Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 51

Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 51
LÆKNAblaðið 2016/102 51 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Ágætu gestir Í dag er stór stund fyrir Fáskrúðsfirðinga og ekki síst lækni staðarins. Það er merkur áfangi, sem náðst hefur í heilsugæslumálum staðarins við opnun þessa húss, sem er sérstaklega hannað fyrir heilsugæslu. Þetta er þó ekki fyrsta húsnæðið sem byggt er hér til slíks brúks. Á Fáskrúðsfirði var reist fyrsta sjúkrahúsið á Austfjörðum og eitt af fyrstu sjúkrahúsum landsins. Það var byggt af Frökkum 1897. Það var rekið af nunnum í 3 mánuði á sumrin og hafði 6 rúm. Læknir kemur þó ekki við það sjúkrahús fyrr en árið 1900 er Georg Georgsson er ráðinn til starfa í nýstofnað læknishér- aðið, en hér hafði ekki verið læknir fyrr. Ljóst er að hér hefði læknir ekki sest að á þeim tíma ef Frakkar hefðu ekki unnið að þeim málum. Etv. hefðu Búðir aldrei orðið læknissetur ef Frakkar hefðu valið sér annan stað? Frakkar byggja síðan stóran 20-26 rúma spítala sem tekur formlega til starfa 1. júní 1905 og starfar allt árið fyrst um sinn. Þar voru 3 fimm manna stofur, 1 einangrunarherbergi, skurðstofa með full- komnum tækjum, língeymsla, íbúðir starfsfólks og bóka- safn. Starfsemi þess lýkur að mestu í upphafi fyrra stríðs. Nokkru eftir 1905 byggðu Frakkar síðan stóran læknisbústað, sem heilsugæslan nú flytur úr. Þegar Frakkar hverfa héðan kaupir Georg læknir sjúkrahúsið og læknisbústaðinn, sem líklega hefur orðið honum ofviða því Landsbankinn eignast hvoru tveggja að lokum. 1935 kaupa sveitarfélögin læknisbústaðinn og 1939 lætur Fáskrúðsfjarð- arhreppur flytja franska spítalann út í Hafnarnes þar sem hann er endurbyggður að mestu eins, en þó var lofthæð lækkuð um 50cm. Í Hafnarnesi heyr nú þetta glæsilega hús sitt dauðastríð, sem er langt, enda húsið vel byggt í upphafi. Þarna fúna í friði merkustu minjar héraðsins. Læknisbústaðurinn var einnig heilsugæslustöð og var svo alveg fram á öskudaginn 16. febrúar 1983, líklega 78 ár. Ég held að það sé örugglega Íslandsmet. En eins og upp- hafið var glæsilegt voru endalokin dapurleg. Heilsugæslan var orðin illa starfhæf vegna lítils viðhalds og tækjaskorts. Í upphafi var þessi staður lang best búinn allra smærri staða landsins og undir lokin örugglega verst búna aðstaðan á öllu landinu. En nú er komin betri tíð með blóm í haga. Erfitt er að telja upp þau atriði sem nú breytast til batnaðar í þessu nýja húsi, svo mörg eru þau. Sem dæmi má nefna betri lýsingu. Í gamla húsinu var varla lesbirta eftir að dimma tók. Röntgen- aðstaðan er nú á jarðhæð, en það var oft erfið ákvörðun hvort senda ætti sjúkling á Norðfjörð í myndatöku, eða reyna að drösla honum með kvölum upp brattan stigann. Nýr sími með 3 línum bætir alla síma tíma auk þess öryggis að auðveldara sé að ná sambandi í neyðartilvikum. Fjárveit- ing til tækjakaupa var 600 þúsund á þessu ári auk 170 þús- und króna aukafjárveitingar sl. haust. Þessi fjárveiting nægir til að gerbreyta aðstöðunni, þótt hún dugi ekki fyllilega. Ég vil nota tækifærið og þakka Krabbameinsfélagi Austurlands höfðinglega gjöf, sem er endaþarmsspeglasett, speglar til að athuga legvökva hjá barnshafandi konum, sem gefur upplýsingar um líðan fósturs. Höfuðspegill til skoðunar á hálsi og eyrnasmásjá til nákvæmari eyrnaskoðunar. Þessu fylgir ljósgjafi, sem nota má við öll tækin. Einnig vil ég þakka Kvenfélaginu Kolfreyju, sem gaf leyfi til tækjakaupa fyrir a.m.k. 20 þúsund og hefur þegar verið pantaður