Morgunblaðið - 15.12.2016, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Stríðsminjar í Elliðaárdal
Í síðari heimsstyrjöldinni, 1940-
1945, var kömpum, þ.e. bragga-
þyrpingum setuliðsins, komið upp
nánast alls staðar í borgarlandinu
þar sem því varð við komið. Þar á
meðal voru nokkrir í Elliðaárdal.
Kampar og stríðsminjar
í landi Ártúns
Fimm herkampar voru í landi Ár-
túns, þar af þrír á því landi sem nú
er undir borgarvernd og einn í jaðri
þess. Tveir kampar voru sitt hvor-
um megin við bæjarhólinn.
Camp Alabaster (Camp Pers-
hing) var skammt frá Elliðaárstöð.
Þar voru aðalstöðvar breska setu-
liðsins eftir að þær voru fluttar úr
Menntaskólanum í Reykjavík við
Lækjargötu. Alabaster var nafn á
hernaðaráætlun Breta við töku Ís-
lands. Þann 13. maí 1942 flutti
bandaríska setuliðið hluta af að-
alstöðvum sínum eða „Iceland Base
Command HQ“ í þennan kamp.
Breyttu þeir nafni hans í Camp
Pershing.
Camp Battle var norðan við
Camp Alabaster/Pershing, hinum
megin við bæjarhól Ártúns.
Camp Hickham var í Ártúns-
brekku, þar sem jarðhýsin eru nú,
reistur af bandaríska setuliðinu.
Camp Fenton Street var á þeim
slóðum sem bílaumboðið BL er nú.
Þann 22. apríl 1942 tóku Banda-
ríkjamenn við yfirstjórn hers
bandamanna á Íslandi úr höndum
Breta. Af því tilefni fór herforingi
Breta af landi brott en við yf-
irstjórn breska hersins hér tók fylk-
isforingi og voru aðalstöðvar hans í
Camp Fenton Street.
Auk þessa var einn kampur á Ár-
túnshöfða (Camp Ártún) og tveir
kampar voru vestan við Elliðaár, á
móts við Ártún
(Camp Pony og
Camp New Merc-
ur).
Eins og nærri má
geta höfðu kamp-
arnir mikil áhrif á
líf fólksins á svæð-
inu. Til að mynda
var öryggisgæsla
svo ströng að jafn-
vel börnin þurftu
vegabréf til að
komast heim til sín. Eftirminnilegt
þótti að Elliðaárstöðin var máluð í
felulitunum á stríðsárunum, ekki
hvít eins og alltaf. En svo var raun-
ar um ýmis önnur mannvirki einnig.
Þegar setuliðið hvarf af landi
brott í stríðslok fluttust íslenskar
fjölskyldur inn í Camp Fenton
Street og fékk hann þá nafnið
Elliðaárhverfi. En nú hafa nær öll
hernaðarmannvirki verið fjarlægð
úr landi Ártúns. Einu ummerkin
eru í Ártúnsbrekkunni. Annars veg-
ar er það dæld eftir sandpokavígi
sem nú er að mestu fallið saman.
Hin ummerkin eru undir yfirborði
jarðar, neðanjarðarbyrgi, sem búið
er að hylja munnann á með jarð-
vegi.
Camp Baldurshagi
Hann var þar sem nú er skeið-
völlur hestamannafélagsins Fáks á
Víðivöllum. Þetta var stór kampur
með um 100 bröggum sem breska
setuliðið reisti.
Fyrst voru þarna
breskir hermenn úr
Duke of Wellington
hersveitinni. Síðar,
þegar landgöngu-
liðar bandaríska
sjóhersins komu til
landsins, 7. júlí
1941, fengu þeir þar
inni. Bretarnir
fluttust þá að Geit-
hálsi þar sem þeir
reistu nýjan kamp.
Ummerkin sem nú sjást eftir
Camp Baldurshaga eru leifar af
braggagólfum og sökklum. Enn-
fremur var eitt húsið úr kampinum
flutt í Seláshverfi og gert að íbúðar-
húsi. Nafnið á kampinum er raunar
villandi því að hinn upphaflegi Bald-
urshagi er við Suðurlandsveg.
Meðal íbúa í Camp Baldurshaga
árið 1941 var Ralph Hannam, sem
eftir stríðið settist að í Elliðaárdal.
Skotbyrgi
Í Breiðholtshvarfi, ofan við Ár-
bæjarlón, er steypt skotbyrgi af
þeirri gerð sem algeng var á stríðs-
árunum og finnast enn m.a. í Öskju-
hlíð. Þetta er steinkassi, um 3 m á
hvern veg, og hefur verið skotrauf
framan á honum. Þakplata byrg-
isins er steypt og hefur lítið látið á
sjá. Veggir eru hins vegar hlaðnir
úr holsteini og eru þeir farnir að
molna nokkuð.
Börnin þurftu vegabréf til að komast heim
Elliðaárdalur er stærsta
græna svæðið innan
Reykjavíkur, hluti af um-
hverfi og menningarsögu
borgarinnar og eitt vin-
sælasta útivistarsvæði
höfuðborgarinnar. Í nýrri
bók um Elliðaárdalinn,
Elliðaárdalur – Perla
Reykjavíkur, er fjallað
um gróðurfar, fuglalíf og
fjölbreytilega jarðfræði
dalsins og einnig sögu-
staði og friðlýstar minjar.
Í eftirfarandi kafla úr
bókinni er í máli og
myndum gerð grein fyrir
ýmsum minjum frá
stríðsárunum síðari.
Ljósmynd/Leifur Þorsteinsson
Minjar Skotbyrgi frá stríðsárunum í Breiðholtshvarfi. Myndin er tekin árið 1998 en nú er byrgið hulið trjágróðri.
Ljósmynd/Imperial War Museum
Hernám Camp Baldurshagi við Elliðaár ofan Vatnsveitubrúar, þar sem nú er skeiðvöllur Fáks á Víðivöllum. Myndin er tekin í átt að Breiðholti.
BÆKUR
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS