Fréttatíminn

Tölublað

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 38

Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 38
Oscar Pistourus fór í viðtal, þrátt fyrir að vera talinn of veikburða til að mæta fyrir dómi þegar dómur hans verður kveðinn upp og sagði þar frá upp- lifun sinni þegar hann varð kærust- unni sinni, módel- inu Reeva Steenkap (29), að bana fyrir þremur árum. Sál- fræðingur hafði metið sem svo að hann væri of kvíðinn og þunglyndur til að Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is Ég ætla loksins að fara í kjól fyrir Sunnu,“ segir Erna Katrín Árnadóttir sem ætlar að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkur- maraþoninu til styrktar AHC sam- tökunum. Ef hún nær að safna 200 þúsund krónum mun hún hlaupa í prinsessukjól sem hin tíu ára Sunna Valdís Sigurðardóttir velur fyrir hana. En Sunna er eini Íslendingur- inn með AHC, sem er flókinn taugasjúkdómur sem veldur meðal annars sársaukafullum krampa- og lömunarköstum. Vildi tala við stelpuna með hárið Erna vinnur með föður Sunnu, en fallegur vinskapur myndaðist á milli þeirra tveggja fyrr á þessu ári. „Ég hitti hana fyrst fyrir þremur árum og vissi að hún talaði oft við pabba sinn í vinnunni. Um þau jól sýndi hann henni þegar við vorum að skreyta jólatréð í vinnunni og henni fannst hárið á mér svo flott. Í janúar vildi hún svo fá að hringja í stelpuna með hárið. Út frá því byrjuðum við að tala saman,“ segir Erna um það hvernig hún og Sunna kynntust. „Við tölum saman nánast daglega í vídeósamtölum. Hún er svo mikið heima hjá sér og finnst gaman að sjá hvað aðrir eru að gera, sér- staklega konur eða stelpur. Henni finnst til dæmis alveg frábært að fylgjast með mér farða mig, enda er hún er algjör pæja. Við ræðum allt milli himins og jarðar en flest öll samtölin okkar byrja á því að hún sýnir mér í hverju hún er. Hún er alltaf í kjól og með hálsmen. En ég er aldrei í kjól og hún er yfirleitt mjög vonsvikin yfir því og segir gjarnan „díses kræst“. Svo sýndi ég henni einu sinni fataskápinn minn og henni fannst magnað að ég ætti meira af buxum en kjólum, þrátt fyrir að vera stelpa.“ Ætlar að ná takmarkinu Ernu langar að vekja athygli á AHC samtökunum og safna eins mikl- um peningum og hún getur til að styrkja samtökin og rannsóknir á sjúkdómnum, en þær nýtast einnig við rannsóknir á öðrum tauga- sjúkdómum líkt og Parkison’s og CP. „Þar sem Sunna elskar kjóla, þá datt mér þetta í hug, að taka í fyrsta skipti þátt í Reykjavíkur- maraþoninu og hlaupa í kjól. Hún er búin að sýna mér nokkra kjóla sem koma til greina og þeir eru al- veg rosalegir,“ segir Erna og skellir upp úr. „Ég vona innilega að það verði gott veður svo ég taki ekki allan mótvindinn. Ég tala nú ekki um ef rignir, þá verð ég örugglega fimmtíu kílóum þyngri.“ Aðspurð segist Erna ekki vera vön að hlaupa, svo það eitt að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu er mikil áskorun fyrir hana. „Ég bý á Seltjarnarnesinu, sé fólk alltaf hlaupa og hugsa með mér hvað þetta sé mikill dugnaður. Og nú ætla ég að taka þátt og gera þetta enn erfiðara fyrir mig með því að vera í kjól. Ég veit samt ekki alveg hvernig ég á að undirbúa mig fyrir þetta. Hvort ég eigi kannski að æfa mig í snjógalla. Ég ætla allavega að ná 200 þúsund krónum því ég ætla í fara í kjól fyrir Sunnu. Hún er orðin svo spennt fyrir þessu. Við erum búnar að ræða þetta í vídeó- samtölunum okkar síðustu daga,“ segir Erna sem vill að lokum hvetja alla til að horfa