Morgunblaðið - 15.12.2016, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Það er erfitt að lýsa framgönguýmissa á vinstrivængnum á
annan hátt en þann að þeir stjórn-
ist af pólitískri heift.
Væru þeir á hægrivængnumfengju þeir sjálfsagt stimp-
ilinn öfgamenn.
Álfheiður Inga-dóttir, fyrr-
verandi þingmað-
ur Vinstri grænna
og heilbrigð-
isráðherra, hafnar
því til dæmis al-
farið að flokk-
urinn fari í stjórn
með Sjálfstæð-
isflokknum.
Þann flokk uppnefnir hún„brennuvarginn“ í viðleitni til
að rökstyðja heiftina.
Vinstri grænir og Samfylkingstóðu fyrir pólitískum rétt-
arhöldum fyrir fáeinum árum,
höguðu atkvæðagreiðslu um
ákæru þannig að þeirra ráðherrar
slyppu en sá sem gegndi embætti
formanns Sjálfstæðisflokksins
ekki.
Þetta var fordæmislaust ogþarna var heiftin ráðandi.
Þrátt fyrir þessi ógeðfelldu póli-tísku réttarhöld hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki hafnað því
að eiga stjórnarsamstarf við þá
sem fyrir þeim stóðu.
Þar á bæ, og á sumum öðrumbæjum sem betur fer, ræður
heiftin ekki för.
Heiftin hefur átt þátt í aðhindra stjórnarmyndun nú.
Er ekki mál að linni?
Álfheiður
Ingadóttir
Pólitísk heift
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 14.12., kl. 18.00
Reykjavík 5 skýjað
Bolungarvík 4 rigning
Akureyri 5 skýjað
Nuuk -12 léttskýjað
Þórshöfn 8 rigning
Ósló -9 heiðskírt
Kaupmannahöfn 0 heiðskírt
Stokkhólmur 0 heiðskírt
Helsinki -3 skýjað
Lúxemborg 5 þoka
Brussel 8 þoka
Dublin 6 rigning
Glasgow 9 rigning
London 10 þoka
París 7 heiðskírt
Amsterdam 8 þoka
Hamborg 5 þoka
Berlín 4 skýjað
Vín 1 rigning
Moskva -8 snjóél
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 9 þoka
Barcelona 15 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 14 léttskýjað
Aþena 3 heiðskírt
Winnipeg -22 léttskýjað
Montreal -5 snjóél
New York 3 léttskýjað
Chicago -10 alskýjað
Orlando 20 þoka
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. desember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:17 15:30
ÍSAFJÖRÐUR 12:03 14:54
SIGLUFJÖRÐUR 11:48 14:35
DJÚPIVOGUR 10:56 14:50
Tilbúnar smákökur og tilbúið smá-
kökudeig seljast betur fyrir þessi jól
en áður. Þrátt fyrir það taka al-
mennar bökunarvörur líka sölukipp
svo allt bendir til þess að fólk standi
enn í heimabakstri fyrir hátíðina.
„Möndlumjöl er mjög vinsælt í ár
auk þessara klassísku grunnvara
eins og suðusúkkulaðis, hveitis og
daðla. Það selst alltaf vel af hráefn-
um í sörur og lakkrísmarengs-
toppa,“ segir Ósk Heiða Sveinsdótt-
ir, markaðsstjóri Krónunnar, spurð
hvaða bökunarvörur seljist best
núna. Hún segir söluna í bökunar-
vörum svipaða núna og undanfarin
ár en þau sjái hins vegar að fólk er
að kaupa meira af tilbúnu smáköku-
deigi enda sé líka orðið meira úrval
af því. Krónan selur nú í fyrsta skipti
tilbúið smákökudeig frá 17 sortum
og hefur deig með piparbrjóstsykri
og hvítu súkkulaði rokið út.
Guðmundur Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, segir að lang-
mesta salan sé í tilbúnum piparkök-
um og sé hún meiri en í fyrra.
„Bónus piparkökurnar kláruðust í
byrjun desember en magnið hefði
venjulega átt að duga fram að jólum.
Innflutningur er líka á betra verði en
í fyrra og það virðist skipta máli,“
segir Guðmundur, piparkökudeigið
sé líka vinsælast í tilbúna kökudeig-
inu. „Bökunarvörusalan sýnir að fólk
er enn að baka fyrir jólin en ég er
búinn að vera í þessu lengi og þegar
ég var að byrja í Bónus var ekki
svona mikil sala í tilbúnum kökum.
Þá var fólk miklu meira að baka en í
dag, en nú er innflutningur og til-
búnar kökur orðnar stór partur af
þessu.“
Munnbitar með kaffinu
Margrét Sigfúsdóttir, skólastjóri
Hússtjórnaskólans í Reykjavík, seg-
ir að fólk virðist alltaf halda í þá hefð
að baka fyrir jólin þó að magnið sé
kannski ekki það sama og áður. Hún
hefur ekki orðið vör við að það sé ein
smákökutegund vinsælli fyrir þessi
jól en önnur en segir þó sörur og
lakkrístoppa alltaf vinsæla. Hún lít-
ur þó á þær tegundir meira sem sæl-
gæti en kökur.
Margrét segir að sú hefð virðist
vera hverfandi að fólk sé með stór
kökuhlaðborð yfir jólahátíðina, enda
maturinn svo mikill, og því sé gott að
eiga litlar smákökur til að stinga upp
í sig með kaffinu. ingveldur@mbl.is
Smákökudeig ryður sér til rúms
Margir baka smákökur fyrir jólin Efni í sörur og lakkrístoppa selst alltaf vel
Morgunblaðið/Ófeigur
Bökunarvörur Talsvert úrval er af tilbúnum smákökum og tilbúnu deigi.
Frístundakort Reykjavíkurborgar
sem verið hefur 35.000 krónur
hækkar í 50.000 krónur nú um ára-
mótin. Frístundakortið er styrkja-
kerfi í frístundastarfi fyrir 6-18 ára
börn og unglinga með lögheimili í
Reykjavík. Hægt er að nýta sér
styrkinn fyrir íþrótta-, lista og tóm-
stundastarf. Í tilkynningu frá borg-
inni kemur fram að Dagur B. Egg-
ertsson borgarstjóri og Ingvar
Sverrisson, formaður ÍBR, hafi und-
irritað samninginn í gær og tekur
hann gildi 1. janúar.
Þar segir einnig að nýting frí-
stundakortsins sé góð og nýta lið-
lega 80 prósent ungmenna í Reykja-
vík sér styrkinn til tómstunda-
iðkunar. Í samningnum kemur fram
að íþróttafélögin muni leita allra
leiða til að vinna gegn því að efna-
hagsleg staða barna og fjölskyldna
þeirra ráði því hvort börn geti tekið
þátt í skipulögðu íþróttastarfi.
Frístundastyrkur
hækkar í borginni
Fer úr 35 í 50 þúsund krónur
Morgunblaðið/Kristinn
Hækkaður Frístundastyrkur verð-
ur 50 þúsund krónur eftir hækkun.
Láttu okkur ráða
Elja starfsmannaþjónusta 4 150 140 elja.is elja@elja.is
Þarftu að ráða
öryggisvörð?