Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 43

Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 43
Katrín Hjaltadóttir og Þórður Skúli Gunnarsson eru bæði sérnámslæknar í skurðlækningum. Þórður Skúli lýkur sínum tveggja ára námshluta nú um ára- mótin en Katrín hefur lokið 6 mánuðum. Þau segjast bæði mjög ánægð með námið þó vissulega megi gera betur. Þau segja námstímann skiptast þannig að 6 mánuðir eru á svæfingadeild og síðan eru 6 til 9 mánuðir í almennum skurð- lækningum og svo skiptist tíminn sem eftir er í þriggja mánaða lotur á skurð- deildum undirsérgreina. „Þetta er mjög góður undirbúningur fyrir áframhaldandi sérnám í Noregi og Svíþjóð og yfirleitt fæst þessi tími metinn að fullu,“ segir Þórður Skúli og Katrín bætir við að það fari þó dálítið eftir því hvaða sérgreinar skurðlækninga fólk sæki í en oftast fáist þetta alveg metið. „Einn stærsti kosturinn við námið hér er að við fáum talsverða skurðstofureynslu og örugglega meiri en fyrsta og annars árs nemar í sérnámi erlendis. Það er reyndar mjög misjafnt hversu mikið við gerum í aðgerðinni sjálfri þar sem sérfræðingurinn ber ábyrgð á henni. Þar mætti alveg vera skýrara skipulag hvað námið varðar um hvað á að kenna í hverri aðgerð. Það er alveg undir sérfræðingnum komið hvað við erum látin gera og sumir treysta deild- arlæknunum fyrir miklu en aðrir vilja gera allt sjálfir.“ Aðspurð um kostina segja þau hiklaust að nálægðin við sérfræðingana sé mikil- vægust. „Við erum heldur ekki það mörg í námstöðunum að við fáum mjög mörg tækifæri til að vinna með sérfræðingunum og gera þá sífellt meira í aðgerðunum. Gallinn er hins vegar sá að skipulag náms- ins er laust í reipunum og talsvert undir hverjum og einum námslækni komið hvað hann fær mikið út úr því. Fyrir utan vikulega fyrirlestra og róteringuna á milli skurðdeilda sem við nefndum erum við fyrst og fremst í vinnu hérna sem deildar- læknar og útkoman getur orðið svolítið misjöfn eftir einstaklingum. Það er ekki fylgst með því hvað við gerum margar aðgerðir af ákveðnu tagi og við vildum gjarnan sjá skýrari markmiðasetningu. Betri marklýsing námsins myndi tryggja að hver og einn hefði gert allt sem til er ætlast á þessum tveimur árum og að á vissum fresti væri farið yfir hvað hver og einn er búinn að gera og hvað hann á eftir. Það er hægt að verða útundan og gleymast þegar það er ekki til staðar.“ Þau segja þetta þó vera hálfgert lúxus- vandamál því samskiptin séu opin og námslæknarnir duglegir að koma sér í kennslutækifæri með sérfræðingunum. „Þeir sem hafa klárað þessi tvö ár eru yfir- leitt orðnir mjög vel færir miðað við þann tíma og eru mjög ánægðir með tímann sinn. Annar kostur við að vera hér á Land- spítala er að hann er bæði mjög lítill í samanburði við erlend háskólasjúkrahús en um leið þjóðarsjúkrahúsið. Hingað koma því öll flóknustu tilfellin sem upp geta komið og við sjáum því miklu meira en við myndum sjá nema á allra stærstu sjúkrahúsunum í Noregi og Svíþjóð. Það er auðvitað mjög dýrmæt reynsla.“ „Mörg tækifæri og mikilvæg reynsla“ „Þeir sem hafa klárað þessi tvö ár eru yfirleitt orðnir vel færir miðað við þann tíma og eru ánægðir með tímann sinn,“ segja Katrín Hjaltadóttir og Þórður Skúli Gunnarsson sér- námslæknar í skurðlækningum. U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Föstudagur 22. janúar 2016 12:00-12:05 Málþingið sett Þorvaldur Ingvarsson MD, PhD Executive VP RD ÖSSUR 12:05-12:25 Femoroacetabular impingement (FAI) Etiology of the cam-deformity and its role in osteoarthritis of the hip Páll Sigurgeir Jónasson MD, PhD Orkuhúsið 12:30-12:55 Arthroscopic treatment of the impingment of the hip with emphasis of early OA Shane J. Nho, MD, MS Assistant Professor, Rush University Medical Cente, Chicago Á undanförnum árum hafa framfarir í myndgreiningartækni haft í för með sér að nýr sjúkdómur í mjöðmum hefur litið dagsins ljós „Femoroacetabular impingement syndrome“. Þó að einkenni þessa sjúkdóms hafi verið þekkt um nokkurt skeið þá hefur lítið verið vitað um orsök hans og möguleikar til meðferðar hans á Íslandi takmarkaðir. Nýlega varði Páll Sigurgeir Jónasson læknir doktorsritgerð um sjúkdóminn og mun hann ásamt Dr. Shane Nho halda fyrirlestur á Læknadögum um orsök, afleiðingar og ekki síst meðferðaúrræði við sjúkdómnum. Orsök, afleiðingar og meðferð Femoroacetabular Impingement Syndrome Málþing í Hörpu á Læknadögum 2016 LÆKNAblaðið 2016/102 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.