Morgunblaðið - 15.12.2016, Page 92

Morgunblaðið - 15.12.2016, Page 92
FIMMTUDAGUR 15. DESEMBER 350. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Erfingjar vilja koma hreint … 2. Alan Thicke látinn 3. Bensínleysið býður upp á … 4. Stór skandall skekur Svíþjóð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Strengjasveit skipuð nemendum úr Tónskóla Sigursveins leikur í Bóka- safni Seltjarnarness í dag kl. 17 undir stjórn fiðlukennarans Helgu Þór- arinsdóttur. Fluttur verður Jóla- konsert Corellis og þekkt jólalög á borð við Nóttin var sú ágæt ein, Hvít jól og fleiri sem koma gestum í hátíðarskap. Aðgangur er ókeypis. Strengjasveit leikur jólatónlist í dag  Hrafnhildur Gunnarsdóttir, leikstjóri og fram- leiðandi, hlýtur heiðursverðlaun WIFT (Samtaka kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum) sem veitt voru í fyrsta sinn í til- efni af tíu ára afmæli WIFT á Íslandi. „Hrafnhildur hefur í verkum sínum fjallað um mannréttindamál, jafn- réttismál og baráttumál hinsegin fólks. WIFT þakkar henni fyrir sitt framlag til þessara mikilvægu mála á ferli sínum, ásamt því að hvetja hana áfram á sömu braut,“ segir í umsögn samtakanna. Hrafnhildur fær heið- ursverðlaun WIFT  Samúel Jón Samúelsson Big Band lætur lúðra hljóma jólalega í bókahorni Sæmundar í spariföt- unum á Kex Hosteli í kvöld kl. 21. Þetta er í annað skiptið sem þessi 14 manna stór- sveit heldur jóla- tónleika á Kex. Á efnisskránni eru jólalög í fönkbún- ingi. Aðgangur er ókeypis. Jólalög í fönkbúningi á Kex Hosteli í kvöld Á föstudag Gengur í suðvestan 13-20 m/s. Rigning eða slydda og síðar él. Þurrt að kalla norðaustantil á landinu. Hiti 0 til 5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Gengur í suðaustan 15-23 m/s í dag með rigningu, en hægari og úrkomulítið á Norður- og Austurlandi. Lægir á SV-horninu í kvöld. VEÐUR „Ég er búinn að velta þessu mikið fyrir mér síðan í haust og á endanum var það sú hvatning og stuðningur sem ég hef fundið fyrir sem gerði gæfumuninn. Ég tel æskilegt og eðlilegt að það sé reglu- lega ákveðin endurnýjun í forystu félagasamtaka eins og KSÍ og tel að nú sé kom- inn tími á slíka endurnýjun,“ segir Guðni Bergsson sem býður sig fram í kjöri til for- manns KSÍ. »2-3 Hvatning og stuðningur „Draumurinn var alltaf að vinna til verðlauna á Evrópumeistaramóti. Sá draumur rættist og meira að segja heldur betur því verðlaunapening- arnir urðu þrír á mótinu. Árangurinn á þessu ári er mér mikil hvatning til þess að gera enn bet- ur, láta ekki hér við sitja. Ég er ákveðin í að reyna að gera enn betur á næsta ári,“ segir sund- konan Hrafn- hildur Lúthers- dóttir sem komst líka í úr- slit á Ólymp- íuleik- unum. »1 Draumurinn alltaf að vinna verðlaun á EM ,,Belgíska deildin er mjög góð, það eru stutt ferðalög í alla leiki og bestu liðin hér eru mjög sterk. Ég fæ mikla ábyrgð og þjálfararnir treysta á mig, sem er mjög gott. Ég er bara ánægður með frammistöðu mína til þessa og nú vona ég bara að við förum að klífa upp töfluna,“ segir Ari Freyr Skúlason sem gekk til liðs við belgíska knatt- spyrnuliðið Lokeren í sumar. »4 