á heimildamyndina Human Timebombs sem fjallar um líf Sunnu og sjúkdóminn, en myndin var sýnd á RÚV síðastliðið sunnudagskvöld. Á spítala eftir flugferð Leikkonan Selma Blair var flutt á spítala eftir að hún missti gjörsamlega stjórn á sér í flugi í vikunni. Hún var að koma heim, ásamt syni sínum, eftir að hafa eytt helginni með barnsföður sínum og syni í tilefni af feðradeg- inum. Talið er að Selma hafi blandað saman lyfjum og áfengi í flugvélinni og þess vegna orðið hálfrugluð í fluginu. Hún var flutt frá borði á börum. Brostið hjarta vegna Aniston Fyrrum eiginkona Justin Theroux, Heidi, hefur ekki fundið ástina aftur eftir skilnaðinn við hann. Justin er í dag með Jennifer Aniston og segir móðir Heidi að Jennifer hafi eyðilagt hjónaband þeirra, en þau voru gift í 14 ár. Hún segir hjarta dóttur sinnar gjörsamlega brostið og Justin hafi lengi logið til um eðli sambands síns og Jennifer. Vinna í hjónabandinu á Hawaii Beyonce og Jay Z hafa átt saman yndis- legt frí í Hawaii ásamt dóttur sinni, Blue Ivy. Þau hafa verið að vinna í hjónabandi sínu undanfarin misseri og hafa meira að segja ákveðið að flytja frá Los Angeles. Þau eru sammála um það að Los Angeles hafi neikvæð áhrif á hjónaband þeirra og þau hafa fest kaup á húsi í New Orleans. Opnar sig um hjónabandið Kevin Federline hefur opnað sig varðandi hjóna- band sitt og Britney Spears. Hann á tvö börn með söngkonunni og viðurkennir að sambandið við Britney hafi verið allt öðruvísi en hann átti von á í byrjun. Kevin segir að það hafi verið mjög erfitt að geta ekki hreyft sig án þess að 20 manns væru á hælunum á þeim og þetta hafi allt saman verið yfir- þyrmandi. Tinder og ástin í ræktinni Hillary Duff fann ástina í ræktinni. Hún er farin að hitta einkaþjálfarann sinn, Jason Walsh, en þau hafa eytt mikl- um tíma saman að undanförnu, bæði í ræktinni og úti að borða. Hillary skildi á pappírum í febrúar 2015 og skráði sig strax eftir það inn á Tinder. Hún á 4 ára gamlan son sem hún vill halda utan við allt sitt ástarlíf og hefur gefið það út að hún muni ekki kynna hann fyrir nein- um fyrr en hún sé handviss um að hafa fundið sanna ást. Hleypur 10 kílómetra í prinsessukjól Erna Katrín tekur þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í fyrsta skipti og styrkir AHC samtökin. Hin tíu ára gamla Sunna Valdís fær að velja kjólinn. Fer stundum í kjól Erna Katrín á ekki marga kjóla en hún reynir stundum að gleðja Sunnu með því að skella sér í kjól. Mynd | Hari Elskar kjóla Sunna elskar kjóla en áhugi hennar á kjólum varð til þess að Ernu datt í hug að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og hlaupa í kjól. Hér eru þær saman á góðri stund. „Ég finn lykt af blóðinu“ Oscar Pistorius sagði frá því í nýlegu viðtali hvernig hann myrti kærustu sína fyrir þremur árum. mæta fyrir dóminn, en hann lét það ekki stöðva sig og tjáði sig ítar- lega um hvernig hans upplifun var af morðinu. Hann grét og sagði frá örlaga- ríku nóttinni 14. febrúar árið 2013. Hann talaði um að hann hefði orðið henni að bana og að hann þurfi að lifa með því, en hann skil- ur ekki hvernig atburðurinn gat átt sér stað. Hann elskar hana enn og saknar hennar, en hann heldur því einnig fram að honum líði eins og öllum þeim sem sakna hennar. Oscar bíður nú dómsins. …fólk 2 | amk… FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 2016 Hann heldur þ ví einnig fram að honum líði ein s og öllum þeim se m sakna hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.