Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 70
2 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar-24. janúar 2016
Vetrarfjör
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
Upplýsingasími 530 3000
skidasvaedi.is
Skíðasvæðin í Bláfjöllum eru opin:
Um helgar: Kl. 10:00–17:00
Virka daga: Kl. 14.00–21.00
Skíða- og brettaskóli
Bláfjalla er opinn kl. 11–15
allar helgar.
Tímapantanir á www.skidasvaedi.is.
Æfa úti klukkan hálf sjö á morgnana
„Þetta er átak fyrst, svo venst þetta
og svo verður maður háður þessu,“
segir Sævar Þór guðmundsson sem
er meðlimur í november Project
á Íslandi, hópi fólks sem hittist
snemma á morgnana og stundar
líkamsrækt undir berum himni.
november Project er þekkt fyrir-
bæri í Bandaríkjunum og rakel eva
Sævarsdóttir flutti þessa hefð með
sér heim frá Boston fyrir einu og
hálfu ári. nú hittist hópur Íslendinga
á ýmsum aldri á miðvikudagsmorgn-
um við anddyri Háskóla Íslands og á
föstudögum fyrir framan Hallgríms-
kirkju. Æfingin hefst klukkan 6.30
og stendur í fjörutíu mínútur. „Það
er misjafnt hvað margir mæta, þetta
geta verið frá 5-7 manns og upp í 20
eða 30. en hópurinn fer stækkandi.“
Hann kippir sér ekki mikið upp við
kuldann og æfir allan ársins hring úti.
„Það er fullt af fólki sem fer í líkams-
rækt snemma á morgnana. Við
höfum það umfram að þetta kostar
ekki neitt – og ferska loftið líka.“
Sævar segir að öllum sé velkomið
að slást í hópinn – hvort sem þeir
eru í góðu formi eður ei. „Það gera
allir það sama en fólk gerir það mis-
hratt og kemst yfir mismikið.“
Hópur fólks æfir saman tvisvar í viku á
sama tíma og margir sofa enn.
Ljósmynd | Rut Sigurðardóttir
Ljósmyndir | Hari
Á blöðruskjóta til fjalla
Bergur Benediktsson notar fatbike bæði til
innanbæjarsnatts og fjallahjólreiða.
Fáir tengja hjólaæðið sem gengið
hefur yfir landið síðustu misserin
sérstaklega við vetrarsport. Það
þýðir hinsvegar ekki að það sé ekki
svo. nagladekk fyrir reiðhjól hafa
þekkst í langan tíma og á þeim má
þeysa um skafna hjólastíga allan
veturinn. annað hefur hingað til
verið upp á teningnum með fjalla-
hjólreiðar. eins og nærri má geta
sökkva mjó hjóladekk djúpt snjóinn
og því verður fjallatúrinn oftar
en ekki í styttri kantinum sé ekki
harðfenni. Það var í það minnsta
þangað til blöðruskjótinn, eða
fatbike hjólið, kom til sögunnar
sem er reiðhjól með einstaklega
breiðum dekkjum.
Þau hafa reyndar verið til í heimi
sérvitringa í nokkurn tíma en síð-
ustu tvö árin hefur orðið sprenging
í notkun þeirra feitu enda allir
helstu hjólaframleiðendurnir byrj-
aðir að framleiða slíka gripi. nú er
líka svo komið að í lok janúar á að
halda fyrsta árlega heimsmeistara-
mótið í fatbikehjólreiðum í Color-
ado í henni ameríku. að sjálfsögðu
munum við Íslendingar eiga okkar
fulltrúa þar því Bergur Benedikts-
son, einn af fjórmenningunum á
bak við lauf forks, koltrefjagafflana
tæknilegu, ætlar að halda uppi
heiðri okkar Frónbúa þar ytra.
Bergur segist nota blöðrusjótann
bæði til innanbæjarsnatts og fjalla-
hjólreiða enda fer gripurinn jafn
léttilega upp og niður tröppur
innanbæjar sem upp og niður
brekkur og kletta úti í náttúrunni.
ekki skemmir svo fyrir þegar laufg-
affallinn fyrir fatbike er kominn að
framan enda lang vinsælasta varan
hjá þeim, enn sem komið er.
Blöðruskjótinn er því sannkallaður
jeppi hjólasportsins. Svínvirkar
meira að segja að hleypa vel úr
dekkjunum og fljóta á snjónum líkt
og jeppakarlarnir hafa gert í ára-
tugi.
Sunnan heiða er einfalt að leita
að brekkum á Hengils- og Bláfjalla-
svæðinu eða í Skálafell, nú eða
bara þar sem er smá snjór, hvar
hægt er að planta sér á blöðru-
skjótann og þeysa um frjáls eins og
fuglinn.
Meira á
frettatiminn.is