Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 46

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 46
Óvæntur stuðningur Það eru ekki mörg ár síðan Svava smitaðist af hjólabakteríunni en hún keypti fyrsta alvöru hjólið sitt hjá Kríu árið 2013. Hún kom fjölskyldu og vinum mikið á óvart í cyclothoninu með því að fara miklu lengra en allir bjuggust við. Hún fékk þó ómetan- legan stuðning frá fólkinu í kring- um sig og er mjög þakklát fyrir það. Þá barst Svövu óvæntur stuðning- ur frá hópi kvenna á Blönduósi sem komu sérstaklega saman til að hvetja hana áfram þegar hún hjólaði þar í gegn. „Ég veit ekki hvaða konur þetta eru en ég er þeim mjög þakklát. Ég var alveg við það að hætta á Blönduósi en fékk þarna aukinn kraft.“ Eftir að Svava lauk keppni hefur hún dvalið mikið hjá bestu vinkonu sinni í góðu yfirlæti þar sem hún hefur notið þess að glápa á þætti og borða góðan mat á meðan hún jafnar sig. „Mér finnst ég meira að segja enn finna fyrir miklum stuðn- ingi jafnvel þó ég hafi ekki klárað. Fólk er svo ánægt með að ég hafi reynt,“ segir Svava sem fer væntan- lega fljótlega að æfa sig fyrir næsta cyclothon. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Mig hafði lengi langað að hjóla hringinn í kringum landið en hafði aldrei gefið mér tíma til þess. Ég hafði líka kannski ekki nógu mikla trú á sjálfri mér. En þegar ég sá auglýs- ingu um WOW cyclothon, þar sem var í boði að fara hringinn á þremur dögum, þá hugsaði ég með mér að þetta væri akkúrat fyrir mig,“ segir Svava Dögg Guðmundsdóttir sem á dögunum var fyrsta konan til að taka þátt í einstaklingskeppni í WOW cyclothon. Kláraði 507 kílómetra Hún kláraði reyndar ekki hring- ferðina og lauk keppni við Mývatn eftir 507 kílómetra. Svava má engu að síður vera stolt af afrekinu, enda ekki fyrir hvern sem er að hjóla slíka vegalengd á svo skömmum tíma. „Þegar ég skráði mig til leiks gerði ég mér ekki alveg grein fyrir því hvað það þýddi að fara hringinn á svona skömmum tíma, en ég vildi gera þetta. Ef ég hefði vitað hvað ég væri að fara út í þá hefði ég hætt við. Það var svo ógeðslega mikill sárs- auki sem fylgdi þessu, en ég er mjög þakklát fyrir að hafa gert þetta,“ segir Svava sem er hvergi banginn þrátt fyrir að vera enn að jafna sig eftir keppnina. Hún er strax búin að ákveða að fara aftur á næsta ári. „Mér finnst ég ekki þurfa það, en mig langar og er strax farið að hlakka til. Ég veit alveg að ég get klárað þetta. Það var svo margt sem ég vissi ekki, en ef ég hefði vitað það sem ég veit núna þá hefði ég klárað.“ Viti sínu fjær af sársauka Hún segir brekkurnar á leiðinni hafa verið erfiðustu áskorunina. Þá náði hún hvorki að sofa né borða sem gerði það að verkum að hún þreyttist miklu fyrr en ella. Hún er engu að síður mjög sátt við að hafa náð alla leið á Mývatn í fyrstu tilraun. „Fyrsta markmiðið sem ég setti mér var að byrja, næsta markmið var að komast á Blönduós, það eru nefnilega margir sem hætta þar, og svo vildi ég komast til Akureyrar því allir sem ég þekki þaðan eru svo skemmtilegir. Þegar ég var komin aðeins lengra en til Akur- eyrar var ég næstum orðin viti mínu fjær af sársauka en fylgdarliðið mitt hvatti mig áfram. Ég er mjög þakklát fyrir það og hjólaði síðustu kíló- metrana á Mývatn í kvöl og pínu.“ Svava segir það hafa verið erfitt að þurfa að viðurkenna það fyrir sjálfri sér að hún kæmist ekki lengra. „Ég var brjáluð út í allt og alla, líf- ið, fylgdarliðið og allt. En mér var hjálpað í sturtu á hóteli á Mývatni og ætlaði að sjá til eftir að ég hafði hvílt mig, hvort sársaukinn stafaði bara af þreytunni eða einhverju öðru. En eftir hvíldina fann ég hvað ég var sárkvalin, meðal annars í ökklum og sitjanda. Að taka ákvörðun um að hætta var næstum jafn erfið og að hjóla þetta, en ég náði samt að hætta með bros á vör. Þegar ákvörðunin hafði verið tekin þá var ég sátt.