Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 9
5%
10%
15%
20%
Frjálsi 1 Frjálsi ÁhættaFrjálsi 2 Frjálsi 3
13,2%
10,2%
11,8%
8,5%
11,9%
20,4%
6,8%
6,5%
Ávöxtun Frjálsa lífeyrissjóðsins
Lífeyrissjóður
í fremstu röð
Frjálsi lífeyrissjóðurinn
Á síðasta ári var Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn besti lífeyrissjóður Evrópu í sínum stærðarflokki í
samkeppni á vegum fagtímaritsins Investment Pension Europe. Undanfarin ár hefur sjóðurinn unnið
til fjölmargra alþjóðlegra verðlauna sem staðfesta góðan árangur hans og sterka stöðu.
Ef þú hefur frjálst val um hvar þú ávaxtar skyldulífeyrissparnaðinn þinn og vilt faglega stýringu
þá er Frjálsi lífeyrissjóðurinn góður kostur. Jafnframt stendur öllum til boða að ávaxta viðbótar-
lífeyrissparnað sinn hjá Frjálsa lífeyrissjóðnum.
Þú færð ítarlegar upplýsingar um Frjálsa lífeyrissjóðinn í næsta útibúi Arion banka, á
frjalsi.is, með því að senda fyrirspurn á lifeyristhjonusta@arionbanki.is eða í síma 444 7000.
Nafnávöxtun 2015
5 ára meðalnafnávöxtun tímabilið 2011–2015
Ávöxtun í fortíð gefur ekki áreiðanlega vísbendingu um ávöxtun í framtíð.
Fimm ára ávöxtunartölurnar sýna meðalnafnávöxtun fyrir tímabilið
2011–2015 en ávöxtunin er mismunandi á milli ára. Frekari upplýsingar
um Frjálsa lífeyrissjóðinn, þ.á.m. um ávöxtun hvers árs, reglur sjóðsins o.fl.,
má nálgast á frjalsi.is.
Bitur og einmana
Sonur Irenuszar bjó hjá honum
um hríð og studdi föður sinn með
ráðum og dáð en feðgunum kom
ekki alltaf nógu vel saman, og á
endanum sneri sonurinn aftur til
Póllands. Torfi Geir bendir á að
Irenusz hafi verið mjög sterkur og
einþykkur einstaklingur. Kannski
þurfti hann á hörkunni að halda
á flakki sínu um Evrópu í margs-
konar erfiðisvinnu. Harkan varð
honum hinsvegar fjötur um fót
sem örkumla einstæðingi, í félags-
málaíbúð í Grafarvogi. Hann varð
bitur og erfiður í öllu samstarfi. Og
það olli því að fólk gafst upp á að
hjálpa honum.
„Honum gekk illa að vinna úr
þessu áfalli og það var svo sem
ekki erfitt að skilja það,“ segir Torfi
Geir í viðtali við Fréttatímann.
„Hann gat ekki talað um neitt
annað en sjúkdóminn, fötlunina
og stríð, raunverulegt og ímyndað
við læknana og hélst illa á allri
meðferð því hann fór ekki eftir
leiðbeiningum. Þá vildi hann lítið
nota gervifæturna og hafði því ekki
gagn af þeim sem skyldi.”
Örkumla og afskiptur
„Irenusz A. Gluchowski er örkumla
útlendingur á Íslandi; fótalaus
fyrir neðan hné, með ónýt nýru,
verulega heyrnarskertur, búinn
að missa nánast allar tennur, býr
aleinn og er aðstandendalaus á
landinu, er aleinn og afskiptur.
Hann fær örorkulífeyri og ein-
hvern styrk en fé þetta fer að
stórum hluta í leigu,“ segir Friðrik
Þór Guðmundsson blaðamaður um
hagi Irenenuzsar í bréfi sem hann
skrifaði árið 2009 og sendi nokkr-
um völdum aðilum sem höfðu
komið að máli hans eftir veikindin.
