Morgunblaðið - 15.12.2016, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 5. D E S E M B E R 2 0 1 6
Stofnað 1913 294. tölublað 104. árgangur
VETTVANG-
UR FYRIR
KONUR
BOEING ÆTLAR
EKKI AÐ
LÆKKA FLUGIÐ
FJÖLBREYTT
UMJFÖLLUN UM
NÝJAR BÆKUR
VIÐSKIPTAMOGGINN SÉREFNI 56-69DAGLEGT LÍF 14
Fyrra hverfli Þeistareykjavirkjunar var skipað
upp á flutningavagn í Húsavíkurhöfn í gær.
Hverfillinn vegur 134 tonn og rafall sem var í
sömu sendingu frá Japan 100 tonn. Vagnlestin
fór af stað til Þeistareykja undir kvöld. Mesti
spenningurinn var fyrir því hvort lestin kæmist
upp fyrsta áfangann, á Grjótháls. Tveir trukkar
drógu vagninn upp brekkuna og sá þriðji ýtti á
eftir. Tækið komst klakklaust í virkjunina.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
134 tonna hverfill komst á Þeistareyki
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Ný könnun sem Samtök ferðaþjón-
ustunnar (SAF) hafa gert meðal að-
ildarfyrirtækja sinna varpar ljósi á
versnandi rekstrarhorfur fyrirtækja í
greininni. Þar kemur fram að for-
svarsmenn um fjórðungs þeirra fyrir-
tækja sem þátt tóku í könnuninni
telja að rekstrarafkoman verði á núlli
eða röngum megin við það á árinu
2016. Er það töluvert meiri fjöldi en í
sambærilegri könnun í fyrra þegar
hlutfallið var um 17%.
Helga Árnadóttir, framkvæmda-
stjóri SAF, segir að könnunin komi
ekki á óvart, margt í ytri aðstæðum
ferðaþjónustunnar reyni mjög á. Á
sama tíma og ferðamönnum fjölgar ár
frá ári séu rekstrarskilyrði greinar-
innar ekki að batna heldur þvert á
móti. Bendir hún á að krónan hefur
styrkst um 16% það sem af er þessu
ári. „Á sama tíma hefur ársbreyting
launa til hækkunar verið um 10%.
Könnunin gefur til kynna að þessir
þættir séu að saxa meira og meira á
afkomuna,“ segir Helga.
Hún nefnir einnig miklar fjárfest-
ingar og uppbyggingu innviða sem
fyrirtæki í greininni hafa ráðist í til að
koma til móts við aukinn fjölda ferða-
manna og um leið styrkt undirstöður
hagkerfisins. Þær fjárfestingar námu
um 62 milljörðum í fyrra. „Hér reynir
mjög á fyrirtækin hversu hátt vaxta-
stigið er. Þetta eru oftar en ekki lítil
fyrirtæki sem sækja lánsfé sitt á inn-
lendan markað. Hátt vaxtastig hefur
því mikil áhrif. Fréttir af stýrivaxta-
lækkun Seðlabankans eru jákvæðar
en vaxtamunur við útlönd er enn
mjög mikill. Það eitt og sér dregur
mjög úr samkeppnishæfni landsins,“
segir Helga. »ViðskiptaMogginn
Harðnar á dalnum
Fleiri ferðaþjónustufyrirtæki munu skila tapi í ár en í fyrra
Sterkari króna og hár fjármagnskostnaður reyna á þolrifin
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Uppgjör Þrátt fyrir aukinn fjölda
ferðamanna er reksturinn í járnum.
Undanfarið
hefur Forlagið
látið breyta í
rafbækur
fjölda eldri
bóka. Verkið er
unnið af ind-
versku fyrir-
tæki sem fær
send eintök
bókanna, skannar textann og skilar
síðan á rafrænu sniði tilbúnum til
rafrænnar útgáfu.
Þegar hafa verið unnir um tvö
hundruð titlar á þennan hátt.
Áhersla er lögð á bækur höfunda
Forlagsins sem eiga stór höfundar-
verk, til að mynda verk Einars Más
Guðmundssonar, Einars Kárasonar
og Auðar Jónsdóttur, sem mörg
hafa verið með öllu ófáanleg og
hefðu líklega aldrei verið prentuð
að nýju. »26
Indverjar breyta
gömlum skáldverk-
um í rafbækur
Sigurður Ingi
Jóhannsson, for-
sætisráðherra og
formaður Fram-
sóknarflokksins,
segir framsókn-
armenn vel geta
hugsað sér
áframhaldandi
samstarf við
Sjálfstæðisflokk-
inn „en þá á
breyttum grunni. Það er enginn að
tala um að þó svo að þessir tveir
flokkar störfuðu áfram og ein-
hverjir aðrir kæmu þar að, þá sé
verið að setja þriðja hjól undir sam-
starfið. Það yrði auðvitað ný ríkis-
stjórn á nýjum grunni,“ segir hann í
viðtali við Morgunblaðið. Fram-
sóknarmenn fagna 100 ára afmæli
flokksins á morgun. »24
Samstarf áfram
á nýjum grunni
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Það eru viss vonbrigði að sjó-
menn hafi í annað sinn á árinu fellt
kjarasamninga við útgerðarfyrir-
tæki innan Samtaka fyrirtækja í
sjávarútvegi. Þetta segir Val-
mundur Valmundsson, formaður
Sjómannasambands Íslands. Ótíma-
bundið verkfall sjómanna á fiski-
skipum hófst kl. 20 í gærkvöldi.
Heiðrún Lind Marteinsdóttir,
framkvæmdastjóri Samtaka fyrir-
tækja í sjávarútvegi, segir að út-
gerðin hafi komið verulega til móts
við kröfugerð sjómanna. »4
Felldu tvisvar og eru
komnir í verkfall
dagar til jóla
9
Pottaskefill kemur í kvöld
www.jolamjolk.is
Síðumúla 30
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
GÆÐA VÍNGLÖS TVENNUTILBOÐSJÚKRAÞJÁLFARI
21.60020%KYNNINGARAFSLÁTTUR20%JÓLAFSLÁTTUR
FUSSENEGGER
Kristín Gísladóttir
sjúkraþjálfari aðstoðar við
val á rúmdýnum.
DÚNSÆNG OG KODDIÍ DAG 16-18SÆNGURFATNAÐUR
Opið alla daga til
kl. 20.00 fram að jólum