Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 38
Í september 2010 fór maðurinn
á fund með Pétri Bürcher og
séra Patrick Breen og greindi frá
misnotkun sem þeir báðir urðu
fyrir. Hann bað biskup að hefja
rannsókn á málunum.
Stuttu síðar sendi biskup mann-
inum bréf og sagðist ætla að hefja
rannsókn á málinu. Manninum
stæði til boða almenn sáluhjálp
sem kirkjan veiti.
Nokkrum dögum síðar sendi
biskup manninum bréf og sagði
að ekkert væri til um málin inn-
an kaþólsku kirkjunnar. Rann-
sókninni væri því lokið.
Viku síðar sagði upplýsinga-
fulltrúi kaþólsku kirkjunnar,
séra Jakob Rolland, í viðtali við
Vísi að ekkert tilfelli tengt kyn-
ferðislegu ofbeldi innan kaþ-
ólsku kirkjunnar hefði komið
upp á Íslandi, að því er kirkjan
best vissi.
Árið 2011 tilkynntu mennirnir
tveir um mál sín til Ögmundar
Jónassonar, þáverandi innan-
ríkisráðherra. Ráðherra vísaði
málunum til fagráðs um kyn-
ferðisbrot sem starfaði á vegum
ráðuneytisins.
Skömmu síðar boðaði innanríkis-
ráðherra og fagráðið Pétur Bürc-
her biskup á fund til að skýra
biskupi frá málum mannanna
tveggja. Engin viðbrögð komu
frá biskupi.
17. júní 2011 birti Fréttatíminn
viðtal við mennina tvo sem
sögðust hafa verið misnotaðir
kynferðislega af tveimur starfs-
mönnum kaþólsku kirkjunnar
og kennslukonu við Landakots-
skóla.
Samdægurs sendi Pétur Bürc-
her yfirlýsingu um að kirkjan liti
ásakanirnar alvarlegum augum
og ynni að samræmdri viðbragð-
sáætlun við kynferðisbrotum
með norrænum starfsbræðrum.
21. júní 2011 sendi Pétur Bürc-
her frá sér aðra yfirlýsingu þar
sem hann spurði hver væri rétt-
ur hinna látnu sem bornir voru
þungum sökum. Það væri ekki
hlutverk kirkjunnar né stjórn-
valda að skera úr um sekt fólks,
heldur dómstóla.
Fagráð um kynferðisbrot vísaði
málinu til lögreglu en þar sem
brotin voru fyrnd og gerendur
látnir var ekkert aðhafst í mál-
inu.
Í ágúst 2011 stofnaði Kaþólska
kirkjan rannsóknarnefnd til að
rannsaka hvort fótur væri fyrir
ásökununum fjölda fólks sem
stigið hafði fram og lýst ofbeldi
innan kaþólsku kirkjunnar í fjöl-
miðlum.
Alls komu um þrjátíu einstak-
lingar fyrir nefndina. Átta þeirra
sögðust hafa sætt kynferðislegu
ofbeldi af hálfu starfsmanna
kirkjunnar. Fyrsta dæmið var
frá 1956 og það síðasta frá 1988.
Niðurstaða nefndarinnar var að
Kaþólska kirkjan hefði vísvit-
andi stungið ábendingum um
kynferðislegt ofbeldi, undir stól.
Að Jóhannes Gijsen hefði meðal
annars eyðilagt bréf með slíkum
ábendingum til að hylma yfir
brot.
Eins og fram kemur í kvikmynd-
inni Spotlight hefur kaþólska
kirkjan stundað það í áraraðir að
færa menn til í starfi sem sakað-
ir hafa verið um kynferðisbrot.
Þannig átti að reyna að koma í
veg fyrir illt umtal um kirkjuna.
Bæði séra George, skólastjóri í
Landakotsskóla, og Johannes Gij-
sen voru sendir frá Hollandi til
að starfa fyrir kaþólsku kirkjuna
á Íslandi. Gijsen var biskup á Ís-
landi í ellefu ár, frá 1996 til 2007.
Árið 2010 sökuðu tveir menn Jo-
hannes Gijsen um að hafa áreitt
þá kynferðislega í skóla í Rolduc
í Hollandi á árunum 1959-1961.
Gijsen neitaði ásökunum.
Í ársbyrjun 2014 fullyrtu tals-
menn Mea Culpa, samtaka þol-
enda kynferðisofbeldis starfs-
manna kaþólsku kirkjunnar, að
ásakanir um ofbeldi Gijsen hefðu
ítrekað verið hundsaðar.
Í apríl 2014 staðfesti nefnd innan
kaþólsku kirkjunnar Roermond
í Hollandi að Gijsen hefði brotið
gegn tveimur drengjum. Nefnd-
in komst að þeirri niðurstöðu að
brotin væru sönnuð.
Kaþólska kirkjan Roermond í Hollandi staðfestir að Johannes Gijsen,
sem var biskup kaþólsku kirkjunnar á Íslandi í ellefu ár, hafi misnotað
unga drengi. Fullyrt er að hylmt hafi verið yfir ásakanir um brot hans.
Vetrarhátíð 2016
Sérblað fylgir Fréttatímanum 5.febrúar
Vetrarhátíð 2016 er hátíð ljóss og myrkurs
og verður haldin í tólfta sinn 4.-8. febrúar 2015.
Af því tilefni gefum við út blað í samvinnu við
bæjarfélög á höfuðborgarsvæðinu sem fylgir
Fréttatímanum 5. febrúar.
Þetta er tilvalin staður til þess að tengjast
markhópi þínum með skilaboðum.
Hafðu samband við auglýsingadeild Fréttatímans
í síma 531 3310 eða á auglysingar@frettatiminn.is
og fáðu nánari upplýsingar.
ÖFLUGRI EN HEFÐBUNDNAR OME
GA-3 OLÍUR
TM
Bioglan Calamari Healthy May V4.indd 1 23/05/2014 16:23
Rannsóknir sýna að Omega-3 olía:
• Stuðlar að heilbrigðari heilastarfsemi
• Bætir minni og einbeitingu
• Vinnur gegn elliglöpum
• Er nauðsynleg fyrir eðlilegan þroska
og starfsemi líkamans
Útsölustaðir: Fæst í öllum helstu apótekum,
Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Heimkaup.is
og Heilsutorgi Blómavals
www.balsam.is
Calamari Gold inniheldur einstaklega
mikið af Omega-3 (DHA):
• 5 x meira af omega-3 (DHA) en þorskalýsi
• 3 x meira af omega-3 (DHA) en fiskiolía
Koffein Apofri - 100% hreinar koffíntöflur
VANT
AR
Þ
IG
ORKU
?
• Á morgnana
• Í vinnuna
• Í skólann og prófalesturinn
• Fyrir æfinguna
ÞÆGILEG ORKA
ÞEGAR ÞÚ ÞARFT
Á HENNI AÐ HALDA
ÁN ALLRA AUKAEFNA
Fæst í næsta
apóteki
– FULLT HÚS ÆVINTÝRA
Fiskislóð 1
Sími 580 8500
REYKJAVÍK
Tryggvabraut 1–3
Sími 460 3630
AKUREYRI
ELLINGSEN
RISA-
ÚTSALA
Komdu og skoðaðu úrvalið!
20–70%
AFSLÁTTUR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
38 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016