Morgunblaðið - 15.12.2016, Side 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Alhliða þjónusta fyrir vökvadælur
og vökvamótora
Sala - varahlutir - viðgerðir
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
„Þarna er margslungið samspil og
við þekkjum ekki tengslin á milli
allra þátta,“ segir Guðmundur J.
Óskarsson, fiskifræðingur á Haf-
rannsóknastofnun, um lífið í hafinu
í Austurdjúpi, hafsvæðinu á milli
landgrunnsbrúna Íslands, Noregs
og Færeyja. Hafsvæðið er víð-
áttumikið og einkennist af hárri
framleiðni sem hefur ekki einungis
mikla vistfræðilega þýðingu heldur
einnig mikla efnahagslega þýðingu
sem eitt aðalfæðusvæði þriggja
stærstu uppsjávarfiskistofna í
Norðaustur-Atlantshafi, þ.e. kol-
munna, makríls og norsk-
íslenskrar síldar.
Á málstofu Hafrannsóknastofn-
unar í síðustu viku fluttu Guð-
mundur og Hildur Pétursdóttir,
sérfræðingur á Hafrannsókna-
stofnun, erindi sem nefnist: Yfirlit
rannsókna á vistkerfi Austurdjúps
og áskoranir. Í ágripi segir að
rannsóknir á umhverfi og vistkerfi
Austurdjúps og nærliggjandi haf-
svæða sýni að miklar breytingar
hafi átt sér stað síðustu tvo ára-
tugi.
Meðal þeirra þátta sem hafi ver-
ið að breytast séu hitastig sjávar
sem hafi hækkað, átustofnar hafi
minnkað, lífmassi uppsjávar-
fiskistofna hafi aukist og út-
breiðsla, vöxtur og þyngd
uppsjávarfiska hafi tekið breyt-
ingum.
Margvíslegar rannsóknir
sýna breytingar á vistkerfi
Guðmundur segir í samtali við
Morgunblaðið að þau hafi kynnt
niðurstöður fjölmargra rannsókna
sem hafi sýnt þessar breytingar.
Þær þurfi að skoða í samhengi til
að geta skilið vistkerfið betur.
„Talsverðar rannsóknir hafa
verið gerðar á þessu hafsvæði í
samvinnu Norðmanna, Íslend-
inga, Færeyinga, Rússa og Evr-
ópusambandsins,“ segir Guð-
mundur.
„Síðustu 22 ár hefur Hafrann-
sóknastofnun farið í svokallaðan
maíleiðangur í Austurdjúp þar sem
magn og dreifing síldar og ann-
arra uppsjávarfiska er skoðað, en
leiðangurinn er einnig mikilvægur
liður í langtímavöktun á ástandi
sjávar og átu á hafsvæðinu. Verk-
efnum hefur verið bætt inn í þenn-
an leiðangur, svo sem mælingum á
næringarefnum og stórátu, og
hann er í stöðugri þróun.
Stór vistfræðileg líkön
Árið 2007 hófst síðan nýtt sam-
eiginlegt verkefni þriggja fyrst-
nefndu þjóðanna þar sem megin-
markmiðið var að mæla í júlí-
mánuði magn og útbreiðslu
makríls og þar hefur því bæst við
ný mælisería, sem nær yfir fyrr-
nefnda þætti og sömu fiskteg-
undir. Með þessum rannsóknum
höfum við fengið mikilvægar upp-
lýsingar sem vonandi verða til
þess einn daginn að við náum að
skilja samhengið betur.
Upplýsingarnar hafa meðal ann-
ars verið settar inn í stór vist-
fræðileg líkön til að reyna að líkja
eftir því sem er að gerast í hafinu
til að reyna að skilja betur hvað
stjórnar breytileikanum, og þeirri
úrvinnslu gagna þarf að halda
áfram.“
Átutegundir hafa gefið eftir
Rauðáta er ein tegund krabba-
flóa og er ein algengasta fæða síld-
ar og makríls og er helsta fæða
rauðátu enn smærri svifdýr og
svifþörungar, einkum kísil- og
skoruþörungar. Þessar átuteg-
undir hafa gefið eftir í Noregshafi
á síðustu árum og segir Guð-
mundur að ekki liggi fyrir hvað
valdi því. Hvort það sé vegna af-
ráns uppsjávartegunda eða hvort
framleiðni sé minni í hafinu.
Aðspurður segir hann að með
hlýnun sjávar aukist framleiðni að
öllu jöfnu, en hér þurfi líka að
hafa í huga að stóráta, svo sem
ljósáta og sviflægar marflær, sé
talin vera mun stórtækari afræn-
ingi á rauðátu en uppsjávarfiskar.
Árlegur breytileiki í stærð stór-
átustofnanna sé hinsvegar nánast
óþekktur en öflun þekkingar þar
sé eitt af nýrri verkefnum maí-
leiðangursins.
