Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 58

Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 58
58 LÆKNAblaðið 2016/102 Skurðlæknafélag Íslands (SKÍ) var stofnað þann 19. mars 1957 og er því ríflega 50 ára gamalt. Við stofnun var tilgangur félags- ins aðallega sá að tryggja að skurðlæknar ættu sér sameiginlegan vettvang og gætu unnið að og fylgst með framfaramálum er vörðuðu starfið. Samskipti við skurðlækna erlendis og þá einkum félaga á hinum Norðurlöndunum var stór þáttur af til- gangi félagsins. Talsverð gróska hefur einkennt starf félagsins í gegnum áratugina en eins og vænta má hefur eðli starfseminar breyst. Með aukinni sérhæfingu hafa hin ýmsu sérgreinafélög verið stofnuð og tekið yfir hluta starfsins og önnur störf bæst við. Á hálfrar aldar afmæli félagsins minntist stjórn SKÍ tímamótanna með því að gefa út Gjörðabók með fundargerðum félags- ins frá 1957-1980. Mikill fjöldi mynda frá starfi skurðlækna á þessu tímabili prýðir bókina. Árið 2006 öðlaðist Skurðlæknafélagið sjálfstæðan kjarasamningsrétt og hefur farið með eigin kjarasamninga síðan. Í litlu félagi, sem rétt losar 100 félaga og þar sem enginn stjórnarmanna þiggur laun, fylgir mikil vinna gerð kjarasamninga. Margir sameiginlegir snertifletir eru þó á kjaramálum Skurðlæknafélagsins og Læknafélags Íslands (LÍ). Samstarf stjórna þessara félaga er gott enda er SKÍ aðildar- félag innan raða LÍ og skrifstofa félaganna er sameiginleg. Róstur síðustu mánaða hafa ekki farið framhjá neinum og væri óskandi að slíkt þurfi ekki að endurtaka sig. Baráttan heldur þó áfram og góð samstaða félaga er undirstaða framfara og betri vinnuumhverfis allrar lækna- stéttarinnar. Samhliða breytingum á samningamál- um varð staða SKÍ sem aðildarfélags innan LÍ sterkara. Fjöldi félagsmanna hefur nú flutt atkvæðisrétt sinn á aðalfundi LÍ yfir til SKÍ og á félagið nú þrjá fulltrúa á aðal- fundi LÍ. Með þessu geta skurðlæknar betur tekið þátt í störfum og stefnumótun LÍ en áður. Samstarf við önnur Norðurlönd er umtalsvert og fer vaxandi með hverju ári. SKÍ er aðildarfélag elsta alþjóðlega skurð- læknafélags í heimi, Nordisk Kirurgisk Förening (NKF), en það var stofnað árið 1893. Starfsemi NKF hefur verið misvirk í tímans rás eins og gengur með forn félög með mikla sögu. Félagið stóð áður fyrir sameiginlegum vísindaþingum en í byrjun þessa áratugar var starfsemin orðin lítil og þær raddir urðu háværari sem vildu leggja félagið niður. Stjórn SKÍ var þessu mótfallin enda hefur sam- starf þetta verið félaginu og íslenskum skurðlæknum til mikilla hagsbóta. Með það að augnamiði lögðum við áherslu á að þróa samstarf við NKF inn á nýjar brautir og styrkja enn frekar tengsl SKÍ við NKF. Það var meðal annars gert með því að auka áherslu á endurmenntun og samstarf einstakra skurðlækna þvert á landamæri. Sú afstaða varð ofan á og hafa fundir nú verið haldnir tvisvar á ári undanfarið þar sem unnið hefur verið að lagabreytingum. Þannig mun hvert skurðlæknafélag bjóða upp á staði fyrir félaga innan NKF þar sem boðið verður upp á sérhæfða endur- menntun í viku í senn. Enn er unnið að málum en sem dæmi má nefna að sænska skurðlæknafélagið getur nú þegar boðið upp á 9 sérhæfðar deildir sem hægt er að heimsækja. Framtíð NKF virðist þannig tryggð og ber að fagna því. Snar þáttur í starfsemi félagsins hefur snúist um veglegt vísindaþing sem haldið er árlega. Markmið þingsins er í anda stofnenda félagsins, að rækta félagsskap íslenskra skurðlækna og um leið að skapa vettvang fyrir þá til að afla sér nýrrar þekkingar og miðla af reynslu sinni til annarra skurðlækna. Á hverju ári er fjölda erlendra fyrirlesara boðið á þingið og yngri samstarfsmönnum gefst færi á að kynna vísindaverkefni sín og treysta þannig grunn þekkingar sinnar í skurðlækningum. Fjöldi erinda er kynntur á hverju ári og ber það vitni um mikla grósku í vísindastöfum félags- manna hversu margir leggja hönd á plóg við að gera þingið sem best úr garði. Fyrirlestrar undanfarinna ára hafa fyllt tvo daga og endar þingið með sameigin- legum hátíðarkvöldverði sem að öðrum þáttum ólöstuðum er jafnan hápunktur vel heppnaðs þings. Þingið hefur verið haldið í samstarfi við félag svæfinga- og gjörgæslulækna og sum árin með félagi fæðinga- og kvensjúkdómalækna. Þinginu hefur vaxið ásmegin með hverju ári og 18. þingið verður haldið í vor í samstarfi við framangreind félög ásamt félögum skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga. Vænta má að það verði það stærsta til þessa og fjöldi félagsmanna hefur lagt mikla vinnu í undirbúning – og vonandi verður áframhaldandi gróska í starfi SKÍ félags- mönnum okkar til hagsbóta um ókomna tíð. Frá formanni Skurðlæknafélags Íslands Helgi Kjartan Sigurðsson helgiks@landspitali.is Við erum Mylan Eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi M YL 15 12 02
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.