Skagfirðingabók - 01.01.2012, Side 35
JÓN S. NIKÓDEMUSSON VÉLSMIÐUR Á SAUÐÁRKRÓKI
á bor Jóns er mjög líkt og á Höggbor
1, eins og stigi úr stáli. Jón fékk hent-
uga vél, hæggenga og slaglanga, úr
International 10–20 Farmal dráttarvél
skólabúsins á Hólum.13 Mótorinn var
þeirrar gerðar, að hann brenndi
steinolíu jafnt sem bensíni, og til
sparnaðar var mótorinn keyrður á
steinolíu, utan þess að hann var settur
í gang á bensíni og keyrður á því, áður
en drepið var á honum. Stóru tannhjól-
in í höggbor Jóns mun hann hafa
fengið úti á Eyri, í brotajárni úr göml u
spili, sem líklega var notað til að drag a
upp stærri báta. Tannhjól fyrir keðju-
drifið voru keypt í Reykjavík. Jón
náði í stóru reimskífuna á meginásinn
úr ónýtri bátavél frá tímum glóðar-
hausanna. Einnig notaði Jón skrúfu-
öxul úr gufuskipinu Víkingi, sem
strandaði á gamlaárskvöld 1899 í fjör-
unni við Sæmundargötu á Sauðárkrók i.
Hann komst á háfjöru út í Víking til
þess að saga sundur öxulinn, sem var
gott efni í ýmsa hluti sem smíða
þurft i, en að sjálfsögðu verða hér ekki
taldir allir þeir hlutir, smáir og stórir,
sem hann bjó til sjálfur í smiðju sinni.
Meitlar eru gerðir úr góðu stáli og
geta dugað lengi. Það er eggin14, sem
slitnar, og hana verður að brýna til
þess að eitthvað gangi að bora. Til
þess að fá nýja og beitta egg, varð að
hita bitlausu eggina í eldi og slá svo
fram nýja egg. Meitlarnir voru fyrst
sendir til Reykjavíkur til „framslátt-
ar“, eins og Jón kallaði það, en síðar
gerði hann það sjálfur. Um þessar
mundir kom hann sér upp smiðju með
blásaradrifnum rafmagnsmótor, en
áður átti hann smiðju með handdrifn-
um blásara.
Höggbor (einföld lýsing) er annars
vegar borinn (borvél og mastur á yfir-
borði) og hins vegar borstykkið
(áhald ið sem borar holuna). Borvírinn
tengir saman borinn og borstykkið. Í
mastrinu efst fyrir miðju er topphjólið
fyrir borvírinn. Neðar og til hliðar við
Hér virðist sem verið sé að slaka niður djúp
dælunni eða vatnslyftunni. Guðmundur
Helgason með trukk sinn K300 er að
slak a niður en Jón Nikk með hendur í
stjórn unarstöðu. Bjarni Jónsson heldur við
og snýr baki í ljósmyndarann.
Ljósm.: Kristján C. Magnússon.
35
13 Væntanlega er hér um að ræða sömu járnhjóladráttarvélina og keypt var í Hóla sumarið 1931.
(Hjalti Pálsson).
14 Fyrir 1970 var hætt að hita eggina og slá nýja fram, vegna þess að kominn var rafsuðuvír, sem
gerði sama gagn.