Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 40
áreiti eða ofbeldi og jafnframt hvatt til að láta vita ef einhver sýnir slíka hegðun. Erfitt að vera aðstandandi En þó Hjalti sé sjálfur ekki þolandi kynferðisofbeldis þá er hann að- standandi þolanda og það getur líka verið erfitt. Hann segir mikilvægt að hlúa líka að aðstandendum og ekki vanmeta áhrif ofbeldisins á þá sem standa þolanda næst. „Að vera aðstandandi einhvers sem hefur orðið fyrir kynferðisof- beldi getur tekið rosalega á. Fyrr- verandi meðleigjandi minn varð fyrir mjög grófu ofbeldi og það að reyna að hjálpa og finna til fyrir hennar hönd tók ótrúlega mikið á. Maður vill gera allt fyrir við- komandi í þessum aðstæðum en stundum getur maður það einfald- lega ekki. Það gleymist stundum að tala um aðstandendur, en það getur verið erfitt að vera í þeirri stöðu,“ segir Hjalti og bendir í því samhengi á að ekki sé kostnaðar- samt að leita sér sálfræðiaðstoðar. En hann hefur leitað sér aðstoðar vegna sinnar aðkomu að kynferð- isbrotamálum, bæði sem aðstand- andi og eftir að hafa sökkt sér djúpt í erfið mál í tengslum við starfið í Druslugöngunni. Vottur af áfallastreituröskun Hjalti segir það hafa hjálpað sér mikið að fá sálfræðiaðstoð og mælir með að aðstandendur leiti sér líka aðstoðar. „Fólk er svo fast í því að það sjálft eigi ekki bágt því það sé bara að reyna að koma fólki til hjálp- ar. Því finnst það ekki skipta máli í þessu samhengi. En auðvitað hefur svona lagað mikil áhrif á aðstand- endur líka,“ segir Hjalti einlægur. „Það er líka mjög erfitt að hugsa svona mikið um þessi mál, fara djúpt í inn í þennan heim og lesa sér til. Ég var kominn með vott af áfallastreituröskun þegar ég leitaði mér hjálpar. Í þeim aðstæðum er svo ótrúlega mikilvægt að finna fyrir kraftinum í Druslugöngunni og sam- stöðunni. Ég get í alvöru ekki lýst orkunni sem myndast.“ Þarf að þekkja sín mörk Hjalti viðurkennir þó að hann hugsi stundum að nú sé nóg komið. Hann geti einfaldlega ekki heyrt eða lesið fleiri hræðilegar lýsingar af kynferð- isofbeldi. „Þetta var orðið mjög erfitt á tímabili. Ég þarf að vita hvenær ég á að stoppa, ef ég er til dæmis að lesa einhverja grein. Stundum þarf maður ekki að vita allt. Maður fatt- ar nefnilega ekki strax hvað þetta hefur mikil áhrif á mann. En á sama tíma er mikilvægt að vera meðvitað- ur um hversu stórt samfélagsvanda- mál kynferðisofbeldi er. Það er líka á okkar ábyrgð sem samfélag að uppræta það og þess vegna er þessi ganga svo ótrúlega mikilvæg,“ segir Hjalti sem hvetur að lokum alla til að mæta í Druslugönguna þann 23. júlí næstkomandi. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Í grunninn er ég bara fótbolta-strákur úr Kópavoginum og var örugglega jafn vitlaus ungling-ur og margir aðrir, en svo varð ákveðinn vendipunktur. Kyn- ferðisofbeldi snerti mig persónu- lega,“ segir Hjalti Vigfússon, einn skipuleggjenda Druslugöngunnar, um hvernig það kom til að hann fór í þetta verkefni. Hjalti kemur nú að skipulagningu göngunnar í fjórða sinn. Manneskja sem stendur honum nærri kærði þekktan einstakling fyrir kynferðis- ofbeldi og í kjölfarið reis stór hópur í samfélaginu upp á afturlappirn- ar honum til varnar. Þá gat Hjalti ekki lengur setið aðgerðarlaus. Hann vildi gera eitthvað og stuðla að breyttri og upplýstari umræðu í samfélaginu. Heyrir miklu meira Hjalti bendir á að fjöldinn sem verði fyrir kynferðisofbeldi ein- hvern tíma á lífsleiðinni sé svo mik- ill að flestir þekki einhvern í þeirri stöðu. „Þegar maður byrjar að taka þátt í að skipuleggja svona viðburð heyrir maður svo miklu meira. Þá fer maður líka að hugsa um allt sem maður fær ekki að heyra. Allt fólkið sem hefur orðið fyrir ofbeldi, en hefur ekki sagt frá. Við fáum líka ótal skilaboð á hverju ári frá fólki sem vill segja sína sögu og hvaða áhrif gangan hefur haft á líf þess og það drífur mann áfram.