Morgunblaðið - 15.12.2016, Page 82
Forsvarsmenn Sameinuðu þjóðanna
hafa ákveðið að binda enda á herferð
þar sem teiknimyndaofurhetjan Won-
der Woman, eða Ofurkonan, er í for-
svari. Frá þessu er greint á vef BBC.
Innan við tveir mánuðir eru síðan Of-
urkonan var gerð að velgjörðar-
sendiherra SÞ í þeim tilgangi að
vinna gegn kynbundnu ofbeldi.
Ákvörðunin mætti strax mikilli
gagnrýni, en margir töldu óviðeig-
andi að velja sem velgjörðar-
sendiherra konu sem væri hlutgerð
kynferðis síns vegna. Undir-
skriftasöfnun var hrundið af stað og
rituðu 45 þúsund einstaklingar nafn
sitt í mótmælaskyni við ákvörðunina.
Ekki hafa fengist neinar opinber-
ar skýringar frá SÞ um endalok her-
ferðarinnar, en
Jeffrey Brez, tals-
maður SÞ, sagði
við Reuters ekkert
óeðlilegt við það
að herferðir með
skálduðum per-
sónum entust að-
eins í nokkra mánuði. Talsmenn DC
Entertainment, sem gefur út teikni-
myndablöðin með Ofurkonunni,
sögðust ánægðir með að ofurhetjan
hefði lagt sitt að mörkum í þágu
góðs málefnis. Bæði DC Entertain-
ment og Warner Bros gerðu samn-
ing við SÞ og UNICEF til eins árs
vegna verkefnis sem stuðla á að
kynjajafnrétti og valdeflingu
kvenna.
Ekki lengur velgjörðarsendiherra
82 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 2016
Hamraborg 10, Kópavogi – Sími: 554 3200
Opið: Virka daga 9.30-18 Laugardaga 11–14
GOTT ÚRVAL AF
UMGJÖRÐUM
Á UNGA FÓLKIÐ
Verið velkomin til
okkar í sjónmælingu
Afgreiðum samdægurs
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Það má segja að eitt umfjöllunar-
efnið í þessum verkum sé lífið, dauð-
inn og tíminn – grundvallaratriði í
mannlegri tilvist. Þetta eru stóru
spurningarnar,“ segir Elín Hans-
dóttir myndlistarkona þar sem við
stöndum í sýningunni sem hún kall-
ar Simulacra og verður opnuð í i8
galleríi við Tryggvagötu í dag kl. 17.
Þetta er innsetning í sal gallerís-
ins hvar níu innrammaðar myndir
eru á veggjum; ámálaðar ljósmyndir
sem augsýnilega eru teknar þarna í
salnum sem Elín breytir á róttækan
hátt. Í stað voldugrar burðarsúl-
unnar í salnum miðjum er kominn
stöpull í myndunum og yfir honum
hangir voldugur og litríkur blóm-
vöndur, vöndur sem visnar eftir því
sem líður á myndröðina og sjónar-
hornin breytast; laufin taka að falla
af stilkunum þegar tíminn líður.
Latneskt heiti sýningarinnar vís-
ar í yfirborðslegar líkingar og óljósa
svipi. Við gerð myndanna segist El-
ín hafa notast við sjónræna brellu-
aðferð sem er þekkt frá kvikmynda-
gerð fyrri tíma, og var í raun beitt
alveg fram undir nýliðin aldamót.
Tvívíð mynd breytir skynjun
„Aðferðin byggir á því að stórri
glerplötu var stillt upp fyrir framan
kvikmyndavélina og raunsæisleg
málverk máluð á glerið. Þau bættu
einhverju við landslagið eða arki-
tektúrinn sem var verið að kvik-
mynda,“ segir Elín og nefnir sem
dæmi eftirminnilega lokasenu kvik-
myndarinnar Apaplánetunnar frá
1968, þar sem aðalpersónan, sem
hefur talið sig vera á óþekktri plán-
etu, kemur að Frelsisstyttunni sem
er þar skökk og hálfgrafin í sand.
Styttan var sett á slíku glermálverki
fyrir framan tökuvélina.
„Ég heillaðist af þessari aðferð,“
segir Elín, „og beiti henni í þessum
verkum hér. Á sínum tíma sparaði
þetta mikinn kostnað við kvik-
myndagerð, auk þess sem hægt var
að skapa umhverfi og mannverki
sem ekki var hægt að byggja. Það
heillaði mig að með þessari tækni
mætti breyta með ótrúlega einföld-
um hætti ramma og því sem maður
sér – einfaldlega með því að mála á
gler. Gera tvívíða mynd sem breytir
skynjun okkar á þrívíðum heimi.“
Við samþykkjum blekkinguna
– Í dag gætir þú valið að vinna
þessar myndir með stafrænni
tækni, taka þær inn í sýndarveru-
leika, en þess í stað tekur þú upp
þennan hefðbundna miðil, mál-
verkið.
„Í því vali felst ákveðinn ófull-
komleiki – þetta er á vissan hátt
ómögulegt verkefni. Verkin eru ekki
fullkomin, menn vita og sjá að þau
eru máluð, en ég hef áhuga á augna-
blikinu þegar áhorfandinn ákveður
að líta framhjá göllunum og gangast
við sjónblekkingunni.
Þetta má ekki vera of fullkomið!
Við sjáum öll að þetta er ófullkomið
en samþykkjum samt blekkinguna.
Hún skiptir ekki máli,“ segir hún og
við veltum fyrir okkur hvort það sé
ekki aftur tákn fyrir lífið, það verð-
ur aldrei fullkomið.
