Fréttatíminn - 24.06.2016, Blaðsíða 36
Gott að kjósa
Forsetakosningar eru um helgina og
um að gera að nýta kosn-
ingarétt sinn. Ekki er
síðra að halda daginn
dálítið hátíðlegan, vera
snyrtilegur og klæða sig
upp. Fá sér kaffibolla
með ömmu og halda
síðan á kjörstað.
Gott að velta sér í dögginni
Aðfaranótt laugardags er Jónsmessunótt en
þá öðlast dögg sérstakan
lækningamátt. Samkvæmt
gamalli trú er mjög heil-
næmt sé að velta sér nak-
inn upp úr dögginni þessa
nótt. Geri fólk það batna þeim
allir sjúkdómar og þeim verður ekki
misdægurt næsta árið á eftir.
Gott að borða brauðtertu
Margir útskrifast úr háskólanum um
helgina og þá er gott
að gera vel við sig og
borða nóg af brauðtertu.
Fátt er betra en íslenska
brauðtertan sem oft
býðst í úskriftarveislum
landans: Aspas, skinka og
majónes. Nammi namm.
GOTT
UM
HELGINA
ÓTAKMARKAÐUR
LJÓSLEIÐARI
ÓTAKMARKAÐUR
FARSÍMI + 4GB
WWW.HRINGIDAN.IS - 525 2400
4.5X9MM.indd 1 2.6.2016 13:04:43
Fólkið mælir með ...
Jón Helgi
Hólmgeirsson
Útiveran: Að hjóla í
stórbrotinni náttúru-
fegurð Nauthólsvíkur-
innar í morgunsárið með ískalda
hafgoluna og yndislegt íslenskt veð-
urfar beint í smettið.
Ísinn: Apaís frá Kjörís. Einfaldur og
bragðgóður.
Flíkin: Peysan Bakkakot frá Farmers
Market. Íslensks sumars er best
notið í góðri peysu. Sérstaklega ef
hún er þokkalega fín.
Uppákoman: KRÁS götumatarmark-
aður sem mun opna í Fógetagarði
í Júlí. Allskonar matur, tónlist og
næsheit. Svo er EM alveg mjög næs.
Hallveig
Rúnarsdóttir
Útiveran: Kattar-
göngutúrinn sem við
förum á hverju kvöldi
af því að kötturinn okkar
dregur okkur af stað. Nær svo yfir-
leitt að draga tvo til þrjá nágranna-
ketti með svo við erum þekkt sem
skrýtna kattafólkið með hjörðina á
eftir okkur í hverfinu.
Ísinn: Melónuísinn í San Crispino í
Róm. Melónuísinn í Valdísi er sára-
bót þegar maður er ekki í Róm.
Flíkin: Dökkgræna Volcano sláin mín.
Fékk hana á útsölu fyrir nokkrum
árum og hef aldrei notað flík jafn
mikið. Alltaf eins og ný.
Uppákoman: Íslenskur EM fót-
boltaleikur á torginu fyrir framan
Hótel Tórshavn í Færeyjum. Þvílík
stemning!
Una Hildardóttir
Útiveran: Ég mæli með
að ganga upp að Háa-
fossi í Þjórsárdal.
Gangan að fossinum
og til baka tekur um 5
tíma. Einn af uppáhalds
stöðum mínum á Íslandi!
Ísinn: Valdís, ekki spurning. Er meira
fyrir kúluís en bragðaref. Á sólríkum
dögum fæ ég mér engiferís frá Val-
dís í hádegismat.
Flíkin: Svarti jakkinn minn frá Alex-
ander Wang. Ég fer varla úr honum
á sumrin, passar við allt.
Uppákoman: Fyrir utan EM er upp-
ákoma vikunnar klárlega forseta-
kosningarnar og svo auðvitað kosn-
ingavakan, vonast eftir glæsilegri
endurkomu frá Kosninga-Tómasi.