus börn. Eftir að hafa gefið
allt sitt í Tógó var hópurinn reiðubú-
inn að halda áfram. Hummes ákvað
að Odrintsi yrði næsti áfangastaður
og flutti hópurinn þangað í vor.
Líf í nánd við náttúruna
Hópurinn keypti nokkur hús sem
voru í niðurníðslu eftir að íbú-
ar fluttu annað í leit að betra lífi.
Búlgaría er fátækasta aðildarríki
Evrópusambandsins og hafa íbúar
strjálbýlla svæða margir hverjir flutt
annað á undanförnum árum. Þannig
má nefna að fjöldi þorpa með fimm
eða færri íbúa fjölgaði í 268 árið 2014
úr 184 árið 2004. Á sama tíma fækk-
aði íbúum Búlgaríu úr 7,8 milljón-
um í 7,2 milljónir. „Við viljum lifa í
sem mestri nánd við náttúruna,“ seg-
ir Nadine í samtali við Reuters. Enn
sem komið er er aðeins eitt hús-
anna sem hópurinn keypti íbúðar-
hæft. Það hýsir konu og barn henn-
ar í hópnum. Aðrir sofa í tjöldum. Á
daginn er unnið að því að koma hús-
unum í þokkalegt ástand fyrir vetur-
inn.
Ólíkur bakgrunnur
Það er óhætt að segja að meðlim-
ir hópsins hafi ólíkan bakgrunn.
Nadine er sem fyrr segir hjúkrunar-
fræðingur og Hummes smiður. Þá
er í hópnum fyrrverandi ráðgjafi hjá
hugbúnaðarfyrirtækinu IBM. Með-
limir hópsins virðast vera komn-
ir til að vera og líta björtum augum
á framtíðina. Hópurinn á nú þegar
230 geitur og stendur til að opna
verksmiðju þar sem geitaostur verð-
ur framleiddur. Meðlimir hópsins
sakna einskis. „Ég sakna þess ekki
að geta búið í stóru og fallegu húsi,
gist á hóteli eða borðað mat á góðu
veitingahúsi. Stundum sakna ég þess
að geta ekki fengið mér gott vín-
glas endrum og eins,“ segir Stefanw
Gumbrich, sem hætti í starfi sínu
árið 2013. Hann segist hafa gengið til
liðs við hópinn til að öðlast hugarró.
Almenn ánægja virðist ríkja með
hópinn meðal annarra þorpsbúa
sem eru teljandi á fingrum annarr-
ar handar. „Þetta er frábært fólk. Þau
kunna ekki búlgörsku en eru mjög
almennileg,“ segir Vladimir Faitalov,
57 ára nágranni. n
Er skipulagið í lagi...?
Lausnir fyrir heimili og fyrirtæki
Brettarekkar
Gey
mslu
- og
dekk
jahi
llur
Mikil burðargeta
Einfalt í uppsetningu
KÍKTU VIÐ Á WWW.ISOLD.IS OPIÐ 08:00 - 17:00
Nethyl 3-3a - 110 Reykjavík
Sími 53 53 600 - Fax 567 3609
Ekkert rafmagn en 230 geitur
n Hópur fólks flutti í afskekkt þorp í Búlgaríu n Þoldu ekki hraðann í þýsku samfélagi
Aðalmaðurinn Jurgen Hummes er heilari og andlegur
leiðbeinandi. Hann er upphafsmaður hópsins og á sér
dygga fylgjendur.
Geitahús Bastian
Hummes (til vinstri) talar hér við Kolani
Lamboni (fyrir miðju) og Sven Hummes
í hrörlegu húsi sem hýsa mun geitur sem
hópurinn hefur eignast.
Réttu handtökin Bastian Hummes
sést hér kenna ungum syni sínum hvernig
á að mjólka geit.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Hópmynd Hér sjást sex meðlimir hópsins en alls
tilheyra tuttugu og sex manns honum. Eins og sjá
má býr fólkið við nokkuð frumstæðar aðstæður.