Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 54
Unnið í samstarfi við Kjósarhrepp
Kátt í Kjós er dagur þar sem íbúar og fyrirtæki í Kjósinni taka höndum saman og bjóða öllum
sem vettlingi geta valdið í heim-
sókn til að fá að sjá og upp-
lifa allt það svæðið hefur upp á
bjóða. Kjósin er austan
og sunnan Hvalfjarð-
ar og þar fer saman
fjölbreytt mannlíf
og einstök sveita-
sæla. Þar hægt
að kaupa vörur úr
sveitinni á útimark-
aði, veiða í Meðal-
fellsvatni, setjast á
kaffihús, fara í ýmsa
skemmtilega leiki, hitta
dýr og heimsækja býli
og handverkshús, og
að sjálfsögðu njóta
náttúrufegurðar og
sveitasælu.
„Í ár verður hinn
vinsæli sveitamark-
aður utandyra, við
Félagsgarð þar sem
verður lífleg boðsala á
vörum úr sveitinni ásamt
vörum frá handverksfólki. Inn í
Félagsgarði verður aftur á móti
kaffihúsastemning að hætti Kven-
félagsins og þar geta gestir setið
Undirbúningsnefndin Frá
vinstri, Aldís Hafsteinsdóttir
bæjarstjóri, Auður Otte-
sen sýningarstjóri og Ari
Eggertsson umhverfisstjóri
Hveragerðis.
í rólegheitum, notið veitinga og
spjallað,“ segir Guðný G. Ívars-
dóttir, sveitarstjóri Kjósarhrepps.
Megináhersla er lögð á sveitina
á þessum skemmtilega degi og á
vellinum við Félagsgarð verða hin
ýmsu félög með uppákomur sem
tengjast bæði mönnum og dýr-
um. Hin síðustu ár hefur keppni
í skreytingum á heyrúllum verið
afar vinsæl og skemmtileg lista-
verk orðið til.
„Fjölmargir áhugaverðir staðir
verða opnir og bjóða gesti vel-
komna,“ segir Guðný. Þar á meðal
er Sogn sem selur nautakjöt milli-
liðalaust beint frá bónda, sveita-
kaffihúsið Kaffi Kjós þar sem fal-
legt útsýni er yfir Meðalfellsvatn
og Gallerí NaNa sem selur glæsi-
legar handgerðar leðurtöskur
skreyttar með fiskiroði og skinni.
Þar að auki er fólki boðið að heim-
sækja fallega Dýragrafreitinn
að Hurðarbaki sem er sérstakur
grafreitur fyrir húsdýr. Jafnframt
verður Björn Sigurbjörnsson með
yfirlitssýningu á verkum sínum í
salnum Eyrarkoti, bæði teiknuð-
um og máluðum myndum. „Að
loknum góðum degi þar sem
kátt verður í Kjós verður haldinn
dansleikur í Félagsgarði.“
Allar upplýsingar um viðburði
Kátt í Kjós má finna á vefsíðunni
www.kjos.is þegar nær dregur.
Unnið í samstarfi við
Hveragerðisbæ
Það má með sanni segja að sýningin Blóm í bæ í Hveragerði færi lit í líf þeirra gesta sem mæta á
svæðið og er dagskráin með þeim
hætti að allir geta fundið sér eitt-
hvað til að una við. Sýningar af
mörgu tagi, skemmtanir fyrir börn
og fullorðna, markaður og minn-
ingar, verður meðal þess sem
verður í boði að þessu
sinni. Jafnframt munu
forsetahjónin mæta á
sýninguna og veita
verðlaun.
Sýningin Blóm í
bæ er nú haldin í
8. árið í röð og að
þessu sinni fagna
bæjarbúar 70 ára
afmæli bæjarins og
þess vegna verður sýn-
ingin í ár með veglegra móti. Af
því tilefni mun nýr hver verða
vígður í Hveragarðinum og fær
hann að gjósa frá klukkan 14-17
á laugardeginum. Þá er sýning
sem ber nafnið „Svona er í pott-
inn búið“ og verður þar farið yfir
sögu pottablóma og afskorinna
blóma á Íslandi frá aldamótun-
um 1900 fram til dagsins í dag.
Settar verða upp fimm stássstof-
ur í íþróttahúsi bæjarins til þess
að líkja sem mest eftir heimilum
þessa tíma.
