Fréttatíminn - 22.01.2016, Side 52
Hvað er eftir í karlaheimum?
Eftir áralangt niðurbrot karlmannsins, þar sem Hómer Simpson varð tákngervingur hinnar
nýju og ráðvilltu karlmennsku, er kannski ekki mikið eftir í karlaheimum annað en bjór, enski
boltinn og hasarmyndir með hálfsjötugum aðalleikurum. Í tilefni þorrans kíkjum við inn í
karlaheima og skoðum það horn heimsins sem er fyrst og fremst þeirra.
Ertu karl?
Ef þrjú atriði á þessum opnum freista þín ertu líklega karl,
sama af hvaða kyni þú ert.
Ef sex atriði heilla þig ertu karla karl, karl sem funkerar betur
í samfélagi karla en í blönduðum hópi.
Ef níu atriði eða fleiri eiga við þig ertu alvarlega kynheft(ur).
Þú leitar í einsleita karlahópa og hræðist konur.
Útigrillið
Leið karlsins
inn í elda-
mennsk-
una. Nógu
mikil græja
svo það sé karl-
mannlegt að stjórna
henni. Eitthvað
annað en þeytari.
Bílskúrinn
Hið nýja húsbónda-
herbergi. Geymsla fyrir
verkfæri og alls konar karladót.
Enski boltinn
Trúarbrögð og tindátaleikur, ígildi
ættar og uppruna og afmörkuð
friðhelg stund utan áhrifasvæðis
kvenna.
Bjór
Eins og
kampavín
er drykkur
brúðhjóna er
bjór drykkur
karlfélaga. Félags-
hæfni karla er mæld
eftir því hversu
eftirsóknarvert er að
drekka með þeim bjór.
Mótorhjól
Útigrill sem hægt er að setjast upp
á og keyra á burt úr bakgarðinum
og upp í Hvalfjörð.
Kafbátamyndir
Það er næstum
öruggt að þar
er engin kona,
ekki einu sinni
í aukahlutverki.
Kafbátamyndir
þurfa ekki að
gerast um borð
í kafbáti. The
Revenant gerist
í óbyggðum Ameríku og The Big
Short í bakherbergjum Wall Street
en í hvorugri myndinni spila konur
nokkra rullu.
Hakkabuff og plokk-
fiskur
Einkennismatur karl-
lægra veitingahúsa.
Maturinn hennar
mömmu sem karl-
arnir fá ekki lengur
heima hjá sér.
Jólaskraut
Karlar elska allt sem hægt er að
keppa í. Yfirgengilegar jólaskreyt-
ingar breyta væminni samkennd
aðventunnar í hörku sam-
keppni.
Star Trek
Drengir eru hinir upp-
runalegu nördar.
Félagsleg bæklun
hrekur þá inn í
draumaheima þar
sem allir eru nör-
dar.
Veiðimennska og skytterí
Veiðikofinn er karlaklósett, vett-
vangur kynhreinna tengsla.
Kannabis
Konur reykja líka gras en það er
fátíðara að þær sannfærist um að
helsta mein heimsins sé að of fáir
reyki kannabis.
Stríðsárin
Bækur og heim-
ildarmyndir um
stríðsárin eru
hátt í helm-
ingur af öllum
bókum og heim-
ildarmyndum um
sagnfræðileg efni.
Ástæðan er ekki
áhugi kvenna. Karlar gerðu Stríðs-
árin á Íslandi 1938 til 1945 að met-
sölubók fyrir síðustu jól.
Vantrú
Það er svipað hlut-
fall kvenna og
karla sem trúa
ekki á Guð
en þegar
konur trúa
ekki þá
trúa karlar
alls ekki.
Bílar án notagildis
Sportbílar sem eru smíðaðir til að
keyra hraðar en leyfilegt er og skut-
bílar sem eru með burðargetu sem
aldrei er notuð.
Súrsaður og kæstur matur
Ef það þarf að taka á honum stóra
sínum til að kyngja þá er það karla-
matur. Líka drykkir sem rífa illa í.
Rakarastofa
Kynjaskipt hársnyrting.
Sixpensari
Eina fatið sem konur hafa ekki
sannað að fer þeim í raun mun
betur en körlum.
Stefán Máni
Það eru nánast einvörðungu karlar
sem fá bækur Stefáns Mána að
láni á Borgarbókasafninu.
52 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar–24. janúar 2016
ÚRVALS NORÐLENSKUR
Þorramatur
Kjarnafæði býður fjölbreyttan úrvals Þorramat, bæði súrsaðan og
nýjan, svo sem súr lambaeistu, súra lundabagga, súra lambasviðasultu,
súra lifrarpylsu, Vopnafjarðarsvið, hangikjöt, nýja lifrarpylsu, nýjan
blóðmör, nýja lambasviðasultu, magál og fleira.
Súrsun matvæla eykur hollustu þeirra og geymsluþol til muna. Súrsunin varðveitir
einnig næringargildið ásamt því að maturinn verður meyrari og auðmeltari.
Skyrmysan er auðug af kalki og próteinum sem síast inn í súrmatinn. Sama gildir
um B2-vítamín. Nú á dögum skipar súrmatur mikilvægan sess á þorranum.
Veldu gæði, veldu Þorramat frá Kjarnafæði.
www.kjarnafaedi.is