Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 32

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 32
32 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016 Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir svanhildur@frettatiminn.is Ég bjó áður með þremur vinum mínum í einum af þessum kokteilsósu-lituðu húsum við Laugardalslaug. Ætli það hafi ekki verið eitt mesta gaura tímabil sem ég hef átt,“ segir Ólafur Björn Tómasson í litla og huggulega herberginu sínu á Oddagörðum. „Það voru Playsta- tion tölvur, sportpakkinn í sjón- varpinu og allt það. Og auðvitað allt mjög skítugt sem lenti svolítið á mér og einum öðrum að þrífa.“ „Ég fíla að vera hérna, ég þarf ekki mikið pláss,“ segir Ólafur sem fyrir ári síðan kom sér fyrir í Oddagörðunum, sá hluti stúdenta- garða sem nokkur herbergi deila saman eldhúsi. „Staðsetningin er númer eitt, tvö og þrjú. Það versta er kannski hvað maður fer lítið út fyrir hverfið. Ég er alltof latur við að ferðast út fyrir minn litla radí- us. Háskólinn er nokkrum skrefum frá og ég vinn á Stúdentakjallarn- um svo lífið er mikið á sama reitn- um sem er kostur og galli.“ Ólafur er að leggja lokahönd á nám við kvikmyndafræði og er mikill kvikmyndaunnandi. Heimavinnan er ekki af verri endanum en hann reynir að horfa á eina kvikmynd á dag. „Um þessar mundir er ég skotin í kvikmyndinni Lobster en hún kristallar hvar áhugi minn liggur, distópísk framtíðarmynd sem er falleg fyrir augað. Annars tek ég svona leikstjórasyrpur, um daginn voru það Paul W.S. Anderson myndirnar og í síðustu viku Wes Anderson. Ég vil fylgjast með fleiri kvenleikstjórum en Sofia Coppola er í miklu uppáhaldi.“ Kvikmynd- ir hafa lengi verið áhugamál hjá Ólafi. „Í menntaskóla eyddi ég ófá- um tíuþúsundköllum í DVD mynd- ir. Án efa versta fjárfesting sem hægt er að gera.“ Áhuginn liggur ekki einungis í að horfa og fræðast um mynd- ir heldur einnig að leika í þeim og skrifa handrit. „Ég ætlaði mér alltaf í leikarann. Ég hef þó verið að æfa spuna með Haraldinum síð- an í júlí. Ég beiti síðan aðferðum þaðan til að skrifa handrit sem ég hyggst gera meira af í framtíðinni, maður þarf bara að gera hlutina.“ Hvað varðar rýmið þá er Ólafur greinilega smekkmaður. Plakötin sem skrýða veggina og myndirnar í hillunum gera rýmið að heimili. „Ég reyni að vinna með litinn á gólfinu og gardínunum, hafa þetta einfalt en ekki of leiðinlegt.“ Sam- eiginlega rýmið nýtir Ólafur í að halda matarboð. „Ég get ekki sagt ég eldi mikið. Ég hef þó neglt einn rétt, grænmetislasagna, og þá býð ég fólki úr ólíkum áttum í mat til mín á Oddagarðana.“ Landslið Póllands komst áfram í 16 liða úrslit eftir leik sinn við Úkraínu á þriðjudag, sem fór 1:0. Eina markið skoraði Jakub Blaszczy kowski glæsi- lega í seinni hálfleik. Mikil stemning hefur verið á Ingólfstorgi á leikjum Póllands á Evrópumótinu og augljóst að Íslendingar eru ekki eina þjóðin á Íslandi sem fylgist með EM með hjartað í buxunum, enda búa hér um 12 þúsund Pólverjar. Næsti leikur Póllands er við Sviss á laugardag, klukkan 15. | sgþ  Fleiri myndir á frettatiminn.is Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira, en bara ódýrt Sekkjatrilla 150kg Dekk og hjól í miklu úrvali Fötur og balar í öllum stærðum Frábært úrval af farangursteygjum og strekkiböndum Flutningspallar 200/400kg PU Flex hanskar Flutningstrilla samanbrjótanleg TILBOÐ kr. 6.995 Frá kr. 5.995 Frá kr. 3.495 Kr. 295 Stemningin á Ingólfstorgi Ekki bundin við leiki íslenska liðsins Myndir | Hari  Sjá fleiri myndir á frettatiminn.is Stúdentgarðarnir #7 Lífið allt á sama radíusnum Ólafur Björn Tómasson er sjöundi viðmælandi í myndaröðinni Stúdenta- garðarnir. Í tæplega eitt ár hefur smekkmaðurinn búið í kollegíi í Odda- görðum þar sem sjö manns deila eldhúsi. Hann segir skrítið að venjast því að búa einn en samt með svo mörgum. Bæði skólinn og vinnan eru í bak- garðinum svo Ólafur þarf lítið að ferðast út fyrir sitt hverfi, sem er kostur og galli fyrir kvikmyndaáhugamanninn. Ólafur Björn er mikill fagurkeri og leyfði litnum á gólfinu að stýra ferðinni í litavali á húsgögnum og hlutum. Á svölun- um má sjá glitta í „gay pride“ fánann sem Ólafur flaggaði í kjölfar skotárásar- innar í Orlando. Myndir/Rut Persónuleg plaköt og ljósmyndir gera herbergið að heimili. Vinkonurnar Ana, Reagan og Ása kynntust á Te og Kaffi þar sem þær vinna en stelpurnar eru allar frá sitt hvoru landinu. Þær fara saman í fjallgöngur og á hjólabretti. „Við kynntumst allar í vinnunni en ætli það megi ekki segja að við séum frekar alþjóðlegur hópur, ég er frá Bandaríkjunum, Ana er frá Þýskalandi en ólst upp á Spáni og Ása er frá Íslandi,“ segir Reagan glöð í bragði en hún byrjaði að vinna á kaffihúsinu fyrir rúmu hálfu ári. Þær Ása og Ana hafa þekkst leng- ur en aðspurðar segjast þær oft fara á hjólabretti saman. Stelpurn- ar hittast því ekki bara í vinnunni heldur líka utan hennar. „Við fór- um í göngutúr að Glymi þegar við vorum seinast í fríi,“ bætir Reagan við. „Gott fyrir teymið!“ Þær segjast vinna saman á hverjum degi en það geri vinnuna miklu skemmtilegri. „Við erum gott lið. Það skiptir máli að vinna með rétta fólkinu svo allir séu ánægðir. Svo er líka best í heimi að drekka kaffi saman!“, segir Reagan. | bg Vináttan Kaffi og hjólabretti Reagan, Ana og Ása fara saman í fjallgöngur og á hjólabretti. Mynd | Rut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.