Læknablaðið - 01.02.2016, Blaðsíða 34
94 LÆKNAblaðið 2016/102
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
Á málþingi á Læknadögum um nýjungar
í meðferð lungnasjúkdóma flutti dr.
Jonathan Fuld frá Cambridge á Englandi
erindi um notkun áreynsluprófa við
greiningu á mæði.
„Áreynslupróf er rannsókn sem mælir
afkastagetu lungna, hjarta og vöðva undir
álagi. Prófið mælir álag á hjarta og æða
kerfi, öndunarfæri og vöðva og nýtist til
dæmis þegar meta á hvort sjúklingur er
hæfur til að gangast undir skurðaðgerð
eða meiriháttar inngrip af öðru tagi.
Skurðaðgerð margfaldar álag á líkamann
og fyrir veikburða gamalt fólk eða alvar
lega veika sjúklinga er mikilvægt að meta
fyrirfram hvort það ráði við slíkt inngrip,“
segir dr. Fuld.
„Við notum einnig prófið í þeim tilfell
um þegar sjúklingur er haldinn mæði af
óútskýrðum orsökum. Ef lungnamynd og
öndunarmælingar eru eðlilegar eru allar
líkur á því að sjúklingurinn sé ekki með
alvarlegan lungnasjúkdóm. Engu að síður
er mæðin til staðar og þá kemur prófið að
góðum notum við að finna tengslin á milli
hjarta, öndunar og vöðva.
Þá nýtist prófið einnig vel þegar um er
að ræða sjúklinga með þekktan sjúkdóm
eins og míturlokuleka eða langvinna
lungnateppu og læknirinn vill vita hvað
er best að gera. Hugsanlega er aðgerð á
Mælir
afkastagetu
lungna,
hjarta og
vöðva
sinna meiri kennslu en áður þar sem
mönnun sérfræðinga á deildinni er góð
núna. Það verður þó alltaf nauðsynlegt
að taka einhvern hluta af sérnáminu
erlendis þó við bætum í það sem fyrir
er. En lengri tími hér heima hentar sér
staklega þeim íslensku unglæknum sem
hafa stundað læknanámið erlendis og
vilja gjarnan koma heim og taka fyrri
hluta sérnámsins hér. Tvö ár er kannski
fullstuttur tími fyrir þá að flytja heim
og síðan út aftur til að ljúka sérnáminu.
Síðan eru örfá dæmi um sérnámslækna
sem hafa lokið fyrrihluta námsins
erlendis og fengið að ljúka því hér hjá
okkur. Hvernig sérnámið skiptist niður
á þessa 60 mánuði er reyndar dálítið
misjafnt eftir greinum. Það er alls ekki
ófrávíkjanleg regla að sérnámið skiptist
í þriggja ára fyrrihluta og tveggja ára
seinnihluta. Okkar skipulag hefur komið
vel út að ljúka tveimur árum hér og taka
síðan tvö ár úti. Við vildum gjarnan
geta boðið þriggja ára námstíma en það
er takmörkunum háð. Skurðlækningar
hafa verið hefðbundinn hluti af sérnámi
í kvensjúkdóma og fæðingarlækningum
en það er að breytast eftir því sem þetta
hefur skipst í tvær meira aðskildar sér
greinar. Í gömlu reglugerðinni var krafa
um eitt ár á skurðdeild sem hluta af
sérnáminu en á Norðurlöndunum er
búið að stytta það í 6 mánuði og í Bret
landi svo dæmi sé tekið er algjörlega
búið að taka skurðlækningarnar út.
Samkvæmt nýju reglugerðinni er ekki
krafa um skurðlækningar. Að mínu mati
er það fulllangt gengið þar sem fólk er
ekki alltaf strax í upphafi búið að ákveða
hvora leiðina það ætlar að velja sér en
það er mikilvægt að hafa þekkingu og
nokkra þjálfun af skurðdeild ef leggja á
fyrir sig kvensjúkdómalækningar. Það
skiptir kannski minna máli ef stefnan
er sett á fæðingarhjálp, mæðravernd
og sónarskoðun. Á stærri spítölum er
þetta orðið alveg aðskilið og þegar við
bætist sérhæfing í undirgreinum kven
sjúkdóma og fæðingarlækninga er ekki
hægt að ætlast til að þess að hver og
einn kunni skil á öllu. Langflestir þeirra
sérfræðinga sem eru að koma heim eru
með undirsérgrein, eins og krabba
meinslækningar kvenna, sónarskoðun,
ófrjósemi, svo eitthvað sé nefnt.“
Það leiðir kannski að líkum að fleiri
konur en karlar sækja í þessa tilteknu
sérgrein. Kristín segir það miður að
ekki skuli fleiri karlar sækja í greinina
en fyrir því séu ýmsar ástæður. „Yngri
konur vilja stundum síður láta karla
skoða sig og því upplifa þeir stundum
sem þeir séu settir til hliðar. Þá eru ein
faldlega fleiri konur en karlar í námi
í læknisfræði í dag og þessi sérgrein
höfðar kannski frekar til kvennanna svo
allt hefur þetta áhrif. Að mínu mati er
æskilegt að sérgreinin bjóði upp á bæði
karlkyns og kvenskyns sérfræðilækna.“
FRÁ ÖLDUNGADEILD
Fyrirlesari á febrúarfundi verður Ólafur Gíslason listfræðingur.
Erindi hans nefnist: Mannslíkaminn í myndlistinni.
Á fundinum í mars verður Auðólfur Gunnarsson með fyrirlestur sem hann nefnir:
Magnús Eiríksson frater, frumherji í jafnréttisbaráttu kvenna, einherji sannleikans.
Síðan mun Magnús Jónsson sagnfræðingur ræða um Orkneyjar á fundinum í apríl.
Fundir eru jafnan fyrsta miðvikudag hvers mánaðar
og hefjast kl. 16, en kl. 15.30 fáum við okkur kaffi og vínarbrauð.