“ Hann bendir á að þeir sem hafi verið að stíga fram á síðustu tveimur árum og segja sögu sína séu að mestu leyti ungar konur. En það þýði ekki að aðrir hafi ekki orðið fyrir ofbeldi líka. „Við höfum til dæmis hvatt fólk til að koma með ömmu sína í gönguna. Þessi þöggun, sem er sem betur fer að minnka, var svo ótrúlega mikil þegar þær voru ungar. Þessi mál voru bara ekki rædd og þær sem urðu fyrir kynferðisofbeldi á árum áður hafa þurft að bera harm sinn í hljóði. En það er aldrei of seint að segja frá og það er svo mikilvægt að fólk viti það.“ Gríðarleg þöggun Hjalti ítrekar í því samhengi að Druslugangan sé fyrir alla. Ekki bara fyrir konur og ekki bara fyrir þolendur. „Það virðist hins vegar vera erfiðara fyrir karla að segja frá ofbeldi sem þeir hafa orðið fyrir. Það er tengt einhverri karl- mennskuímynd sem er erfitt að yfirstíga. Þetta hefur samt verið að breytast síðustu ár og þegar karlar stíga fram er ótrúlega mikilvægt að við séum til staðar og tilbúin að hlusta,“ segir Hjalti og heldur áfram: „Kynferðisofbeldi innan samfé- lags samkynhneigðra er líka miklu meira en maður heldur. Ég finn fyrir því af því ég þekki til þar. Það er vandamál sem ekki er verið að horfast í augu við. Það er gengin Gleðiganga á hverju ári og mikil réttindabarátta í gangi. Því þarf að fylgja gleði og þá er erfitt að tala um hluti sem eru bara alls ekki gleðileg- ir. Það er gríðarleg þöggun þar, líkt og annars staðar í samfélaginu, sem þarf að takast á við.“ „Hef fengið hendur inn á mig“ Hjalti segir mjög mikilvægt að setja meiri peninga í réttarvörslukerfið á Íslandi og auka það fjármagn sem sett er í fræðslu í grunnskólum. „Við sem erum að skipuleggja Druslugönguna höfum setið nokkra fundi með ráðherrum undanfar- in ár og höfum fundið fyrir mjög takmörkuðum skilningi á alvar- leika málsins, til dæmis frá Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra,“ segir Hjalti sem tekur þó fram að viðbrögðin hafi verið misjöfn eftir ráðherrum. Hanna Birna Kristjáns- dóttir, fyrrverandi innanríkisráð- herra, hafi til dæmis sýnt málinu mikinn skilning og strax viljað gera úrbætur.“ Aðspurður segist Hjalti sjálfur hafa orðið fyrir áreiti af ýmsu tagi, sérstaklega þegar hann hefur farið út að skemmta sér, en hann sé ekki þolandi kynferðisofbeldis. „Ég hef til dæmis fengið hendur inn á mig, sem er ógeðslegt og alveg óþol- andi. Það eru staðir sem ég forðast því ég er brenndur af svona áreiti. Þess vegna er frábært að sjá hvað skemmtistaðirnir taka vel í plakötin sem við á vegum Druslugöngunn- ar höfum verið að setja upp.“ En hengd hafa verið plaköt þar sem fólk er minnt á að allir eigi rétt á að skemmta sér án þess að þurfa þola Á okkar ábyrgð Hjalti segir mikilvægt að vera meðvitaður um hve stórt samfélagslegt vandamál kynferðisofbeldi er. Mynd | Rut …viðtal 4 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016 Við höfum setið fundi með ráðherrum undanfarin ár og höfum fundið fyrir mjög takmörkuð- um skilningi á alvarleika málsins. Gleymist stundum að tala um aðstandendur Hjalti Vigfússon er nú að skipuleggja sína fjórðu Druslugöngu, en hann ákvað að láta til sín taka eftir að kynferðisofbeldi snerti hann persónulega. Hann sökkti sér í málaflokkinn og var kominn með vott að áfallastreituröskun þegar hann leitaði sér sjálfur aðstoðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.