– Auk þess að beita tækni sem
var notuð þar til tölvurnar tóku yfir
málar þú blómvöndinn sem verður
að tákni fyrir tímann. Í níu römm-
um sjáum við blómin sölna í þessari
gerviuppstillingu. Í því er sterk list-
söguleg vísun.
„Vissulega. Og tengist hefð-
bundnum kyrralífsmyndum, en ég
hef skoðað mikið af slíkum verkum
frá 17. og 18. öld, sérstaklega holl-
enskum. Þau voru á sínum tíma tal-
in neðst í virðingarstiga myndlistar
en fyrir því voru trúarlegar ástæð-
ur; Guð skapaði manninn og sá sem
gat málað manninn á raunsæislegan
hátt var nær Guði sem sá sem mál-
aði plöntur. Kyrralífsmyndir voru
að vissu leiti ígildi plakatsins í dag.
Og líklega er enn í dag smávegis lit-
ið niður á blómauppstillingar – ég
stend sjálfa mig að því að spyrja:
Hva, ertu að mála blóm á gler!“
Óvissan er mikilvæg
Veggir sýningarrýmisins eru hver
í sínum lit og Elín segir þá þjóna
þeim tilgangi að vera eins konar
leiðarvísir. Blómvöndurinn sést síð-
an í myndunum níu frá jafn mörgum
sjónarhornum, þar sem farið er
hringinn kringum vöndinn – og súl-
una – í salnum. Þar kemur tímaþátt-
urinn inn í myndröðina.
Verkin og framsetningin mynda
áhrifaríka heild og þegar Elín er
spurð að því hvort útkoman sé eins
og hún sá hana fyrir sér segir hún
að engin verka sinna endi eins og
hún ímyndaði sér þau í byrjun.
„En mér finnst það gott, óvissan
sem í því felst er mikilvæg. Ég sá
þessa sýningu fyrst í gær sem eina
heild.
Þessi burðarsúla hér í rýminu
miðju spilar stórt hlutverk og mér
fannst áhugavert að taka hana í
burtu og setja eitthvað lífrænt inn í
salinn sem ynni gegn þyngdaraflinu.
Blómvöndurinn svífur yfir stöpl-
inum, hann er ekki í vasa.“
Ólík upplifun áhorfenda
„Það eru aldrei verkin sjálf sem
mér þykja skipta máli heldur hvað
gerist milli áhorfandans og verksins
sem hann upplifir; fólk kemur hér
inn og áttar sig kannski ekki alveg á
því hvað þetta er…“ segir Elín.
– Er upplifun gestsins þá alltaf
lykilatriði? Virkni áhorfandans?
„Hún er það en er líka jafn mis-
munandi og við erum öll ólík. Ég hef
enga ákveðna hugmynd um hvað
fólk eigi að upplifa. En ég hef áhuga
á þessu augnabliki þar sem maður
er beðinn um að staldra við og líta
aðeins í kringum sig, þótt það séu
ekki nema nokkrar sekúndur eða
mínútur.“
– En varðandi málverkið; hefur
þú eitthvað fengist við að mála?
„Nei,“ segir hún og hlær. „En ég
leita iðulega í eitthvað sem ég hef
ekki gert áður. Hópur fólks hefur
aðstoðað mig að mála verkin og þar
koma mismunandi stílbrigði inn.“
– Og þú velur ekkert auðveldan
eða einfaldan vönd að mála?
„Nei! Ég setti hann sjálf saman
og var ekkert að gera mér verkefnið
auðveldara. En varðandi kyrralífs-
nálgunina fannst mér áhugavert að
vendirnir í gömlu málverkunum eru
oft ótrúverðugir, hvað það varðar að
í þeim eru blóm mismunandi árs-
tíða. Og stundum eru smáar plöntur
óeðlilega stórar miðað við aðrar.
Það er því verið að teygja veru-
leikann til, sem þýðir að vendirnir
eru ekki málaðir í rauntíma heldur
samsettir.
Í mörgum þessum verka er fjallað
um lífið, dauðann og tímann, og á
sama tíma er mörgum augnablikum
skeytt saman í eina heild, ekki
ósvipað og ég geri hér.“
Lífið, dauðinn og tíminn
Elín Hansdóttir opnar sýninguna Simulacra í i8 galleríi í dag Beitir margreyndum blekkingum
Morgunblaðið/Einar Falur
Blómamálverk „Þetta má ekki vera of fullkomið,“ segir Elín Hansdóttir, sem stendur hér í innsetningu sinni, við
súluna sem hún fjarlægir. Á veggjum eru níu myndverk sem sýna salinn og svífur blómvöndur í honum miðjum.
Annað árið í röð vann Adele til
tvennra verðlauna þegar tónlistar-
verðlaun BBC voru afhent, en
vegna anna sá hún sér ekki fært að
mæta. Plata Adele, 25, var valin
besta plata ársins og lagið „Hello“
besta lag ársins.
Robbie Williams sló á létta
strengi þegar hann tók við verð-
laununum fyrir hönd Adele. „Halló,
þetta er ég,“ sagði Williams og vís-
aði þar í upphafslínu lagsins
„Hello“. „Þið hafið væntanlega átt-
að ykkur á því að ég er ekki Adele,“
sagði Williams og las í framhaldinu
upp yfirlýsingu frá söngkonunni
þar sem hún
sagðist miður sín
að geta ekki ver-
ið á staðnum, en
hún hefði þörf
fyrir að vera
heima hjá fjöl-
skyldu sinni í Los
Angeles eftir
mikið tónleika-
hald. „Það er
mikill heiður að veita verðlaunum
þínum viðtökur. Þetta er frábær
plata og þú átt þetta skilið. Þú ert
líka frábær mamma og leggur hart
að þér. Til hamingju.“
Adele með bestu plötuna og besta lagið
Adele