Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 30
30 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 24. júní 2016
„Það kom eiginlega enginn annar
staður til greina en Vík í Mýrdal,
þarna er rafrænt landslag,“ segir
Pan Thorarensen um hátíðina
Extreme Chill sem verður haldin
í sjöunda skipti í ár og nú í fyrsta
skipti í Vík í Mýrdal.
„Það verður minna um partítón-
list og meira um ambient-tónlist,
auk þess sem þetta verða sitjandi
tónleikar. Það má því segja að há-
tíðin muni þetta árið í fyrsta sinn
standa fullkomlega undir nafn-
inu Extreme Chill,“ segir Pan.
„Fólk getur svo farið í göngutúra
um þetta fallega svæði, tekið upp
hljóð úr umhverfinu eða unnið í
sinni tónlist ef það vill.“
Hið 82 ára gamla raftónlistar-
goð Hans Joachim Roedelius spilar
þetta árið í fyrsta sinn, og raunar
í fyrsta sinn á landinu, en hann
hefur lengi verið brautryðjandi
á sviði raftónlistar og unnið með
tónlistarfólki á borð við Brian Eno,
Holger Czukay, Michael Rother,
og fleiri. Hilmar Örn Hilmarsson
allsherjargoði spilar á sömu tón-
leikum, svo það er áhugavert pró-
gramm framundan,“ segir Pan.
Tónleikarnir fram í Víkurkirkju
og félagsheimilinu Leikskálum
þann 2. og 3. júlí.
Mynd frá Vík í Mýrdal, þar sem
Extreme Chill Festival – Undir
Jökli verður haldin í ár.
Extreme chill undir annan jökul
„Tjillaðri“ hátíð en nokkru sinni fyrr
Aron Can stígur á svið á Gimli-sviðinu í Laugardalnum eftir tíu mínútur. Á sviðinu er norski tónlistar-maðurinn Bernhoft
en í áhorfendaskaranum eru fjöl-
margir slánar klæddir bomber-
-jökkum og stelpur með derhúfur
sem virðast ekki hingað komin til
að hlusta á norskt rokk heldur að
bíða eftir einhverju allt öðru.
„Það er svolítið skrýtið að við
séum látin spila á eftir klassísku
rokki,“ segir Arnar Leó, dj-inn sem
spilar með Aroni.
Það var verið að flýta tónleikum
Arons um 10 mínútur, dýrmætur
tími þegar setja á upp sviðið fyrir
tónleika. Stressið hlýtur að vera
að færast yfir hópinn, þó þeir láti á
engu bera.
Aron Can er líklega sá lista-
maður sem spilaði hvað oftast á
Secret Solstice-hátíðinni um síð-
ustu helgi, en auk eigin tónleika
tók Aron óvænt lag sitt „Enginn
mórall“ á stærsta sviði hátíðarinn-
ar á tónleikum Emmsjé Gauta við
frábærar undirtektir. En hvernig
gekk að spila óvænt á tónleikum
annars rappara? „Þetta gekk fokk-
ing vel sko,“ segir Aron glaðlega.
Hann er þó spenntari fyrir tón-
leikunum sem nú eru að hefjast:
„Fleiri sem eru hér núna sem
komu fyrir mig.“
Frá því lagið Þekkir Stráginn
kom út með Aroni Can í febrúar
hefur stjarna hans verið á hraðri
uppleið. Aron segir þessa miklu
athygli á stuttum tíma magnaða
en hún komi honum þó ekki beint
á óvart:
„Ekkert egó sko, en við viss-
um að þetta yrði stórt þegar við
gæfum eitthvað út. Við höfum
allir verið að gera tónlist lengi, ég
þurfti bara að finna réttu mennina
að vinna með mér og þá vissi ég að
þetta myndi smella saman.“
Tónlist Arons Can byrjar að
hljóma á sviðinu og í gegnum
tónana heyrast orðin „No judging
eyes“, einskonar einkennissetning
hópsins sem umkringir Aron og
eitt þeirra smáatriða sem gera tón-
list strákanna svo vinsæla. Aron
tekur við hljóðnema af einum
tæknimanninum, stígur á svið og
skarinn tryllist.
Aron Can á Secret Solstice
Vissum alltaf að
þetta yrði stórt
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is
Skarinn tryllist þegar Aron byrjar að
tala í hljóðnemann frá baksviðinu.
Arnar Leó, Garibaldi og Aron Can á bak við
Gimli-sviðið, tilbúnir að trylla áhorfendur.
Myndir |Rut
Breyting Airbnb-laganna
á mannamáli
1 Það má leigja út fasteignir í allt að níutíu daga á ári án
rekstrarleyfis frá stjórnvaldi.
2 Tekjur af því að leigja út rými mega ekki fara yfir eina millj-
ón króna.
3 Til að leigja út íbúðina alla níutíu dagana má kostnaður
fyrir nóttina því ekki fara yfir
11.111 krónur.
4 Hver sem býður upp á gistingu þarf að láta sýslu-
mann vita.
5 Á hverju nýju ári þarf að skrá eignina aftur og það kostar
8.000 krónur.
6 Þeir sem reka heimagistingu án þess að
skrá það eða gera ann-
að sem fer gegn lögun-
um þurfa að greiða sekt,
minnst 10.000 krónur –
mest eina milljón króna.
7 Reglurnar taka gildi í janúar 2017.
Með vaxandi ferðamannastraumi
leigja æ fleiri Íslendingar út íbúð-
ir sínar. Breyting á Airbnb-lögum
svokölluðu hefur verið gerð vegna
aukinnar skráningar íbúða á síð-
um eins og þeim sem er kennd við
lögin. Breytingarnar eru
Fleiri myndir á
frettatiminn.is