Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.01.2016, Qupperneq 52

Læknablaðið - 01.01.2016, Qupperneq 52
52 LÆKNAblaðið 2016/102 Auglýst er eftir lækni í 100% stöðu Næsti yfirmaður er yfirlæknir á starfstöð. Menntunar- og hæfniskröfur: • Íslenskt lækningaleyfi, sérfræðileyfi í heimilislækningum er æskilegt • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni • Faglegur metnaður í starfi • Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Menntun og eða reynsla af stjórnun er æskileg • Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi • Ökuleyfi Stofnunin óskar eftir meðmælum. Helstu verkefni: • Almennar lækningar og heilsuvernd • Vaktþjónusta í héraði • Læknisþjónusta á sjúkra- og hjúkrunardeildum • Kennsla starfsfólks og nema • Þróun og teymisvinna • Þverfagleg samvinna innan og utan starfstöðvar Auglýst er 100% staða yfirlæknis Leitað er eftir öflugum einstaklingi sem er tilbúinn til að vinna að frekari uppbyggingu og þróun þjónustu á starfssvæðinu. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga. Menntunar- og hæfniskröfur • Íslenskt lækningaleyfi og sérfræðileyfi, æskilegt sérfræðileyfi í heimilislækningum • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og jákvæðni • Faglegur metnaður í starfi • Áreiðanleiki, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Menntun og eða reynsla af stjórnun er æskileg • Reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi • Ökuleyfi Stofnunin óskar eftir meðmælum. Helstu verkefni • Ábyrgist skipulag læknisþjónustu, bæði dag- og vaktþjónustu • Ber faglega og rekstrarlega ábyrgð • Almennar lækningar og heilsuvernd • Vaktþjónusta í héraði • Læknisþjónusta á sjúkra- og hjúkrunardeildum • Kennsla starfsfólks og nema • Þróun og teymisvinna • Þverfagleg samvinna innan og utan starfstöðvar Tekið er á móti rafrænum umsóknum á heimasíðu stofnunarinnar hsn.is eða á síðunni starfatorg.is/ Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá. Leggja skal fram staðfest afriti af opinberu starfsleyfi ásamt upplýsingum um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast í tvíriti til mannauðsstjóra HSN, Hafnarstræti 99, 600 Akureyri. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Umsóknarfrestur er til 25. janúar 2016 og eru störfin veitt skv. nánara samkomulagi. Nánari upplýsingar veita: Örn Ragnarsson, framkvæmdastjóri lækninga HSN í síma 455-4000 eða orn.ragnarsson@hsn.is og Þórhallur Harðarson, mannauðsstjóri í síma 892-3091 eða thorhallur.hardarson@hsn.is Aðgengi að tölvu og aðstoð við innskráningu umsókna stendur til boða. Heilbrigðisstofnun Norðurlands tók til starfa 15. október 2014 við sameiningu heilbrigðisstofnana á Norðurlandi annarra en Sjúkrahússins á Akureyri og nokkurra hjúkrunar- og dvalarheimila. Þessar heilbrigðisstofnanir mynduðu Heilbrigðisstofnun Norðurlands: Heilbrigðisstofnun Þingeyinga, Heilsugæslan á Akureyri, Heilsugæslan á Dalvík, Heilbrigðis-stofnunin Fjallabyggð, Heil- brigðisstofnunin Sauðárkróki og Heilbrigðisstofnunin Blönduósi. Starfsemi Heilbrigðisstofnunar Norðurlands nær frá Blönduós í vestri til Þórshafnar í austri. Á upptökusvæðinu búa um 35.000 manns og starfsmannafjöldi er rúmlega 520 talsins. Heildarvelta HSN er ríflega 4,8 milljarðar króna. Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu með hjúkrunar- og dvalarrýmum. Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) auglýsir eftir tveimur læknum á starfsstöðina á Blönduósi

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.