Fréttatíminn - 22.01.2016, Page 75
| 7fréttatíminn | Helgin 22. janúar-24. janúar 2016
Unnið í samstarfi við
Mountaineers of Iceland
Samstarfsfólk, vinahópar, fjölskyldur
og einstaklingar fara í síauknum
mæli í alls kyns skipulagðar ferðir út
fyrir þéttbýlið til að komast í burtu
frá ysi og þysi. Þar eru jeppa- og
snjósleðaferðir upp á jökul engin
undantekning. Mountaineers of
iceland er framarlega í flokki þegar
kemur að slíkum ferðum og hefur
þróað margs konar útgáfur af ævin-
týraferðum sem henta hópum og
einstaklingum af ýmsum stærðum
og gerðum. Mountaineers sérhæfir
sig einnig í sérhönnuðum ferðum og
leggur sig fram við að láta drauma
fólks rætast. „Kúnnahópurinn okkar
er að mestu erlendur en við fáum
líka Íslendinga til okkar inni á milli,
oft hópa og fyrirtæki. Við fáum
einstaklinga að utan, líka minni
sérhópa, hvatahópa og fyrirtækja-
hópa,“ segir Vigdís ingibjörg Páls-
dóttir, markaðsstjóri Mountaineers.
Hún segir fólk á öllum aldri hafa
komið í ferðirnar. „já, aldurshópur-
inn er mjög breiður, við höfum
fengið áttræða skvísu á sleða til
okkar!“
Vigdís segir markmið Mounta-
ineers að bjóða upp á ævintýralega
skemmtilegar ferðir og skapa ein-
stakar minningar. „Ferðamennirnir
sem koma til okkar vilja upplifa
eitthvað öðruvísi, kynnast Íslandi
á annan hátt og eru með ævin-
týraþrá. að þeytast um langjökul
með vindinn í hárinu, útsýni yfir
fjöll og firnindi, umkringd snjó-
þekju er ógleymanleg upplifun,“
segir Vigdís sem sjálf hefur upplifað
þessar kringumstæður margoft og
fær aldrei nóg. „Við höfum líka
tekið eftir því að snjósleðaferðirnar
hafa verið að sækja í sig veðrið á
gjafamarkaðnum. Svona upplifun
er sniðug jólagjöf, afmælisgjöf,
fermingargjöf, brúðkaupsgjöf – slær
alltaf í gegn,“ segir Vigdís og gefur
hér með góða hugmynd að frum-
legri gjöf handa þeim sem allt á!
Vigdís segir suma sem fara í ferðir
vilja nýta það sem slökun og njóta
útsýnisins en aðrir séu hins vegar á
höttunum eftir því að láta adrena-
línið flæða sem mest. Það gleður
eflaust síðarnefnda hópinn að
fyrirtækið var að festa kaup á tólf
nýjum snjósleðum sem eru léttari
og fimari en gengur og gerist og
eru því ætlaðir fyrir lengra komna
sem vilja fara fulla ferð áfram!
Sleðarnir eru sérhannaðir til þess
að drífa vel upp og niður brattar
brekkur eru því bara fyrir vant fólk
sem þorir. Byrjað verður að selja í
þessar ferðir í febrúar og búast má
við að adrenalínfíklarnir flykkist í
raðir.
nýjasta viðbótin við flóru þess
sem Mountaineers of iceland býður
upp á er nokkuð sem hljómar
fremur nýstárlega; nefnilega pylsu-
vagn á langjökli.
Vigdís Pálsdóttir segir þetta hafa
mælst vel fyrir. „Við erum búin að
selja mörg hundruð pylsur síðan
við opnuðum pylsuvagninn, það er
bara búið að vera brjálað að gera,“
segir hún. allar upplýsingar um
ferðirnar, myndir og fleira, er að
finna á mountaineers.is og einnig
á samfélagsmiðlunum Facebook,
instagram, Twitter og Snapchat
(mountaineersice).
auglýsingadeild fréttatímans
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Vetrarfjör
Pylsuvagn á Langjökli og fleiri ævintýri
Mountaineers of Iceland lætur draumana rætast með fjölbreyttum ævintýraferðum.