Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 13
LÆKNAblaðið 2016/102 13
eftir FSH. Af þeim 11 sjúklingum á norðursvæði sem höfðu frá-
bendingu fyrir segaleysandi meðferð höfðu þrír haft einkenni í of
langan tíma, þrír höfðu nýlega (<1 viku) gengið í gegnum skurð-
aðgerð, þrír höfðu fyrri sögu um heilablóðfall, einn talinn vera
með illkynja sjúkdóm í lungum og aukna blæðingarhættu tengda
því og að lokum var einn sjúklingur talinn of gamall fyrir með-
ferð (áttræður). Engin frábending fannst í sjúkraskrá hjá einum
sjúklingi sem ekki fékk segaleysandi meðferð. Enginn sjúklingur
á suðursvæði fékk segaleysandi meðferð.
Heildarflutningstíminn frá FSH að Hjartagátt Landspítala
á Hringbraut fyrir sjúklinga greinda með STEMI í héraði var
skemmstur á Reykjanesi, eða að miðgildi ein klukkustund og 39
mínútur, en lengstur á Vestfjörðum og Austurlandi, um og yfir
fjórar klukkustundir. Á norðursvæði var heildarflutningstíminn
að miðgildi þrjár klukkustundir og 13 mínútur en á suðursvæði
var hann að miðgildi ein klukkustund og 44 mínútur (mynd 4).
Fjörutíu sjúklingar (95%) frá suðursvæði og 9 frá norðursvæði
gengust undir bráða kransæðaþræðingu. Víkkun á kransæð tókst
í 43 tilfella, þar af 9 innan 120 mínútna (sjá töflu III). Í tveimur
tilfellum tókst ekki að víkka kransæð, í tveimur var um útbreiddan
sjúkdóm að ræða og ekki þótti fýsilegt að framkvæma víkkun og í
tveimur tilfellum dó sjúklingur á þræðingarborðinu áður en hægt
var að víkka kransæðina. Að jafnaði liðu 42 mínútur (dreifing: 15-
119 mínútur) frá komu sjúklings á Hringbraut þar til belgur var
víkkaður.
Nítján sjúklingar voru fyrst fluttir í Fossvog, í öllum tilfellum
nema einu utan opnunartíma þræðingarstofu á Hringbraut. Þeir
gengust undir bráða kransæðaþræðingu að miðgildi 44 mínútum
(dreifing: 10-104 mínútur) síðar og tafðist víkkun kransæðar að
miðgildi um 25 mínútur borið saman við sjúklinga sem voru fluttir
beint á Hringbraut. Að minnsta kosti fjórir sjúklingar til viðbótar
hefðu náð í hjartaþræðingu innan 120 mínútna ef þeir hefðu verið
fluttir beint á Hringbraut.
R A N N S Ó K N
Mynd 2. Hvað sýndi hjartalínurit sem var tekið í héraði?
Tafla II. Lyfjameðferð við STEMI eftir landshlutum. Fjöldi einstaklinga (%).
Lyf Heild Reykjanes Vesturland Vestfirðir Norðurland
vestra
Norðurland
eystra
Austurland Suðurland Vestmannaeyjar
Acetýlsalicýlsýra 85 (98,8) 14 (100) 7 (100) 2 (100) 6 (100) 23 (100) 10 (100) 20 (95,2) 3 (100)
Klópídógrel 47 (54,7) 6 (42,9) 4 (57,1) 2 (100) 5 (83,3) 18 (78,3) 7 (70) 2 (9,5) 3 (100)
Enoxaparín 42 (48,8) 1 (7,1) 5 (71,4) 2 (100) 5 (83,3) 14 (60,9) 9 (90) 4 (19) 2 (66,6)
Heparín 10 (11,6) 0 (0) 1 (14,3) 0 (0) 1 (16,7) 7 (30,4) 0 (0) 0 (0) 1 (33,3)
Segaleysandi 32 (37,2) 0 (0) 0 (0) 2 (100) 4 (66,7) 14 (60,9) 9 (90) 0 (0) 3 (100)
Beta-hemlar 22 (25,6) 1 (7,1) 1 (14,3) 1 (50) 1 (16,7) 10 (43,3) 4 (40) 3 (14,3) 1 (33,3)
Súrefni 56 (65,1) 8 (57,1) 2 (28,6) 1 (50) 3 (50) 19 (82,6) 7 (70) 14 (66,7) 2 (66,6)
Morfín 62 (72,1) 6 (42,9) 5 (71,4) 1 (50) 4 (66,7) 17 (73,9) 8 (80) 19 (90,5) 2 (66,6)
Nitróglycerín 55 (64) 9 (64,3) 3 (42,9) 1 (50) 3 (50) 12 (52,2) 7 (70) 17 (81) 3 (100)
Mynd 3. Marktækur munur var á meðferð með enoxaparín/heparín og klópídógrels
milli landsvæða (p<0,001).
Mynd 4. Kassaritið sýnir dreifingu heildarflutningstíma (FSH að Landspítala Hring-
braut) frá mismunandi landshlutum. Efri mörk kassans tákna efri fjórðungamörk en
neðri mörk kassans tákna neðri fjórðungamörk og lárétta línan inni í kössunum táknar
miðgildi. Skeggin afmarka gildi sem teljast ekki útlagar (outliers) og deplarnir tákna
útlaga en stjörnurnar tákna mikla útlaga (extreme outliers).