Læknablaðið - 01.01.2016, Blaðsíða 39
LÆKNAblaðið 2016/102 39
Aðalstyrktaraðili Læknadaga er Vistor
en margir fleiri styðja við Læknadaga
enda er kostnaður við framkvæmdina
töluverður. „Það er ljóst að læknar munu
verða að borga meira fyrir Læknadagana
í framtíðinni enda er verð sambærilegra
símenntunarþinga miklu hærra erlendis.
Því miður er ekki hægt að bjóða 4.-6. árs
læknanemum frítt á næstu Læknadaga
eins og undanfarin ár heldur verða þeir
að greiða fyrir þátttöku, en það gjald er þó
mjög lágt og langt undir kostnaðarverði.
Við notum öll ráð til að halda kostnaði við
Læknadagana í lágmarki en kostnaður
mun hækka á næstu árum ef halda á úti
svo veglegu þingi og halda jafnvægi í
rekstri Fræðslustofnunar LÍ.“
Að endingu má nefna að árshátíð
Læknafélags Reykjavíkur verður haldin
á laugardagskvöldið eftir Læknadagana.
„Þetta er vegleg árshátíð sem kostar sitt
en er algjörlega nauðsynleg til að halda
góðum anda í stéttinni. Eins og kom fram
í desemberblaði Læknablaðsins verður ein-
ungis hægt að kaupa miða á árshátíðina
á netinu og ekki hægt að kaupa miða á
síðustu stundu heldur verður lokað fyrir
miðasölu miðvikudaginn 20. janúar. Svip-
að gildir um netskráningu á Læknadaga,
henni lýkur fimmtudaginn 14. janúar,
eftir það verður hægt að mæta á staðinn
og skrá sig á Læknadaga en það verður
dýrara. Tímanleg skráning auðveldar
skipulagningu þessara viðburða og hjálpar
til við að halda kostnaði niðri. Því er auð-
vitað einfaldast að kaupa hvorttveggja í
einu, þátttökupassa á Læknadagana og
miða á árshátíðina og vera tímanlega
búinn að því. Þetta er flottur pakki.“
„Við notum öll ráð til að halda kostnaði við Læknadagana í lágmarki,” segir Gunnar Bjarni Ragnarsson formaður framkvæmdastjórnar Læknadaga.
Árshátíð LR 2016
Laugardaginn 23. janúar í Silfurbergi
Fordrykkur kl. 19
Tveggja rétta matseðill, kaffi og koníak
Sigríður Thorlacius skemmtir með kvintett og píanó
The Band Aids, hljómsveit unglækna og læknanema
Verð 15.500 kr.
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R