Fréttatíminn - 22.01.2016, Side 48
Ljósmyndarinn og
arkítektinn Rafael Pinho er
búsettur á Íslandi en ferðast
um heiminn og myndar
fyrir tímarit á borð við New
York Times og Elle.
Rafael Pinho kom fyrst til Íslands
árið 2006 að starfa á arkítekta-
stofu. Síðan hefur Rafael eignast
fjölskyldu hérlendis og býr á Ís-
landi mestmegnis af tímanum.
Áhugaverð verkefni sem eru
honum efst í huga er þegar hann
varði þremur dögum á varðskipi
Landhelgisgæslunnar um hávetur
fyrir tímaritið Monocle. Rafael
segist njóta verkefna sem fela í sér
ævintýri. „Verkefni sem krefjast
þess að ég fari á staði sem ég hefði
annars ekki heimsótt eru þau
bestu. Eftir dvölina á varðskipinu
fór ég til smábæjar í Brasilíu að
mynda fyrir Wall Street Journal
sem var hentugt til þess að jafna
sig á kuldanum.“
Vinnunni fylgja mikil ferðalög
en ferilskráin er ekki af verri
endanum með kúnna líkt og New
York Times, Volkswagen, Whis-
kas og Playstation, svo fátt eitt sé
nefnt. Rafael er sjálfstætt starf-
andi og hefur myndað fyrir ýmsar
íslenskar auglýsingaherferðir,
tímarit og hljómsveitir. Um helgar
einbeitir hann sér að drónanum
sínum. „Ég fékk dróna nýverið og
er enn að læra á hann. Það krefst
æfingar að beita honum rétt en ís-
lenska náttúran en stórbrotin séð
að ofan.“
280cm
98cm
Bláu húsin Faxafeni S. 588 4499 Opið mán.-fös. 11-18 lau. 11-16
Tískuvöruverslun fyrir konur
Ævintýramyndir
Myndir Rafaels á
frettatiminn.is
Rafael með dóttur sinni
Flóru Rafaelsdóttur.
Átján ára gömul bók er
námsefni í kynfræðslu
í Réttarholtsskóla. Kyn-
fræðsla er valáfangi í Haga-
skóla.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
sgd@frettatiminn.is
Til viðbótar við fræðslupakka frá
landlækni er bók Miriam Stopp-
ard, „Stelpur og strákar, ástir og
þroski unglinga“ námsefni til að
fræða unglinga í Réttarholtsskóla
um kynheilbrigði. Að Stoppard
ólastaðri hlýtur bókin að teljast
ögn úrelt, enda kom hún út árið
1998, fyrir innreið internetsins
inn í líf ungs fólks. Í Réttarholts-
skóla kemur einnig hjúkrunar-
fræðingur heldur fyrirlestur einu
sinni á ári, en missi nemendur
af þeim tíma er hann ekki í boði
aftur. Á meðan skólastjórnendur í
grunnskólum og hjúkrunarfræð-
ingar, sem Fréttatíminn ræddi
við, eru sáttir við kynfræðsluna í
skólum eins og hún er, hafa nem-
endur aðra sögu að segja.
Kristín Sesselja Einarsdóttir og
Hrafnhildur Jakobína Grímsdóttir
eru nemendur í 10. bekk Réttar-
holtsskóla. Þær segjast hafa fengið
einn eða tvo tíma í kynfræðslu
sem hluta af lífsleikniáfanga, en
eru sammála um að það sem fram
komi í þessum fáu tímum sé eitt-
hvað sem flestir á þeirra aldri viti
þegar. Þær segja of miklum tíma
varið í þurra líffræðilega fræðslu.
„Einu sinni var haldinn spjall-
hringur í félagsmiðstöðinni þar
sem við gátum spurt spurninga
nafnlaust, sem gerði að verkum
að fleiri þorðu að spyrja. Það var
miklu meiri fræðsla en í kyn-
fræðslunni í skólanum.“
Kristín Sesselja segir að hún
hafi áður verið í Hvassaleitisskóla
og þá fengið nærri sömu fræðslu í
sjöunda bekk og Réttarholtsskóli
býður upp á í þeim níunda. „Ef
ég er með spurningar myndi ég
frekar leita til vinkvenna minna
en ekki skólans. Við fáum ekki
gagnlega kynfræðslu í skólanum.“
Í Hagaskóla er kynfræði boðin
sem valáfangi til viðbótar við
árlega heimsókn frá hjúkrunar-
fræðingi. Þetta fyrirkomulag
býður, að sögn nemenda, þó upp
á að færri komist að en vilja og
krakkar sem ekki þora að sýna
áhuga á kynfræðslu veigra sér við
að velja hana.
Tómas van Oosterhout segist
hafa valið kynfræðslu í níunda
bekk. Hann segir marga áhuga-
sama um að velja kynfræðslu en
færri komist að en vilja. Krakk-
arnir velja 6 valfög en komast
bara í tvö. Komist nemandi ekki í
kynfræðsluvalhóp er eina fræðsl-
an sem boðið er upp á örfáar
heimsóknir skólahjúkkunnar.
Sigga Dögg kynfræðingur hefur
oft gagnrýnt hvernig kynfræðslu
grunnskóla sé háttað. Hún segir
aðalnámskrá grunnskóla gera
kröfu um kynfræðslu, en enga
eftirfylgni um hvenær, hvernig
og hversu mikla kynfræðslu nem-
endur eigi rétt á. Það kemur henni
ekki á óvart að úrelt námsefni sé
notað til fræðslunnar, enda ráði
hver og einn kennari hvaða gögn
skuli notuð til fræðslu.
Átján ára gömul
bók í kynfræðslu
Þau Hrafnhildur, Kristín og Tómas segjast
ekki læra margt gagnlegt í kynfræðslu.
Myndir | Hari
Fákafen 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is
Kjóll
Stærðir 14-22Verð: 8.990 kr
Afgreiðslutímar í verslun
okkar að Fákafeni 9
Alla virka daga KL: 11-18
Laugardaga KL: 11-16
48 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016