„Ég fer á milli heimila og fæ
lánuð húsgögn og muni í anda
ýmissa tímabila til þess að gera
sýninguna sem líflegasta. Mik-
il samstaða er á milli bæjarbúa
þegar kemur að því að gera sýn-
inguna sem glæsilegasta og allir
eru af vilja gerðir að leggja hönd
á plóg,“ segir Auður Ottesen,
stjórnandi sýningarinnar.
Ásamt því að farið verður yfir
sögu blómamenningar, verða
sögulegar blómaskreytingar
endurgerðar og má til gamans
geta að blómvöndur Vigdísar
Finnbogadóttur, sem hún bar
þegar hún sigraði í forsetakosn-
ingunum árið 1980, verður
einn þessarra endurgerðu
vanda.
Gestum gefst
kostur á því að taka
þátt í svokallaðri
blómatombólu, þar
sem allur ágóð-
inn mun renna til
tækjakaupa potta-
blómasafns Garð-
yrkjuskólans.
Allt að 40 blómaskreyt-
ar og hönnuðir mæta á sýn-
inguna þetta árið og af þeim eru
30 af erlendu bergi brotnir. Þau
koma hingað til þess að taka þátt
í svokölluðu LandArt verkefni og
munu þáttakendur taka þátt í að
skapa umhverfislistaverk í lysti-
garði meðfram Varmá. Listaverkin
hafa það sérkenni að þau eyðast
upp í náttúrunni að sýningu lok-
inni.
Dagskrá verður fyrir börnin í
lystigarði, ásamt markaði sem
hefur að geyma handverk, ým-
islegt grænmeti, blóm og aðra
garðyrkju. Fyrirtæki í græna geir-
anum verða einnig með kynningu
á vörum sínum og þjónustu.
„Bærinn hefur sjaldan verið
…sumarhátíðir 2 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016
Þrjátíu
útlenskir
blómaskreyta
r
og hönnuðir
mæta á
hátíðina í ár
Blóm í bæ Bærinn skartar blómum
í heimsins litadýrð
Garðyrkju- og blómasýningin Blóm í bæ fer fram nú um helgina, 24.–26. júní, í hinum blómlega bæ Hveragerði, steinsnar
frá höfuðborginni. Tilvalið er að koma við og taka þátt í þeirri glæsilegu dagskrá sem heimamenn hafa upp á að bjóða.
eins blómlegur og koma fjöl-
margir blómaskreytar að því
verkefni að setja bæinn í litríkan
búning í tilefni afmælis og sýn-
ingar. Ekki er við öðru að búast en
að afþreying þessa daga eigi eftir
að gleðja unga sem aldna og því
um að gera að bregða sér í Hvera-
gerði,“ segir Auður og bætir við
að ekki megi gleyma sýningu með
ljósmyndum af fermingarbörn-
um frá árum áður, allt frá miðri
síðustu öld, þar sem stúlkur voru
með blóm í hárinu og drengir með
blóm í jakkaboðungum.
Blómlegt Hveragerði er líflegur og
litríkur þessa dagana en hátíðin
Blóm í bæ fer þar fram um helgina.
Blómaskreytar í Hveragerði út-
bjuggu þessa glæsilega regnboga-
brú fyrir hátíðina í ár.
Kátt í Kjós Sveitamarkaður og gleði
á góðum degi
Laugardaginn 16. júlí verður Kjósin opnuð fyrir gestum og gangandi undir kjörorðinu „Kátt í Kjós“ og er þetta í tíunda
sinn sem efnt er til opins dags í sveitarfélaginu. Kátt í Kjós hefur tekist með miklum ágætum og fleiri þúsund manns
hafa sótt Kjósina heim á þessum árum.
Fjölmargir
áhugaverðir
staðir verða o
pnir
og bjóða gesti
velkomna
Við Félags
garð verður
lífleg boðsala
á vörum úr
sveitinni
Á Kátt í Kjós er vel tekið á móti öllum og margt skemmtilegt um að vera fyrir alla fjöl-
skylduna þann 16. júlí næstkomandi.
Rúntað um á heyrúlluvagni í Kjósinni. Vinningsrúllan frá árinu 2012.
Máluð heyrúlla verður
að bollaköku á árlegri
heyrúllu-skreytingar-
keppni á Kátt í Kjós.