Þar segist hann hafa knýjandi
áhyggjur af líkamlegu og andlegu
heilsufari „Pólverjans fótalausa“,
en hann hafi fengið meðferð og
þjónustu af mannúðarástæðum
þótt ósannað sé að veikindi og ör-
kuml hans hafi stafað af atvinnu-
tengdum ástæðum og fyrirtækið
sem hann vann hjá og veiktist hjá
löngu gjaldþrota. Sjálfur sé hann
búinn að gefast upp.
„Í heimsókn minni til hans í
Blóðskilun LSH í síðustu viku varð
mér mjög brugðið. Fyrir utan að
vera með ofboðslega fráhrindandi
svöðusár á læri annars fót-stubbs-
ins þá sýnir hann augljós merki
vaxandi andlegrar truflunar. Eng-
inn sérfræðingur er ég, en mér
sýnist augljóst að paranoja fari vax-
andi og hann kvartaði mjög undan
miklum verkjum í höfði og að hann
gæti ekki einbeitt sér og ætti erfitt
með rökhugsun og að tala yfirleitt.
Mér sýnist satt að segja að hann sé
á barmi sturlunar.“
Erfitt líf á bótum
Það fækkaði því í stuðningshópi
Irenuszar, þeir menn sem helst
höfðu reynt að aðstoða hann í
sjálfboðavinnu gáfust báðir upp,
sonur hans flutti til Póllands og
fyrir mann með ekkert félags-
legt net á Íslandi annað en það
sem hið opinbera lét honum í té,
var þetta fremur snautlegt líf. „Ég
veit að það var líka oft þröngt í
búi hjá honum,“ segir Torfi Geir
en Irenusz dró fram lífið í félags-
málaíbúð á bótum. „Hann svalt svo
sem ekki, en hann hafði ekki ráð
á neinu nema því allra ódýrasta til
að mynda í mat og drykk. það var
aldrei neitt afgangs.“
Lögreglan braust inn
Einn dag í ágúst 2012 mætti hann
ekki í blóðskilun á Landspítalanum
eins og hann þurfti að gera þrisvar
í viku. Hann svaraði heldur ekki
í síma þegar reynt var að hringja
til hans. Lögreglan var að lokum
fengin til að brjótast inn í íbúðina.
Þegar þangað var komið var hann
dáinn í rúmi sínu.
Runólfur Pálsson, yfirlæknir
nýrnalækninga, segir í sam-
tali við Fréttatímann að það geti
verið lífshættulegt fyrir sjúkling
að mæta ítrekað ekki í blóðskilun.
Hann staðfesti jafnframt að þetta
hefði ekki verið í fyrsta sinn sem
Irenusz lét hjá liða að mæta. „Það
fannst engin ákveðin skýring á
dauðsfallinu. Þetta var svokall-
aður skyndidauði,“ segir Runólfur.
„Það átti enginn von á því að hann
myndi deyja en það kom heldur
ekki á óvart. Hann var farinn að
veslast upp.“
Runólfur segir ennfremur að
málið hafi vissulega verið hræði-
legt, en margir hafi þó viljað
hjálpa. Áfallið hafi þó verið meira
en hann gat ráðið við. Að lifa við
afleiðingarnar, einn og örkuml-
aður, í ókunnugu land án þess að
geta gert sig skiljanlegan á tungu-
málinu, hafi einfaldlega reynst of
erfitt.
Dýrasta verðið
Jóhannes Gunnarsson, fyrr-
verandi lækningaforstjóri
Landspítalans, sagði í viðtali
við Friðrik Þór Guðmundsson
blaðamann árið 2006, þegar sá
síðarnefndi vann að masters-
verkefni um Irenusz og örlög
hans á Íslandi, að hann hafi
fengið eina dýrustu meðferð
sem íslenska heilbrigðiskerfið
hefur þurft að veita. Almenn-
ingur greiddi þó þann reikning,
líkt og þann sem efnahags-
hrunið skildi eftir enda of mikil
uppsveifla, of mikill hraði, of
mikil gróðavon, til að menn
gætu fylgt reglum og haft allar
undirstöður í lagi.
Dýrasta verðið greiddi þó
Irenusz sjálfur.
Þótt hann væri ekki sjúkratryggður var
honum séð fyrir góðri heilbrigðisþjónustu.
|9fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016