Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 40
Kæri Árni.
Bestu þakkir fyrir bréfið þitt. Það
er einmitt þessi glíma við hegð-
unarmótun barns sem er eitt af
stórum verkefnum hverrar fjöl-
skyldu og margir foreldrar eiga í
miklum vanda þegar kemur að því
að setja viljasterku barni mörk.
Mesta hegðunarnámið
Góð hegðun og jákvæður agi er
það sem leggur grunninn að sjálf-
stjórn hvers einstaklings og mesta
hegðunarnám fer fram upp að 6-7
ára aldri, eftir það verður erfiðara
að eiga við öll hegðunarvand-
kvæði. Þess vegna er afar mikil-
vægt að þið hjónin grípið til ráða.
Samkvæmt lýsingu þinni hefur
drengurinn ykkar fengið að æfa
neikvæða hegðun heima með til-
heyrandi taumleysi, eitthvað sem
hann sýnir ekki annars staðar.
Börn læra nefnilega hvað er í boði
og hvað er ekki í boði af viðbrögð-
um fólksins í umhverfinu. Þess
vegna sýna þau oft ólíka fram-
komu frá einum stað til annars og
ábyrgðin er ekki barnanna, heldur
fullorðna fólksins í kringum þau.
Jákvæð styrking áhrifameiri
Hegðunarþjálfun okkar snýst ekki
bara um að stöðva barn sem er
í ógöngum með framkomu sína.
Þvert á móti lærir barn mest um
góða framkomu þegar vel gengur
og þið skuluð endilega ræða bæði
við leikskólann og ömmuna um
þær aðstæður sem þau skapa og
gerir það að verkum að honum
gengur svona vel þar. Mögulega
er meiri röð, regla og rútína í leik-
skólanum sem auðveldar honum
lífið, mögulega hefur amma tíma
til að spjalla og leika við hann,
mögulega nær amma að semja við
hann um millileið áður en hann er
kominn í stríðsham til að fá meira
sælgæti? Þið getið án efa lært eitt-
hvað af þeim til að skapa bæði
betri hegðunaraðstæður heima
og bæta viðbrögð ykkar sjálfra. Á
sama hátt og jákvæðar aðstæður
og jákvæð viðbrögð kenna meira
heldur en neikvæð, mun hrós
ykkar fyrir góða hegðun styrkja
drenginn ykkar til áframhaldandi
góðra æfinga. Veitið sem sagt góðu
hegðuninni athygli og hrósið fyrir
hana.
Að setja mörk og velja sér orustur
Síðan verða öll börn að læra að nei
þýðir nei. Þess vegna er best að
ákveða fyrirfram reglur heimilsins
um aukabita milli mála, aðgengi
að sælgæti eða tíma við sjónvarp
eða í tölvu og fylgja því eftir. Í
svörum ykkar dagsdaglega er svo
best að velja sér orustur, þ.e. hvað
skiptir máli og hvenær er bara
allt í lagi að segja jáið. Foreldrið
verður nefnilega að vera tilbúið
að fylgja málum eftir. Það þarf
ekki að gerast með látum og
öskrum á barnið, heldur af
festu og hlýju, síendurtekið
þar til barnið skilur að hinn
fullorðni meinar raunveru-
lega það sem hann segir. Undan-
látssemi eins og „jæja þá, en bara
í kvöld“ er bara kennsla í að brjót-
ast áfram af frekju hvað sem hver
segir – og þá hefði verið betra að
segja bara jáið strax.
Ólík börn – en allir geta ruglast
Öllum börnum hentar best að hafa
einfaldar og skýrar reglur og oftast
eru færri reglur betri en margar.
Hins vegar eru börn ólík og bregð-
ast ólíkt við neitun og mörkum
sem foreldrar setja. Auðvitað ber
okkur öllum að nálgast börn af
nærgætni og skilningi til þess að
vera bæði góð við börnin okkar
og líka góð fyrir þau sem ábyrgir
uppalendur. Börn geta ruglast í
hegðuninni sinni og það getum við
líka, fullorðna fólkið en öll viljum
við stuðning til að laga okkur.
Munum að sum börn eru afskap-
lega tilfinninganæm og gráta sárt
þegar illa gengur og þá má bara
hugga án þess að láta undan. Önn-
ur bregðast við með mikilli reiði
og oft hentar þeim vel að róa sig
niður í friði, t.d. í herberginu sínu.
