Morgunblaðið - 15.12.2016, Qupperneq 6
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Á síðasta fundi stjórnar Faxaflóahafna voru
kynnt frumdrög Yrkis arkitekta varðandi
rýmisathugun og umferðarmál í Gömlu höfn-
inni í Reykjavík, frá Hörpu við Austurbakka
að Vesturbugt.
Á fundinum gerðu hafnarstjóri og skipu-
lagsfulltrúi grein fyrir þeirri vinnu sem unnin
hefur verið. Hafnarstjórn samþykkti að
kynna efnið fyrir umhverfis- og skipulagsráði
Reykjavíkurborgar og fyrirtækjum í hafn-
sækinni ferðaþjónustu, svo sem hvalaskoð-
unarfyrirtækjunum.
„Höfnin var og er lífæð samfélagsins í
borginni. Í dag iðar höfnin af annars konar
lífi,“ segir í kynningu Yrkis arkitekta. Þetta
eru orð að sönnu. Gamla höfnin er eitt mik-
ilvægasta svæði Reykjavíkur frá fyrstu tíð og
hefur á seinni árum haft gríðarlegt aðdrátt-
arafl fyrir erlenda ferðamenn.
Í tillögunum er gert ráð fyrir gönguleið,
Hafnarhringnum, meðfram höfninni, alveg
frá Hörpu út að Þúfu, sem er á svæði HB
Granda á Norðurgarði. Lagt er til að göngu-
leiðin verði máluð, er í brúnum lit í tillög-
unni. Jafnframt er lagt til að létt rafknúin
farartæki geti ferðast á Hafnarhringnum.
Á Miðbakka, gegnt Hafnarhúsinu, er gerð
tillaga um að rísi þjónustuhús fyrir ferða-
menn, líkt húsinu sem er á Skarfabakka.
Minni skemmtiferðaskip liggja jafnan við
Miðbakka og er hinu nýja húsi ætlað að
þjónusta farþega skipanna. Þarna verði jafn-
framt stæði fyrir rútur enda stuttar göngu-
leiðir þaðan um hafnarsvæðið. Á þessu svæði
eru núna bílastæði. Bílastæðum myndi því
fækka talsvert verði þessar tillögur að veru-
leika.
Matarmarkaðir og tónleikar
Milli hins nýja húss og Brim-hússins á
Miðbakka, sem Skipaútgerð ríkisins reisti á
sínum tíma, gætu komið tímabundnir við-
burði, t.d. matarmarkaðir og jólaviðburðir.
Þar væri einnig hægt að halda aðra viðburði,
svo sem tónleika. Mögulegt væri að reisa
svið við austurenda Brim-hússins.
Upp af Ægisgarði, austan við Slippinn, er
gerð tillaga um að rísi þyrping sölu- og þjón-
ustuhúsa í stað ósamstæðra söluskúra hvala-
skoðunarfyrirtækja sem nú standa þar. Einn-
ig er gerð tillaga um söluhús við Vesturbugt,
í nágrenni Sjóminjasafnsins.
Tillögur arkitektanna eru unnar að beiðni
Faxaflóahafna. „Þetta eru frumhugmyndir
sem meiningin er að kynna fyrir skipulaginu
og svo hvalaskoðunarfyrirtækjunum,“ segir
Gísli Gíslason hafnarstjóri.
Hægt er að kynna sér hugmyndir Yrkis
arkitekta á heimasíðu Faxaflóahafna undir
liðnum fundargerðir.
Þar sést vel hversu ótrúlega fjölbreytt
starfsemi er nú þegar fyrir hendi við Gömlu
höfnina í Reykjavík.
Teikning/Yrki arkitektar
Við Slippinn Hugmynd um sölu- og þjónustuhús. Útlit tekur mið af horfnum byggingum við Kolasund.
Gamla höfnin fái andlitslyftingu
Tillögur um nýjar byggingar við höfnina Ósamstæðir skúrar hverfi Hafnarsvæðið iðar af lífi
Miðbakki Hugmynd að útliti á nýju þjónustuhúsi við Gömlu höfnina.
