Fréttatíminn - 22.01.2016, Síða 76
Unnið í samstarfi við
Ferðafélag Íslands
Ferðaáætlun Ferðafélags Íslands
2016 er komin út, stútfull af ferðum
af öllu tagi og fátt annað að gera en
að draga fram gönguskóna, reima
þá á sig vel og vandlega og halda út
í yndislega íslenska náttúru og góða,
fjölbreytta íslenska veðrið.
Í ferðaáætluninni má finna yfir
200 ferðir, allt frá malbikuðum
göngustígum í þéttbýli yfir í grösug-
ar sveitir og á hæstu tinda tignarleg-
ustu fjalla landsins. Allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi; ungbörn
með snuð í barnavagnaviku Ferða-
félags barnanna og eldri og heldri
borgarar með staf í viðeigandi rútu-
ferðum. Algengustu ferðir félagsins
eru gönguferðir um óbyggðir þar
sem þátttakendur drekka í sig nátt-
úruupplifun, sögulegan fróðleik,
örnefnaþulur, flóru landsins og fjöl-
breyttan félagsskap.
Tómas leiðsögumaður í Öskju
Fjölbreytt fjallaverkefni má finna
í áætluninni sem endranær. Þar
er hægt að velja um vikulegar og
mánaðarlegar fjallaferðir og Alla leið
á hæstu tinda sem er undirbúnings-
verkefni fyrir jökulklædda tinda sem
sigraðir verða í apríl og maí.
Fólk af öllum mögulegum
stærðum og gerðum getur fundið
eitthvað við sitt hæfi og þar má
til dæmis nefna verkefnin Biggest
winner þar sem fólk í yfirvigt fær
góða leiðsögn og Bakskóla FÍ sem
er sniðinn að þörfum þeirra sem
eiga við bakvandamál að stríða.
Ferðafélag Íslands áætlar að tugþús-
undir landsmanna taki þátt í ferðum
félagsins á hverju ári.
Fastir liðir, eins og Laugavegurinn,
Hornstrandir og Lónsöræfi, eru
meðal ferðastaða en nýrra grasa
gætir inn á milli. Þar má til dæmis
nefna annan áfangann í raðgöngu
umhverfis Langjökul og ferð á níu
toppa Tindfjalla. Einnig verður farið
í Íslendingasagnaferð um slóðir
Hrafnkels Freysgoða og fleiri kappa
austur á landi. Skurðlæknirinn
Tómas Guðbjartsson fer síðan fyrir
spennandi leiðangri í Kverkfjöll,
Öskju og Holuhraun.
Af öðru áhugaverðu má nefna að
snemmsumars er raðganga þar sem
farið verður á nokkrum sunnudög-
um frá Strandarkirkju í Selvogi milli
kirkjustaða í Ölfusi, Flóa, á Skeiðum
og áfram í Skálholt. Einnig verður
farið í sex daga pílagrímagöngu frá
Bæ í Bæjarsveit í Borgarfirði. Báðar
þessar ferðir enda á Skálholtshátíð,
24. júlí.
Hjólreiðaferðir og stuttar göngur
Nýlega er farið af stað verkefnið
Fyrsta skrefið, heilsurækt á fjöllum
sem Reynir Traustason og Ólafur
Sveinsson, með fulltingi Auðar Elvu
Kartansdóttir, hafa umsjón með.
Verður þá gengið á fjöll í nágrenni
borgarinnar og víðar frá í janúar
og fram á sumar – að viðbættum
reglulegum göngum á Úlfarsfell.
Enn er hægt að bætast í þann hóp.
Einnig eru á dagskránni verk-
efni með göngu á eitt til tvö fjöll
á mánuði og eru þau ætluð fólki
sem er í þokkalegu gönguformi
en vill gjarnan halda sér við undir
markvissri leiðsögn. Þá er farið af
stað verkefnið Landvættir hvar fólk
æfir og keppir í öllum greinum fjór-
þrautar; það er skíðagöngu, sundi,
hjólreiðum og langhlaupi. Umsjón
með þessu verkefni hafa hjónin
Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert
Marshall.