Vona bara að við förum að klífa upp töfluna ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Hilmar Foss er kominn með vísi að nokkurs konar þjóðminjasafni í sveit- arfélaginu Garði. Þar eru bílar og flugvélar fyrirferðarmest en lítil rit- vélarkúla, sem notuð er undir bréfa- klemmur, og aðrir smáhlutir leynast víða og allt þar á milli. Allt hlutir með mikla sögu. „Ég hef gaman af gömlu dóti og þetta er samspil af hlutum sem pabbi og mamma áttu auk hluta sem hafa ratað til mín á undanförnum áratug- um,“ segir Hilmar um söfnunar- áhugann og safnið. „Þetta er eins og með blómin, þau eru öll falleg,“ held- ur hann áfram og gerir ekki upp á milli eignanna. „Ég safna líka undar- legustu hlutum,“ bætir hann við og bendir á umferðarljós, stöðumæli, sem tekur við 50 kr. peningi, stöðu- mælatösku fyrir þá sem tæma stöðu- mæla og brunahana um leið og við göngum um svæðið. Hilmar flutti með fjölskyldu sinni í Garðinn fyrir um tveimur og hálfu ári og hefur síðan unnið að því að koma safninu fyrir. „Það er eiginlega mér að kenna að þau fluttu í Garðinn,“ segir Ingvar Gissurarson, sem hefur aðstoðað Hilmar við smíðar og fleira í húsnæðinu. „Hann bar ábyrgð á því að kynna Jagúar fyrir mér og ég svaraði með því að fá hann í Garð- inn.“ Hilmar bætir við að veðrið hafi líka haft áhrif því það sé mun betra en í Reykjavík, lygnara og heitara. Saga leikara og álfs Sýningarsvæðið er í um 500 m² húsnæði. Þar úir og grúir af ýmsum hlutum sem öðlast nýtt líf á staðnum. Í einu rýminu eru meðal annars þrír bílar og þar af einn MG sem leik- konan Hayley Mills átti á undan Hilmari. Rósa, eiginkona Hilmars, sá hann til sölu í London og þau skelltu sér á hann. Síðar kynntust þau Peter Hugo, sem er þekktur fyrir að leika Karl Bretaprins og hefur útvegað Hilmari nokkra Jagúarbíla, en þá kom í ljós að hann og Hayley Mills voru leiksystkin á yngri árum. Við hliðina er Triumph sem guðmóðir Peters Hugo átti. „Hún eignaðist bíl- inn 65 ára og hætti að keyra 89 ára,“ segir Hilmar. „Hún hélt nákvæma bók um rekstur bílsins, skrifaði allt niður og þegar þú flettir bókinni sérðu á skriftinni hvernig hún eldist. Síðasta setningin, „End of Service“, er greinilega skrifuð með mjög skjálf- andi hendi.“ Uppi á vegg eru tignarleg stígvél. „Pabbi átti þau og notaði þau meðal annars þegar hann var leiðsögu- maður í Langá í Borgarfirði,“ segir Hilmar. „Þegar þau voru úti í búðinni okkar í Hafnarstræti átti Magnús Scheving leið um og vildi kaupa þau. Þau voru ekki til sölu en hann fékk þau lánuð og fór með þau til skósmiðs sem smíðaði stígvél eftir þeim á íþróttaálfinn.“ Hilmar segir að margir hafi nefnt það við sig að hann ætti að opna safn- ið fyrir gestum og segist hann ætla að skoða það. „Það kemur í ljós hvað verður,“ segir hann. Sögunni haldið til haga  Sérstakt einka- safn Hilmars í Garðinum Morgunblaðið/RAX Forngripur Ingvar Gissurarson og Hilmar Foss við annan nýja Jagúarinn sem var fluttur inn til Íslands. Tónlist Hilmar Foss setur djúkboxið úr Ólsen Ólsen í Keflavík í gang. MÆvintýraheimur »28

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.