Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 24

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 24
24 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016 SÖLUAÐILAR Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti 6 s:551-8588 | Gullúrið Mjódd s: 587-410 | Meba Kringlunni s: 553-1199 Meba - Rhodium Smáralind s: 555-7711 | Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900 Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900 | Rhodium Kringlunni s: 553-1150 Hafnarfjörður: Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar s: 565-4666 Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður Hafnargötu 49 s: 421-5757 | Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður Glerártorgi s: 462-2509 Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður Suðurgötu 65 s: 431-1458 | Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886 Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður Austurvegi 11 s: 482-1433 | Vestmannaeyjar: Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333 Vélorf Mikið úrval vélorfa með tvígengis- eða fjórgengismótor. Einnig rafknúin orf. ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is skömmu fyrir HM, ásamt sjö öðrum leikmönnum af alsírskum uppruna og stofnuðu þeir lið sem spilaði fyrir hönd Alsírsku frels­ ishreyfingarinnar og var nokkurs konar forveri alsírska landsliðsins. Þrátt fyrir mótmæli franska knattspyrnusambandsins spiluðu þeir tæplega hundrað leiki við lið víðs vegar að úr heiminum og vöktu mikla hrifningu fyrir góðan leik. Samband þeirra við fyrrum fé­ laga sína úr franska landsliðinu var þó áfram gott – frönsku lands­ liðsmennirnir skrifuðu til dæmis allir utan á póstkort sem þeir sendu Zitouni frá Svíþjóð og Mek­ hloufi átti eftir að snúa aftur til Frakklands eftir að frelsisstríðinu lauk og vinna þrjá meistaratitla í viðbót. Mörgum Frökkum var vissulega í nöp við hann en fyrir alsírska minnihlutanum var hann hetja. Þrjátíu árum seinna varð svo hinn alsírskættaði Zinedine Zi­ dane stærsta hetja franskrar knattspyrnusögu – og jafnvel al­ sírskrar líka – þegar hann tryggði Frökkum sinn fyrsta heimsmeist­ aratitil. Fótboltafabrikkan í Karíbahafinu Franskir leikmenn af alsírsk­ um og senegölskum ættum geta þó flestir ráðið núorðið hvort landsliðið þeir spila fyrir. Slíkt val hafa þó leikmenn frá eyjun­ um Reunion og Gvadalúpe ekki, enda enn undir stjórn Frakka. Stjarna Frakka á núverandi Evrópumóti, Dimitri Payet, er fæddur og uppalinn í Reunion, en enn merkilegri er þó velgengni gvadalúpskra leikmanna, sem skáka jafnvel Íslendingum þegar kemur að höfðatölunni alræmdu. Þótt aðeins rúmlega 400 þús­ und manns búi á eyjunni hefur hún alið af sér fótboltamenn á borð við Thierry Henry, Nicolas Anelka, Sylvain Wiltord, Lili­ an Thuram, William Gallas og Kingsley Coman – og fjórir af þeim fjórtán leikmönnum sem komu við sögu í úrslitaleik heimsmeist­ aramótsins 2006 hefðu verið löglegir með Gvadalúpe, þetta sumarkvöld þegar Zidane lauk ferlinum með því að stanga varnartröllið Marco Materazzi. Rasisminn við enda regnbogans En leikurinn var ekki bara svana­ söngur Zidane, hann markaði líka endalok regnbogaliðsins fræga. Hinn umdeildi Raymond Domenech stýrði þeim í úr­ slitaleiknum – og þangað komust þeir að margra mati þrátt fyrir Domenech, sú söguskoðun var al­ geng að reyndari leikmenn liðsins hafi einfaldlega tekið völdin í bún­ ingsklefanum þegar leið á mótið. Franska knattspyrnusambandið stóð þó þétt við bakið á sínum manni – og gerði það áfram eftir skelfilegt Evrópumót tveimur árum síðar. Það sauð svo upp úr í Suður­ Afríku sumarið 2010 þegar leikmenn fóru í verkfall á miðju móti og Frakkar fóru heim með skömm. Og núna þótti frönsku Fyrir og eftir. Belgíska liðið 1986 var tölu- vert einsleitara en liðið í dag. << Fyrir þjóðinni sinn eigin regnbogi ekki jafn fagur; orðræðan um landsliðið kallaðist á við vaxandi spennu í landinu – óeirðirnar í París árin 2005 og 2007 voru mönnum enn í fersku minni, en þar hafði Sarkozy Frakklandsfor­ seti kallað óeirðarseggina óþverra (racaille) – og sama orð var nú haft um landsliðið. Íþróttamála­ ráðherrann, Roselyne Bachelot, var einnig gagnrýnd fyrir að kalla liðið caïds immatures, en orðið caïd er slangur úr arabísku yfir smáglæpamenn. Það kom betur og betur í ljós að fjölmenningin hugnaðist mörgum bara þegar vel gekk – en innflytj­ endur urðu vandamál um leið og harðnaði á dalnum. Það var raunar í kjölfar gagnrýni þjóðern­ ispopúlistans Jean­Marie Le Pen árið 1996 sem menn fóru fyrst að tala um regnbogaliðið – gagn­ rýni Le Pen kom því harkalega í bakið á honum þá, en hins vegar tókst honum með þessu að setja málið á dagskrá og pólarísera umræðuna, þannig að um leið og harðnaði á dalnum fóru ólíkleg­ ustu menn að enduróma boðskap hans, þótt í mildaðri útgáfu væri. Gengi franska liðsins hefur vissulega batnað töluvert síðan 2010 – en þó virðist það ítrekað taka eitt skref aftur á bak fyrir hver tvö skref fram á við. Laurent Blanc var til dæmis framan af mun vinsælli landsliðsþjálfari en Domenech – en það byrjaði að breytast eftir að samræður um að setja kvóta á afríska leikmenn í frönskum knattspyrnuakademí­ um var lekið – þar sem Blanc virt­ ist óþægilega jákvæður gagnvart slíkum hugmyndum. Eftir ágætt heimsmeistaramót þá varð svo einni stærstu stjörnu liðsins, Karim Benzema, sparkað úr liðinu eftir mútuhneyksli – og þótt erfitt sé að mótmæla þeirri ákvörðun sem slíkri er athygl­ isvert hversu kynþáttamiðuð viðbrögðin urðu. Það hefur verið talað um að Benzema, sem er ættaður frá Alsír, vilji spila fyrir Frakka en vilji ekki vera franskur, hann syngi ekki einu sinni þjóð­ sönginn. En Benzema er alinn upp í úthverfi Lyon, einu af hinum al­ ræmdu banlieues sem umkringja franskar borgir. Þar er fátæktin oft svakaleg og lífsbaráttan hörð – og íbúarnir í miklum meirihluta innflytjendur. Margir franskir landsliðsmenn hafa alist upp í þessum úthverfum – og þar ligg­ ur oft stærsti munurinn á þeim og hvítum kollegum þeirra, þetta snýst um stéttabaráttu ekki síður en húðlit. Skjannahvítir Belgar taka lit Síðasti leikur Platini á stórmóti var bronsleikurinn á HM 1986. Andstæðingarnir voru spútniklið Belga, sem áttu efnilegasta mann keppninnar, miðjumanninn Enzo Scifo. Hann átti það sameigin­ legt með Platini að vera af ítölsk­ um ættum. Fjölþjóðlegra gerðist belgíska liðið þó ekki, leikmenn þess voru allir fæddir í Belgíu og voru skjannahvítir á hörund.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.