Ónefndar eru þá hjólreiðaferðir,
stuttar göngur í nágrenni borgarinn-
ar og svo mætti lengi áfram tíunda
leiðangra, lengri sem skemmri, þar
sem landið allt er undir.
Sífellt fleiri börn slást í hópinn
Sigrún Valbergsdóttir er formaður
ferðanefndar og varaforseti Ferða-
félags Íslands. „Rauði þráðurinn í
okkar starfsemi er skipulagðar og
fjölbreyttar ferðir, útgáfa og rekstur
fjallaskála, allt í þeim tilgangi að
kynna fólki landið og greiða leið
þess. Á síðustu árum höfum við þó
styrkt þann þátt að koma á ólíkan
hátt til móts við fólk í mismunandi
aðstæðum svo það geti stundað úti-
veru og hreyfingu sem gefur öllum
svo mikið,“ segir hún. Það eru allir
velkomnir í ferðir hjá FÍ en félagið
hefur þó ekki lagt áherslu á dæmi-
gerðar túristaferðir. „Okkar ferðir
eru ekki hugsaðar fyrir erlenda
ferðamenn. Við beinum þeim held-
ur á ferðaskrifstofurnar sem bjóða
upp á ferðir sem eru sérhannaðar
fyrir þá. Við erum áhugamannafélag
og bjóðum upp á ferðir fyrir okkar
félagsmenn. Það er undantekning
ef erlendir ferðamenn sem ekki
kunna íslensku eru í ferðum, hins
vegar hefur það ekki valdið neinum
vandamálum þótt tveir til þrír slíkir
hafi slegist í hópinn en þeim er ekki
lofuð fararstjórn á þeirra tungu-
máli,“ segir Sigrún. Hún leggur
áherslu á að langflestir sem taka
þátt í starfi FÍ séu félagar enda gefi
það hagstæðari kjör og hina glæsi-
legu Árbók FÍ sem er ómissandi fyrir
alla þá sem hyggjast leggja landið
okkar undir fót.
Sigrún er sérlega ánægð með þá
miklu aukningu og áhuga á því að
börn séu höfð með í gönguferðum.
„Innan FÍ er starfrækt Ferðafélag
barnanna og eru það eðalhjónin
Brynhildur Ólafsdóttir og Róbert
Marshall sem eru forsprakkar þess.
Þar hafa orðið mikil snjóboltaáhrif
og verkefnið hlaðið utan á sig. Verði
er haldið í lágmarki og ferðirnar
hafa mælst mjög vel fyrir. Við erum
að reyna að tæla börnin ung til
okkar svo þau upplifi þessa hollu
aðferð við að hreyfa sig og ekki
síður til þess að skilja og skynja
landið okkar,“ segir Sigrún og bætir
við að þessar ferðir séu sniðnar að
þörfum og getu barnanna. Hún
vekur athygli á nýstofnuðu félagi;
Ferðafélagi unga fólksins sem er
fyrir fólk á aldrinum 18-25 ára. Þar
sé lögð áhersla á að ungmennin læri
að fóta sig í fjalla- og gönguferðum
án tilsagnar foreldra eða forráða-
manna.
Verkefni FÍ eru gríðarlega yfirgrips-
mikil og fjölbreytt og Sigrún segir
félagið eiga að vera fyrir allar kyn-
slóðir og alls konar fólk. „Þá er sama
hvort við erum að tala um börnin
sem eru að stíga sín fyrstu skref í
íslenskri náttúru eða þá sem vilja
láta hæstu tindana ögra sér,“ segir
Sigrún að lokum og hvetur alla til
þess að kíkja á fi.is og finna eitthvað
við sitt hæfi.
AuglýsingAdeild fréttAtímAns
S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.isKynningar | Vetrarfjör
8 | fréttAtíminn | HELGIN 22. jANÚAR-24. jANÚAR 2016
Allt frá snuði upp í staf!
Göngur og fjallaklifur fyrir alla í ferðaáætlun FÍ 2016 sem er komin út.
Sigrún Valbergsdóttir.