“ Unnið í samstarfi við Artasan Raspberry Ketones er unnið úr kjarna hindberja og að auki er grænt te í blöndunni. Rasperry Ketones getur haft áhrif á horm- ónið adiponectin sem heilbrigt fólk í kjörþyngd hefur í miklu magni í líkamanum. Þetta horm- ón getur aukið insúlín næmi sem þýðir að blóðsykurinn er jafnari og svo brennum við fitu betur. Þegar þessi hormón starfa rétt, við borðum hollan mat og hreyf- um okkur reglulega þá söfnum við ekki umframfitu. Grænt te er fullt af andoxun- arefnum og lífrænum efnasam- böndum sem geta haft mikil áhrif á starfsemi líkamans. Þar á meðal er bætt heilastarfsemi, fitutap (aukin fitubrennsla) og það get- ur dregið úr líkum á fjölmörgum sjúkdómum. Trim-It Trim-It er blanda af bætiefnum sem notuð hefur verið í áratugi en hún hjálpar til við hreinsun líkam- ans og örvar meltinguna. Trim- -It inniheldur m.a. eplaedik sem hjálpar til við hreinsun eiturefna úr líkamanum og eðlileg efnaskipti, lesitín sem auðveldar meltingu á fitu og kelp (brúnþörunga) sem er sérlega steinefnaríkt. Önnur efni eru B6 sem hjálpa meltingunni og hveitikím sem er gott fyrir ónæm- iskerfið, hjarta- og æðakerfið. Kelp, B6 vítamín og lesitín vinna einnig eins og náttúruleg þvag- ræsilyf sem hefur marga kosti því þannig getur maður losnað við um- framvökva án þess að það skolist út mikilvæg steinefni/sölt úr lík- amanum. Sykurlöngunin hvarf Sigrún Emma Björnsdóttir, cross- fit kona og einkaþjálfari, hefur notað Raspberry Ketones frá Natures Aid lengi. „Ég fann mun strax á fyrstu vikunni því sykur- löngunin nánast hvarf. Í kjölfarið minnkaði sykurátið og blóðsyk- urinn varð jafnari sem auðveld- aði mér að borða bæði minna og hollari mat. Ég fann strax mun á orkunni og skapið varð mikið betra því sykur fer virkilega illa í skapið á mér. Mittismálið á mér hefur minnkað og ég er öll mikið léttari á mér,“ segir Sigrún Emma og bætir því við að hún hafi komið töflunum í rútínuna hjá sér og taki alltaf eina fyrir morgunmatinn og eina fyrir hádegismat. Kílóin fjúka – 19 kíló farin „Ég er orkumeiri og einnig finnst mér ég ekki þurfa að borða eins mikið og áður og ég sleppi sætindum al- gjörlega,“ segir Karen Hauksdóttir sem starfar við garðyrkju á höfuð- borgarsvæðinu en hún hefur notað Raspberry Ketones um langa hríð með góðum árangri. 19 kíló hafa fokið eftir að hún fór að nota efnið. „Eftir að Trim-It kom á markað hef ég tek- ið það líka og finnst það gera mér gott,“ bætir hún við. Sölustaðir: Apótek, heilsubúðir og heilsuhillur verslana „Ég veit alveg að ég get klárað þetta“ Svava Dögg Guðmundsdóttir er fyrsta konan sem tekur þátt í einstaklingskeppni WOW cyclothon, en hætti keppni við Mývatn. Hún er strax búin að ákveða að fara aftur á næsta ári þrátt fyrir að hafa upplifað mikinn sársauka í keppninni. Mikill stuðningur Svava hefur fengið mikinn stuðn- ing frá fjölskyldu og vinum og besta vinkona hennar, Kristín Hafsteinsdóttir, hefur verið henni innan handar síðustu daga. Með þeim á myndinni er dóttir Kristínar, Lovísa Sól. Mynd | Hari …heilsa 10 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016 Trim-It er blanda af bætiefnum sem notuð hefur verið í áratugi en hún hjálpar til við hreinsun líkamans og örvar meltinguna. Minni sykurlöngun og léttari lund Artasan kynnir Raspberry Ketones og Trim-It frá Natures Aid sem eru vel þekkt og afar vinsæl þyngdarstjórnunar- efni. Rasberry Ketones dregur verulega úr sykurlöngun, eykur fitubrennslu og eykur orku á meðan Trim-It hjálpar til við hreinsun líkamans og örvar meltinguna þannig að þessi tvö efni virka mjög vel saman. „Tek bæði Raspberry Ketones og Trim-It og finnst það virka vel saman en ég hef nú þegar misst 19 kíló.“ Karen Hauksdóttir „Ég fann mun strax á fyrstu vikunni og mæli 100% með Raspberry Ketones.“ Sigrún Emma Björnsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.