Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.02.2016, Síða 37

Læknablaðið - 01.02.2016, Síða 37
LÆKNAblaðið 2016/102 97 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R vera vel undirbúinn fyrir þetta starf svo maður geti notið þess fremur en vera stöð­ ugt kvíðinn yfir að upp komi tilfelli sem maður stendur ráðþrota frammi fyrir.“ Ekki þvingandi að vera alltaf á vaktinni Hann segir það heillandi tilhugsun að geta mótað starfið og starfsvettvanginn þannig að falli að hugmyndum þeirra skötuhjúa um lífsstíl. „Ég er ekki alinn upp í sveit en hef verið hestamaður frá barnsaldri og stundað eins konar hobbíbúskap með fjöl­ skyldunni. Unnusta mín er úr sveit og vill þetta mjög gjarnan þó hún sé lögmaður og þurfi starfsins vegna fremur að vinna í þéttbýli. Hún getur unnið hvar sem er með tölvu og síma og svo er bara ekk­ ert mál að skreppa í bæinn þó fólk búi utan höfuðborgarsvæðsins. Þetta stýrir ákvörðun minni um sérnám að miklu leyti. Ég finn mig best í samfélagi þar sem ég þekki fólkið persónulega og veit hver fjölskyldusaga þess er. Þetta upplifi ég ólíkt því að starfa á heilsugæslustöð á höfuðborgarsvæðinu. Mér finnst þetta ótvíræður kostur. Starfið er hins vegar bindandi og í litlu samfélagi ertu læknir­ inn hvar sem þú kemur og í rauninni alltaf á vaktinni. Þetta finnst mér ekki slæmt þó öðrum kunni að finnast það þvingandi. Takist það að eiga gott samband við sam­ félagið sitt held ég þetta geti verið mjög gefandi starf. Ég sé líka fyrir mér að geta farið tímabundið í störf á bráðadeildinni eða annars staðar til að hlaða batteríin og endurnýja þekkinguna.“ Jafnvægi milli fjölskyldu og vinnunnar Aðspurður um hvort þau hjónaleysin séu farin að skoða jarðir á ákveðnum svæðum brosir Steinþór, en segir að þau séu bæði Sunnlendingar og horfi kannski mest til Suðurlandsins. „Þeir sem við höfum rætt við og sagt frá áætlunum okkar taka vel í þær og ýja margir hverjir að því að fljót­ lega fari að vanta lækni í héraðið. Þörfin fyrir lækna er greinilega víða á lands­ byggðina og margt mjög álitlegt í boði þegar kemur að því að sækjast eftir starfi og þar með stað til að búa á. Það er heldur alls ekki þannig alls staðar að aðeins einn læknir sé starfandi á hverju svæði fyrir sig. Víða eru heilsugæslustöðvar með nokkrum læknum sem skipta með sér vöktunum og þá er vinnutíminn orðinn eðlilegur.“ Hann segist alls ekki vera einn um að hugsa svona og ungir læknar séu margir hverjir að velta einhverju svipuðu fyrir sér. „Ég veit reyndar ekki um marga sem hafa tekið sambærilega ákvörðun en við erum tvö sem erum í þessu bráðalækninganámi við AustralAsian College of Emergency Medicine. Hinn nemandinn er reyndar búin með heimilislækningarnar og er því komin lengra en ég. Ég hef fengið mjög já­ kvæð viðbrögð frá yngri og eldri kollegum þegar þessi samsetning á sérnámi er rædd og hér á bráðadeildinni eru margir mjög færir sérfræðingar í bráðalækningum sem vilja mjög gjarnan þjálfa fleiri í bráðalækn­ ingum. Þekkingin er sannarlega til staðar og eftirspurnin virðist einungis aukast.“ Steinþór orðar þetta ágætlega að lokum þegar hann segir að sífellt fleiri af jafnöldrum hans, læknismenntuðum og öðrum, kjósi að móta sér lífsstíl og laga síðan vinnuna að honum fremur en á hinn veginn. „Það er líka mjög eðlilegt í mínum huga að gera þetta svona og það þýðir alls ekki að vinnan skipti minna máli, maður vill bara hafa líf sitt í jafnvægi.“ „Mér finnst skipta verulegu máli að vera vel undirbúinn fyrir þetta starf svo maður geti notið þess fremur en vera stöðugt kvíðinn yfir að upp komi tilfelli sem maður stendur ráð- þrota frammi fyrir,“ segir Steinþór Runólfsson sem stefnir á héraðslækningar í framtíðinni.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.