Morgunblaðið - 15.12.2016, Síða 68
68
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Mánudagur 27. júní
Stærsti dagurinn í sögu íslenskrar
knattspyrnu er runninn upp. Alla-
vega hvað karlalandsliðið okkar
varðar. Þetta var líka hægt að segja
fyrir leikinn gegn Portúgal, fyrir
leikinn gegn Ungverjalandi og fyrir
leikinn gegn Austurríki. Og það var
allt saman rétt. En nú er Ísland í
þann veginn að fara að mæta Eng-
landi í sextán liða úrslitunum á EM.
Einhvern tíma hefðu væntingar um
slíkan leik verið kallaðar óraunhæfar
skýjaborgir – en ekki lengur. Þetta
er að gerast, hér og nú. Í hinni fal-
legu Nice þar sem flautað er til leiks
klukkan 21 að staðartíma í kvöld ...
Hérna vorum við Hlín Baldursdóttir
eiginkona mín í sum-
arfríi fyrir tveimur ár-
um og hingað ætlum við
aftur í ágúst. Það er því
skemmtilegur bónus að
vera mættur til Nice í
þessum erindagjörðum.
Fjalla um þessa við-
ureign Íslands og Eng-
lands. Hreinustu forréttindi eins og
svo margt annað í þessu starfi. Ég
væri ekki búinn að koma til allra
þessara landa, borga og staða á und-
anförnum þremur áratugum ef ekki
væri fyrir allar vinnuferðirnar.
Dagurinn er tekinn snemma. Það
er ekki hægt að koma hingað öðru-
vísi en að gefa sér tíma til að hugsa
um annað en vinnuna, ganga niður í
miðbæinn og njóta lífsins í nokkra
klukkutíma. Hingað er mætt svo
vösk viðbótarsveit til vinnu úr Há-
degismóunum til að fjalla um allt
mannlífið í kringum þennan stóra
viðburð að stutt frí er algjörlega
leyfilegt. En sá sem starfar sem
blaðamaður er alltaf í vinnunni.
Þannig er það bara. Á letilegri göngu
fyrir ofan ströndina skemmtilegu,
meðfram götunni rómuðu Prome-
nade des Anglais, fer ég að rekast á
fólk sem er að selja miða á leikinn í
kvöld. Það gengur um með pappa-
spjöld með skilaboðum um að miðar
séu til sölu. Enskt par, á að giska um
sextugt, situr á einu handriðanna
með auglýsingu um að fjórir miðar
séu til sölu á Ísland – England. Ég
get ekki stillt mig um að
byrja að taka myndir út í
loftið, eina „alveg óvart“
af parinu, og flýti mér
síðan í skugga af næsta
tré. Sendi myndina það-
an heim beint úr síman-
um – og viti menn: Hún
er komin á mbl.is eftir
örfáar mínútur með frétt um að verið
sé að selja miða á svörtu á ströndinni
í Nice. Svona er fjölmiðlunin í dag!
Þegar við vorum í París, fyrir leik-
inn gegn Austurríki, hittum við einn
besta knattspyrnudómara landsins
um árabil, Kristin Jakobsson fyrr-
verandi milliríkjadómara, sem er
Kópavogsbúi og ÍK-ingur að upp-
runa. Kristinn er í eftirlitsstörfum á
vegum UEFA á mótinu auk þess að
vera með fjölskyldunni í fríi. Þá
kvöddumst við með orðunum:
Sjáumst í Nice. Í verslunargötu í
Nice rekst ég aftur á Kristin sem er
fljótur að minna á það sem okkur fór
á milli síðasta miðvikudag. Við
kveðjumst að sjálfsögðu með orð-
unum: Sjáumst í París á sunnudag-
inn!
Aðalmáltíð dagsins er snædd um
tvöleytið í gamla bænum, sem er enn
einn skemmtilegur hluti borg-
arinnar. Þröngar götur að hætti Suð-
ur-Evrópu og allt fullt af veit-
ingastöðum og verslunum. Svo er
haldið á hótelið til að undirbúa vinnu
kvöldsins og slaka aðeins á. Fyrir ut-
an það og í götunum í kring er fullt af
Íslendingum en miðar sem fengust í
gegnum KSÍ voru afhentir í næsta
húsi við hótelið. Þarna rekumst við
meðal annars á Ásgeir Sigurvinsson
sem missti af Austurríkisleiknum í
París en þennan gat hann ekki fyrir
nokkurn mun látið framhjá sér fara.
Ásgeir er tvímælalaust einn af betri
knattspyrnumönnum sögunnar sem
ekki fengu tækifæri á stórmóti.
Gummi félagi minn var fyrr um dag-
inn búinn að hitta tvo fyrrverandi
formenn KSÍ, Ellert B. Schram og
Eggert Magnússon, sem ekki gátu
heldur hugsað sér að sitja heima ...
Þegar við erum að gera okkur
klára í rútuferðina frá hótelinu á
völlinn klukkan 17.30 berast þær
fréttir að það muni taka um 90 mín-
útur að komast þessa sex kílómetra
leið að leikvanginum. Búið sé að loka
öllum aðalgötum á leiðinni, sem sé
gert til þess að sem flestir nýti sér
almenningssamgöngur til að fara á
völlinn. Bílastæði í nágrenni hans
ráði engan veginn við 35 þúsund
manna leiki. Þetta er ekki sérlega
uppörvandi. En við erum með And-
raz sem fararstjóra og hann á tromp
uppi í erminni. Slóveninn fer og ræð-
ir við lögregluna sem er í kringum
hótelið og nær að sannfæra þá um að
við séum það mikilvægir að tveir lög-
regluþjónar á mótorhjólum séu
sendir með okkur eftir lokuðu göt-
unum til vallarins. Snillingur hann
Andraz. Við rennum af stað í lög-
reglufylgd, brunum eftir auðum að-
algötum með þessa tvo á undan okk-
ur, og erum bara 20 mínútur upp á
völl.
Þá passar það til að um það leyti
sem við setjumst við borðin í nær
troðfullri fréttamannamiðstöðinni er
flautað til leiks hjá Spánverjum og
Ítölum á Stade de France í París.
Þessar tvær stórþjóðir þurfa að
kljást strax í sextán liða úrslitum.
Ítalir fá ekki nein sérstök verðlaun
fyrir að vinna sinn riðil því spænsku
Evrópumeistararnir urðu í öðru sæti
í sínum riðli og eru þessvegna mót-
herjar þeirra í fyrri leik dagsins,
Lygilegt afrek á Allianz Riviera
Í bókinni HÚH! - Ísland á EM 2016 segir Víðir Sigurðsson frá ævintýralegri þátttöku íslenska karlalandsliðsins í
úrslitakeppni Evrópumótsins í Frakklandi 2016. Víðir hélt til í sömu borg og landsliðið, Annecy, og fór þaðan í leikina
fimm í St. Étienne, Marseille, París og Nice, og skrifaði bókina jafnóðum, frá degi til dags, á meðan keppnin stóð yfir.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stuðningsmenn Íslenska liðið fékk gríðarlega góðan stuðning á leiknum í
Nice, eins og í öðrum leikjum sínum í Evrópukeppninni.
BÆKUR
GEFÐU GÓÐA GJÖF UM JÓLIN
Oakley bretta-
og skíðagleraugu,
margar gerðir.
Oakley bretta-
og skíðahjálmar,
margir litir,
frá kr. 25.900.