Fréttatíminn - 22.01.2016, Blaðsíða 72
4 | fréttatíminn | Helgin 22. janúar-24. janúar 2016
Vetrarfjör
Sjósundið eins og hugleiðsla
Hafdís Hrund gísladóttir, 41 árs
þriggja barna móðir í Hlíðunum,
hefur stundað sjósund í átta ár og
fer að meðaltali tvisvar í viku.
„Mig langar reyndar að breyta nafn-
inu í sjóbað, eins og það heitir í Dan-
mörku. Maður syndir ekkert í þess-
um kulda á veturna en þegar það
fer að hlýna tekur maður kannski
nokkur sundtök,“ segir Hafdís sem
skellti sér í sjóinn í einnar gráðu
frosti þegar Fréttatíminn heimsótti
hana. Það kaldasta sem hún hefur
upplifað er mínus 1,7 gráða.
„Þetta er eins og hugleiðsla.
Maður labbar út í sjó og hugsar ekki
um neitt annað. alveg eins og þegar
þú ferð að hugsa um andardráttinn
í hugleiðslu. Maður hefur bara þessa
hugsun.“
eftir sjósund er til siðs að fá yl í
kroppinn að nýju í heita pottinum
og segir Hafdís að félagsskapurinn
þar sé mjög góður. „Það skiptir máli
að skella sér í pottinn. en svo eru
margir, þar á meðal ég, sem dýfa
sér aðeins í lónið aftur eftir pottinn
til að kæla sig niður. Maður verður
latur við að vera of mikið í heita
vatninu.“
Hafdís Hrund hefur stundað sjósund í átta
ár og lætur ekki janúarkuldann aftra sér.
Ljósmynd | Rut Sigurðardóttir
Reynir á alla
vöðva líkamans
Auður Kristín segir að skíðaganga henti jafnt
fólki sem hefur ekkert hreyft sig og vill njóta
útiveru og afreksfólki úr öðrum íþrótta-
greinum.
„Það hefur verið stígandi í þessu
síðustu ár en mér finnst hafa orðið
sprenging í vinsældum gönguskíða
í vetur. einn laugardaginn voru til
dæmis á milli 5-600 manns á spor-
inu uppi í Bláfjöllum,“ segir auður
Kristín ebenezersdóttir sem hefur
rennt sér á gönguskíðum um árabil,
en á árum áður var hún landsliðs-
kona á skíðum.
auður renndi sér í Heiðmörk á
dögunum þegar Fréttatíminn slóst
í hópinn. „Skíðaganga er rosalega
góð alhliða hreyfing. Hún reynir á
alla vöðva líkamans og það er mun
minna um álagsmeiðsli en í öðrum
íþróttum,“ segir auður. „en þetta er
ekki bara hreyfingin, þetta er ekki
síður útiveran, að vera úti í hreinu
lofti og að vera frjáls að fara þínar
eigin leiðir.“
Hún segir að hver sem er geti
rennt sér á göngustígum, hún hafi
rekist á fólk frá þriggja ára og upp
í nírætt. Sportið henti jafnt þeim
sem hafa ekkert verið að hreyfa sig
og vilja njóta útiverunnar og eins
afreksfólki í öðrum íþróttum sem
noti gönguskíðin við þjálfun.
Hvað þarf maður að gera til að
byrja á gönguskíðum?
„Þú þarft að fá þér skíði og góða
skó og fá leiðsögn þannig að skíðin
passi þinni þyngd. Svo er rosalega
gott að fá smá tilsögn. Það kunna
allir að ganga en með smá tilsögn
verður þetta skemmtilegra og þú
færð meira út úr göngunni. Svo
er rétt að hafa höfuðljós eftir að
komið er fram á kvöld.“
auður segir að á höfuðborgar-
svæðinu sé tilvalið að fara í Bláfjöll,
Heiðmörk, á rauðavatn og á golfvöll
gKg, garðabæjarmegin. „en Mekka
gönguskíðanna er Ísafjörður, þar er
alltaf viss hópur sem stundar þetta
af kappi. Það ætla til dæmis margir í
Fossavatnsgönguna á Ísafirði.“
Ljósmynd | Rut Sigurðardóttir
Allir í
fjallið!
Brosið fer ekki af skíða- og snjó-
brettafólki þessa dagana enda er
tímabilið þeirra í fullum gangi. gott
færi var til dæmis í Bláfjöllum um
síðustu helgi og vart varð þverfótað
fyrir brettafólki í miklum ham.
Skíðasvæðin eru opin flesta
daga, bæði um helgar og á virkum
dögum. Á virkum dögum er oftast
opið til klukkan 21 og þá erU
skíðasvæðin upplýst á skemmti-
legan hátt. rétt er að benda fólki
á að fylgjast með heimasíðum og
Facebooksíðum skíðasvæðanna upp
á opnunartíma.
Hægt er að leigja snjóbretti á
flestum skíðasvæðum og lyftukort
er hægt að kaupa á bensínstöðvum
svo fólki þurfi ekki að standa í röð
áður en það kemst í lyfturnar.
Stefán Guðjónsson var
einn þeirra sem skelltu
sér á snjóbretti í Blá-
fjöllum um síðustu helgi.
Ljósmyndir | Rut Sigurðardóttir
Meira á
frettatiminn.is
Meira á
frettatiminn.is