blóðsykurmælir, sem notaður er til greiningar og eftirlits með sykursýki. Einnig fósturhjartsláttarmagnari, sem auðveldar eftirlit með hjartslætti fósturs og er öryggisatriði, t.d. við heimafæðingar. Í pöntun er ný læknistaska fyrir vitj- anir, en sú gamla er orðin slitin, auk þess of lítil. Enn er þó ekki fullnýtt framlag þeirra. Ég vil þakka Slysavarnardeildinni Hafdísi, sem hefur samþykkt að gefa raka- og súrefnistjald fyrir börn í önd- unarerfiðleikum. Það verður vissulega stökkbreyting á þessu ári í tækjum og aðstöðu hér á Fáskrúðsfirði. En eins og þessi byrjun er glæsileg vona ég að þessum málum verði vel fylgt eftir þannig að ekki komi annað hnignunartímabil á eftir. Það skyggir nokkuð á í dag að nú verði Læknishúsið gamla, sem var eitt veglegasta hús Austurlands, látið grotna niður. Ég vil nota tækifærið og skora á hlutaðeigandi yfir- völd að bjarga bæði Læknishúsinu og Franska spítalanum, ef það er þá ekki orðið of seint. Alla vega þyrfti að kanna það mál til hlítar. Ástand þessara húsa er niðurlæging fyrir byggðarlögin, meðan flestir aðrir landsmenn eru vaknaðir til vitundar um nauðsyn þess að varðveita gamlar minjar. Að lokum. Þetta er stór stund og ég vona að þjónustan batni eins og til var ætlast. Takk fyrir! Læknishjónin á skipsfjöl við kajann á Fáskrúðs- firði í kringum árið 1910, þau Georg Georgsson og Karen Wathne kona hans sem lést fyrir aldur fram, aðeins 27 ára. Í baksýn er læknisbústaður- inn og til hægri er Franski spítalinn sem nýlega var gerður upp og hýsir nú Fosshótel. Vígsluræða nýrrar heilsugæslustöðvar á Fáskrúðsfirði, í febrúar 1983 um kosningaskrifstofur allra flokka og sýndi myndirnar og spurði, gjarn- an hátt yfir alla viðstadda, hvað þeir ætluðu að gera í málefnum læknisbú- staðarins. Brá mörgum þegar þeir sáu myndirnar, héldu að ástandið væri miklu betra en myndirnar sýndu. Þetta hafði áhrif og nokkru seinna var gengið í að bæta ástandið og var ég vel sáttur að því loknu. Þegar leið á haustið 1982 fór ég að forvitnast um hvenær nýja heilsu- gæslan yrði tilbúin og var mér tjáð að áætluð verklok væru í febrúar árið eftir. Þegar ég spurðist fyrir um hvernig tækjakosturinn yrði, komst ég að því að það vissi enginn neitt um það mál. Eftir talsverða eftirgrennslan kom í ljós að engin áætlun var til og ekkert á fjárlögum það árið ætlað í stöðina. Útlit var fyrir að flutt yrði í tómt húsið. Það kom því í minn hlut að leysa málið. Mætti ég skilningi í heilbrigðisráðu- neytinu og tókst að fá aukafjáveitingu um haustið upp á 170.000 og síðan 600.000 á fjárlögum 1983. Jafnframt fór ég suður og sat í tæpa viku á Innkaupastofnun ríkisins með ágætum starfsmanni þeirra. Þar fórum við yfir alls kyns bæklinga og völdum lækningatæki, ruslafötur og allt þar á milli. Allt miðað við að gjörnýta fjár- veitingarnar til að bæta aðstöðuna. (Ef ég man rétt var blóðþrýstingsmælir eina lækningatækið, fyrir utan röntgen- tækið, sem fluttist yfir í nýju stöðina úr þeirri gömlu). Þegar vígsluræðan var flutt voru allflestir bæjarbúar viðstaddir og því kjörið tækifæri til að reifa mál Franska spítalans, sem mér var ákaflega hug- leikið. Og viti menn, 30 árum seinna er búið að endurreisa spítalann á Búðum með meiri glæsibrag en nokkur hafði þorað að vona. Og læknisbústaðnum gamla er vel viðhaldið. Mórallinn er: Maður skyldi aldrei vanmeta góðar hugmyndir, hversu ólíklegt sem það er að þær verði að veruleika. Ég get ekki neitað því að ég hafði alls enga trú á að hugmyndinni yrði tekið af alvöru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.