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Kirkjuheimsóknir skólabarna eru
hluti af aðventunni víða. Í Hallgríms-
kirkju er tekið á móti tveimur til fjór-
um skólahópum á dag, frá lokum nóv-
ember fram til 22. desember. Þar er
farið með börnin í gegnum sýninguna
Jólin hans Hallgríms sem er um jól
Hallgríms Péturssonar þegar hann
var lítill strákur á 17. öld. Sýningin
var fyrst á Þjóðminjasafninu en er nú
annað árið í röð í Hallgrímskirkju.
„Á sýningunni segi ég þeim frá því
hvernig jólin voru í gamla daga og
jólasöguna í gegnum söguna hans
Hallgríms. Svo fá þau að leika sér
með munina sem fylgja sýningunni,
leggi og bein, og skoða þessa litlu
baðstofu sem við höfum sett upp á
annarri hæð kirkjunnar,“ segir Inga
Harðardóttir, æskulýðsfulltrúi Hall-
grímskirkju. Hún segir flesta já-
kvæða út í heimsóknir skólahópanna.
„Ég held að fólki finnist gott að fá
mótvægi við allar jólasveinasögurn-
ar. Börnin eru forvitin og líka mjög
vel að sér, þau þekkja bæði jólasög-
una og jólasveinana mjög vel,“ segir
Inga.
Ljósapera og spil
Í Árbæjarkirkju og Hjallakirkju er
líka heilmikið um skólaheimsóknir á
aðventunni en ekkert barn fær að
fara í þær nema með samþykki for-
eldra. Sr. Sigfús Kristjánsson,
sóknarprestur í Hjallakirkju, segir að
auk þess að syngja og fara yfir jóla-
söguna þá fari þau í leik þar sem org-
anistinn spilar lög og börnin reyna að
þekkja þau, það þyki þeim gaman. Í
sókninni eru tveir grunnskólar og
kemur annar með alla nemendur í að-
ventuheimsókn á meðan hinn kemur
aðeins með yngsta stigið. Sigfús segir
að kirkjan taki líka á móti leikskólum
en þeim hafi fækkað síðan umræður
um kirkjuheimsóknir skólabarna
fóru á flug.
Heimsóknin í Árbæjarkirkju tekur
um 25 mínútur og eru aðallega
sungnir almennir jólasöngvar og far-
ið í jólasöguna út frá myndum. „Hér
er ekkert trúboð, við eigum saman
góða stund, syngjum og hlustum á
krakkana,“ segir sr. Þór Hauksson,
sóknarprestur í Árbæjarkirkju.
„Krökkunum þykir þetta mjög gam-
an. Í morgun vorum við að tala um
Bráðum koma blessuð jólin og ég
spurði hvort þau fengju kerti og spil í
jólagjöf og þá sagði einn: „Nei, en það
getur verið að við fáum ljósaperu og
spil“,“ segir Þór og hlær.
Morgunblaðið/Eggert
Kirkjuheimsókn Börn í þriðja bekk Selásskóla í Reykjavík heimsóttu Árbæjarkirkju í gærmorgun.
Mótvægi við jólasveinajól
Skólahópum boðið á sýningu, syngja jólalög og fara í leiki
Verjendur Hlínar Einarsdóttur og
Malínar Brand kröfðust þess í gær
að fallið yrði frá þeim hluta ákæru
gegn þeim sem tengist fjárkúgun
vegna meintrar nauðgunar.
Fyrirtaka í fjárkúgunarmálum
systranna, sem m.a. beindust gegn
Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni
fyrrverandi forsætisráðherra, fór
fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Verjandi Hlínar hafði farið
fram á lokað réttarhald vegna þess
ákæruliðar sem snýr að meintri
nauðgun. Vegna frávísunarkröf-
unnar var aftur á móti ákveðið að
bíða með úrskurð um lokað rétt-
arhald þangað til í lok janúar. Ekki
þykja líkur á að óskað verði eftir því
að Sigmundur Davíð beri vitni.
Vildu frávísun í máli
Malínar og Hlínar
Fyrirtaka í fjárkúgunarmáli í gær
Morgunblaðið/Eggert
Frávísun Farið var fram á frávísun
eins ákæruliðar gegn systrunum.
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða
starfsmann?