Læknablaðið - 01.01.2016, Page 58
58 LÆKNAblaðið 2016/102
Skurðlæknafélag Íslands (SKÍ) var stofnað
þann 19. mars 1957 og er því ríflega 50 ára
gamalt. Við stofnun var tilgangur félags-
ins aðallega sá að tryggja að skurðlæknar
ættu sér sameiginlegan vettvang og gætu
unnið að og fylgst með framfaramálum er
vörðuðu starfið. Samskipti við skurðlækna
erlendis og þá einkum félaga á hinum
Norðurlöndunum var stór þáttur af til-
gangi félagsins.
Talsverð gróska hefur einkennt starf
félagsins í gegnum áratugina en eins og
vænta má hefur eðli starfseminar breyst.
Með aukinni sérhæfingu hafa hin ýmsu
sérgreinafélög verið stofnuð og tekið yfir
hluta starfsins og önnur störf bæst við. Á
hálfrar aldar afmæli félagsins minntist
stjórn SKÍ tímamótanna með því að gefa
út Gjörðabók með fundargerðum félags-
ins frá 1957-1980. Mikill fjöldi mynda frá
starfi skurðlækna á þessu tímabili prýðir
bókina.
Árið 2006 öðlaðist Skurðlæknafélagið
sjálfstæðan kjarasamningsrétt og hefur
farið með eigin kjarasamninga síðan. Í
litlu félagi, sem rétt losar 100 félaga og þar
sem enginn stjórnarmanna þiggur laun,
fylgir mikil vinna gerð kjarasamninga.
Margir sameiginlegir snertifletir eru þó
á kjaramálum Skurðlæknafélagsins og
Læknafélags Íslands (LÍ). Samstarf stjórna
þessara félaga er gott enda er SKÍ aðildar-
félag innan raða LÍ og skrifstofa félaganna
er sameiginleg. Róstur síðustu mánaða
hafa ekki farið framhjá neinum og væri
óskandi að slíkt þurfi ekki að endurtaka
sig. Baráttan heldur þó áfram og góð
samstaða félaga er undirstaða framfara
og betri vinnuumhverfis allrar lækna-
stéttarinnar.
Samhliða breytingum á samningamál-
um varð staða SKÍ sem aðildarfélags innan
LÍ sterkara. Fjöldi félagsmanna hefur nú
flutt atkvæðisrétt sinn á aðalfundi LÍ yfir
til SKÍ og á félagið nú þrjá fulltrúa á aðal-
fundi LÍ. Með þessu geta skurðlæknar
betur tekið þátt í störfum og stefnumótun
LÍ en áður.
Samstarf við önnur Norðurlönd er
umtalsvert og fer vaxandi með hverju ári.
SKÍ er aðildarfélag elsta alþjóðlega skurð-
læknafélags í heimi, Nordisk Kirurgisk
Förening (NKF), en það var stofnað árið
1893. Starfsemi NKF hefur verið misvirk
í tímans rás eins og gengur með forn
félög með mikla sögu. Félagið stóð áður
fyrir sameiginlegum vísindaþingum en
í byrjun þessa áratugar var starfsemin
orðin lítil og þær raddir urðu háværari
sem vildu leggja félagið niður. Stjórn
SKÍ var þessu mótfallin enda hefur sam-
starf þetta verið félaginu og íslenskum
skurðlæknum til mikilla hagsbóta. Með
það að augnamiði lögðum við áherslu á að
þróa samstarf við NKF inn á nýjar brautir
og styrkja enn frekar tengsl SKÍ við NKF.
Það var meðal annars gert með því að
auka áherslu á endurmenntun og samstarf
einstakra skurðlækna þvert á landamæri.
Sú afstaða varð ofan á og hafa fundir nú
verið haldnir tvisvar á ári undanfarið þar
sem unnið hefur verið að lagabreytingum.
Þannig mun hvert skurðlæknafélag bjóða
upp á staði fyrir félaga innan NKF þar
sem boðið verður upp á sérhæfða endur-
menntun í viku í senn. Enn er unnið að
málum en sem dæmi má nefna að sænska
skurðlæknafélagið getur nú þegar boðið
upp á 9 sérhæfðar deildir sem hægt er að
heimsækja. Framtíð NKF virðist þannig
tryggð og ber að fagna því.
Snar þáttur í starfsemi félagsins
hefur snúist um veglegt vísindaþing
sem haldið er árlega. Markmið þingsins
er í anda stofnenda félagsins, að rækta
félagsskap íslenskra skurðlækna og um
leið að skapa vettvang fyrir þá til að afla
sér nýrrar þekkingar og miðla af reynslu
sinni til annarra skurðlækna. Á hverju
ári er fjölda erlendra fyrirlesara boðið
á þingið og yngri samstarfsmönnum
gefst færi á að kynna vísindaverkefni
sín og treysta þannig grunn þekkingar
sinnar í skurðlækningum. Fjöldi erinda
er kynntur á hverju ári og ber það vitni
um mikla grósku í vísindastöfum félags-
manna hversu margir leggja hönd á plóg
við að gera þingið sem best úr garði.
Fyrirlestrar undanfarinna ára hafa fyllt
tvo daga og endar þingið með sameigin-
legum hátíðarkvöldverði sem að öðrum
þáttum ólöstuðum er jafnan hápunktur
vel heppnaðs þings. Þingið hefur verið
haldið í samstarfi við félag svæfinga- og
gjörgæslulækna og sum árin með félagi
fæðinga- og kvensjúkdómalækna. Þinginu
hefur vaxið ásmegin með hverju ári og 18.
þingið verður haldið í vor í samstarfi við
framangreind félög ásamt félögum skurð-
og svæfingahjúkrunarfræðinga. Vænta
má að það verði það stærsta til þessa
og fjöldi félagsmanna hefur lagt mikla
vinnu í undirbúning – og vonandi verður
áframhaldandi gróska í starfi SKÍ félags-
mönnum okkar til hagsbóta um ókomna
tíð.
Frá formanni
Skurðlæknafélags Íslands
Helgi Kjartan
Sigurðsson
helgiks@landspitali.is
Við erum Mylan
Eitt stærsta samheitalyfjafyrirtæki í heimi
M
YL
15
12
02