Á móti komi að hlýnuninni hafi
fylgt minnkun kísils sem sé mikil-
vægt næringarefni fyrir kísil-
þörunga, og hún hafi komið fram
á svipuðum tíma og átan hafi
minnkað. Núna séu gerðar tvær
mælingar á átu, að vori og sumri,
en mörgu sé ósvarað um fram-
leiðni, fjölda kynslóða á sumri og
breytileika, þroskun og tegunda-
samsetningu átu á milli ára.
Hugsanlega megi gera fjölbreytt-
ari rannsóknir með stórum reikni-
líkönum með fyrirliggjandi upp-
lýsingum. Enn og aftur vanti
skilning á því hvernig þættirnir
tengist innbyrðis.
Síldin hopar í vesturátt
fyrir makrílnum
Spurður hvort síld, makríll og
kolmunni hafi ekki braggast ágæt-
lega í úthafinu síðustu ár segir
hann að vissulega hafi þeir gert
það þrátt fyrir þrjá stóra stofna.
Þeir hafi þó gert það með aðeins
ólíkum hætti.
„Hjá síldinni höfum við ekki
séð góða nýliðun frá 2004,“ segir
Guðmundur. „Hún hefur hins
vegar braggast vel að því leyti
að hún heldur vel sinni þyngd og
vaxtarhraða. Hjá makrílnum er
góð nýliðun ár eftir ár, en
vaxtarhraði og meðalþyngd mak-
ríls hefur farið minnkandi enda
hefur þéttleikinn verið mikill.
Við höfum ekki eins góða sam-
antekt á gögnum um kolmunna,
en meðalþyngd virðist hafa hald-
ist þokkaleg og árgangar 2013
og 2014 eru sterkir þannig að
nýliðun virðist hafa verið góð.
Vísbendingar um vetursetu
Síldin hefur verið að hopa fyrir
makrílnum á síðustu árum og
dregið sig vestar. Hún hefur
meira verið á Færeyja-Íslands-
svæðinu og norðan við Ísland,
sem er mikil breyting frá árunum
fram til um 2004.
Við vitum ekki til þess að hún
sé farin að hafa vetursetu úti af
landgrunninu fyrir austan land og
höfum ekki orðið varir við hana á
Rauða torginu út af Austfjörðum,
þar sem hún hafði vetursetu á ár-
um áður. Við þurfum að huga bet-
ur að þessu því undanfarnar vikur
hafa íslensk og færeysk skip veitt
síld á alþjóðasvæðinu í Noregs-
hafi, en við vitum hvorki magnið
þar né um dreifinguna.
Vísbendingar eru um að eitt-
hvað af síld hafi haft vetursetu úti
í hafinu og það er æskilegt að fá
meiri upplýsingar um dreifingu
síldar að vetri til,“ segir Guð-
mundur J. Óskarsson að lokum.
Margslungið og flókið samspil
Eitt helsta fæðusvæði þriggja stærstu uppsjávarfiskistofna í NA-Atlantshafi er í Austurdjúpi
Breytingar á vistkerfi Léleg nýliðun síldar sem leitað hefur í vestur Minni meðalþyngd makríls
Breytingar Verulegar breytingar hafa orðið á útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og makríls á síðustu árum. Á kort-
inu má sjá gróflega hvernig útbreiðsla síldarstofnsins hefur breyst í NA-Atlantshafi og síldin leitað lengra í vestur.
Útbreiðsla norsk-íslensku síldarinnar
ÍSLAND
NO
RE
GU
R
GRÆNLAND
Norsk-ísl. síld 1990-2003
Norsk-ísl. síld ~2016
Nýr Aðalsteinn Jónsson, áður Libas, lauk vertíð ársins
á norsk-íslenskri síld aðfaranótt sunnudags er skipið
kom til Eskifarðar með um 850 tonn. Aflinn fékkst í
Síldarsmugunni djúpt austur af landinu. Vinnslu lauk á
mánudag í nýju uppsjávarfrystihúsi Eskju og tók vinnsl-
an aðeins 36 klukkutíma.
Alls er búið að landa 48.640 tonnum af norsk-
íslenskri síld á þessu ári. Langmest af aflanum hefur
verið veitt í íslenskri lögsögu og fyrstu 11 mánuði árs-
ins nam hlutfallið 99,8% samkvæmt yfirliti Fiskistofu.
Kolmunnaafli ársins er 183.143 tonn. Mest af aflanum
hefur fengist í lögsögu Færeyja eða alls 154,6 þúsund
tonn. Í íslenskri lögsögu fengust um átta þúsund tonn.
Makrílvertíð lauk undir lok september en í október
Síðasta síldarskammtinum landað á Eskifirði
MIKILL AFLI AF MAKRÍL, KOLMUNNA OG NORSK-ÍSLENSKRI SÍLD Á ÁRINU
kom 1.341 tonn sem meðafli við síldveiðar austur af
landinu. Heildarafli íslenskra skipa til nóvemberloka
losaði 170 þúsund tonn. Alls komu 152,6 þúsund tonn
úr íslenskri lögsögu, 11,4 þúsund tonn úr alþjóðlegu
hafsvæði og 6,8 þúsund tonn úr grænlenskri lögsögu.
Hildur
Pétursdóttir
Guðmundur J.
Óskarsson