Enn önnur munu reyna að snúa
sig út úr málum, fara í fýlu og refsa
foreldrunum með þögn eða hót-
unum og oft er gott að segja þeim
glaðlega að þið sjáið í gegnum
plottið – og bjóða þeim svo með að
undirbúa kvöldmatinn. Sem sagt;
engar langar sektarræður og eng-
an pirringssvip eftir átök heldur
bara bros á vör og hrós þegar þau
laga sig eftir ruglið.
Samvinna foreldra
Að öllu þessu sögðu er ráð mitt
til ykkar að ræða saman um bæði
reglur heimilisins og viðbrögð
ykkar þegar drengurinn heimtar
eitthvað sem var búið að neita
honum um af öðru hvoru ykkar.
Þið verðið að standa saman,
byggja upp samkomulag og bakka
hvort annað upp því annars lærir
drengurinn að stilla sér upp með
öðru hvoru ykkar gegn hinu for-
eldrinu. Slíkt getur haft mjög al-
varlegar afleiðingar fyrir samband
ykkar hjónanna. Takið ykkur svo
tíma til að rækta ykkar eigið sam-
band því að hamingja ykkar hefur
bein áhrif á samstöðu ykkar sem
ábyrgra foreldra, á fjölskyldulífið –
og á hegðun og árangur drengsins
ykkar í lengd og bráð.
Hlýjar kveðjur og gangi ykkur
vel,
Magga Pála
magga
Uppeldisáhöldin
Magga Pála gefur foreldrum
ráð um uppeldi stúlkna og
drengja milli 0 og 10 ára.
maggapala@frettatiminn.is
Sæl vertu Margrét Pála.
Ég á fjögurra ára strák sem á það til að taka ansi hressileg reiðiköst
ef hann fær ekki það sem hann vill STRAX. Hann leggst á gólfið og
grætur og öskrar og hendir hlutum. Við erum búin að fara allan
hringinn, til barnalæknis o.s.frv. og það er ekkert að honum.
Hann sýnir ekki þessa hegðun í leikskólanum og ekki hjá ömmu
sinni sem hann er oft hjá svo að kannski eru þetta aðferðir okkar
foreldranna sem ekki eru að ganga upp. Hann er fyrsta barn og
við höfum hvorugt mikla reynslu af uppeldi. Ég vil taka harðar á
þessu en mamma hans dettur oft í að vorkenna honum og lætur
undan. Áttu einhver ráð sem við hjónin gætum sameinast um?
Með fyrirfram þökk, Árni.
Ósammála í
uppeldinu?
40 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016
ÍSLENSKA KÍSILSTEINEFNIÐ
FRÁ GEOSILICA INNIHELDUR
HREINAN JARÐHITAKÍSIL
• Styrkir bandvefinn*
• Stuðlar að þéttleika í beinum*
• Styrkir hár og neglur*
• Stuðlar að betri myndun kollagens
fyrir sléttari og fallegri húð*
*Rannsóknir hafa sýnt fram á þessi áhrif, kísilvatnið er fæðubótarefni og kemur ekki í staðinn fyrir lyf.
Kísillinn kemur beint úr iðrum jarðar og er
því eins náttúrulegur og nokkur kostur er á.
Það eru engin viðbætt efni í vörunni.
ANNA
GUÐmUNDSDóTTIR
„Ég mjaðmargrindar
brotn aði illa fyrir tíu
mán uðum, ég hef
verið að taka kísilinn
ykkar núna í u.þ.b.
8 mánuði og eftir tveggja til þriggja mán
aða inntöku varð ég strax vör við mikinn
mun. Í dag finn ég varla fyrir því að hafa
brotnað.“
HAFDÍS PRISCILLA mAGNúSDóTTIR
„Ég finn mikinn mikinn mun á mér eftir að ég
byrjaði að taka kísilinn frá GeoSilica inn reglu lega.
Ég ákvað að prófa að taka út kísilinn í tvær vikur til
að finna mun og hann finn ég. Beinverkir og vefja
gigtaverkir sem ég var í raun alveg hætt að finna
eru komnir aftur en í minna mæli og eina sem er
breytt er að kísillinn er dottin út. Einnig fann ég mikinn mun á nöglum
en þær eru mun sterkari en þær voru en þær voru alltaf að brotna hjá
mér. Ég get alveg sagt að þið eruð komin með framtíðarkúnna hvað
mig varðar.“
GeoSilica kísilvatnið fæst í Heilsuhúsinu, öllum helstu apótekum og í Hagkaup Kringlunni, Hagkaup Smáralind og Hagkaup Garðabæ.