Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 15
um, sem hann hefur ofnæmi fyr-
ir. Með þessu er ætlazt til, að í
blóði sjúklingsins myndist mót-
efni (IgG), sem síðan bindi of-
næmisvaldinn (allergenið) og
komi þannig í veg fyrir, að hann
nái að berast til mast-frumanna
í berkjunum og bindist þar IgE.
Þessi meðferð hefur verið notuð
allt síðan 1911. Hefur hún þó
yfirleitt ekki gefizt vel, einkum
ef þurft hefur að sprauta sjúkl-
inginn með mörgum ofnæmis-
völdum. Bezt hefur hún reynzt
þar, sem aðeins er um að ræða
einn eða mjög fáa ofnæmisvalda,
sem ekki er hægt að forðast, t.
d. grasfrjó. Þessi meðferð er
dýr og óþægileg og getur verið
hættuleg, þar sem sjúklingar
geta veikzt hastarlega, þegar
verið er að sprauta þá í upphafí
meðferðar.
Lyfjcimeöferð.
Asthmalyfjum má skipta í 4
flokka eftir því, hvernig þau
verka (sjá 1. töflu).
Lyf, sem örva Beta-rece'ptora í
berkjuslímhúð.
Isoprenaline er fyrst og
fremst notað til innöndunar, og
það er til í litlum handhægum
staukum til þess (Isoprenaline-
Mistometer (R)). Einnig fæst
það í upplausn til notkunar í
öndunarvélum (“intermittent-
positive-pressure-breathing” (I-
PPB)). Eru þá gefnir 30 dropar
af 0,25% upplausn, þynnt með 4
rnl af saltvatni fyrir hverja með-
ferð. Isoprenaline verkar mjög
fljótt, en áhrifin standa stutt,
TAFLA. Flokkun asthmalyfja.
I.
Lyf, sem örva /3-receptora í
herkjuslímhúð:
Isoprenaline (Isuprel (R))
Salbutamol (Ventolin (R))
Adrenalin
Terbutalin
Ephedrin
oft innan við klukkustund. Auk
þess að slaka á berkjuvöðvum
hefur það einnig áhrif á hjartað
og eykur tíðni hjartsláttar og
afköst hjartans. Það getur einn-
ig komið af stað aukaslögum.
Þetta getur orðið hættulegt,
einkum ef mikið er gefið af lyf-
inu. Það er því óráðlegt að gefa
isoprenaline sé púls mikið yfir
100/mín. Isoprenaline getur
einnig valdið hjartakveisu hjá
sjúklingum með kransæða-
þrengsli og því rétt að nota það
varlega við slíka sjúklinga.
Vegna þess, hve fljótt og vel
isoprenalineverkar,hættir sj úkl-
ingum til þess að misnota lyfið.
Auk aukaverkana frá hjarta er
þá hætt við, að lyfið hætti að
verka nema örstutta stund. Það
er því brýnt fyrir asthmasjúkl-
ingum að nota isoprenaline ekki
oftar en u. þ. b. 6 sinnum á dag.
Salbutamol (Ventolin(R)) er
náskylt isoprenalini og hefur
svipaða verkun, nema áhrif þess
á hjartað eru mun minni. Ýmsir
taka það fram yfir isoprenaline.
Salbutamol er aðallega notað til
innöndunar úr úðara svipuðum
og isoprenalineúðaranum, en það
er ekki fáanlegt hér á landi í
upplausn til notkunar í öndunar-
vél. Salbutamol er einnig til í
töflum, en þá þarf stærri
skammta af því. Eru því auka-
verkanir, fyrst og fremst titr-
ingur, algengari af töflunum. Þó
árangur af töflunum sé allgóður
í byrjun, gerast þær gjarnan
gagnslitlar, þegar fram í sækir,
og því er ekki rétt að nota þær
að staðaldri.
Adrendlin er til í staukum til
innöndunar (Medihaler-epi (R))
líkt og isoprenaline og salbuta-
mol. Aukaverkanir eru svipaðar
og af isoprenalini, en auk þeirra
einnig hækkun á blóðþrýstingi
og taugatitringur. Það eru því
fáir sjúklingar, sem taka það
fram yfir isoprenaline eða sal-
butamol. Adrenalini má einnig
spýta undir húð, 0,3—0,5 ml af
1:1000 upplausn. Ekki er þó ráð-
legt að gefa það sjúklingi með
verulega hækkaðan blóðþrýsting,
hraðan púls, ofstarfsemi á
skjaldkirtli eða sykursýki.
Áhrifin koma fljótt í ljós, en
standa stutt, oft horfin eftir 1
klukkustund. Til er olíuupplausn
af adrenalini (Sus-Phrine (R))
með lengri verkun en vatnsupp-
lausnin, en hefur ekki komizt á
lyfjaskrár hér á landi.
Terbutalin (Bricanyl (R))
er náskylt salbutamoli og er til
bæði í töfluformi og til innspýt-
ingar undir húð. Aukaverkanir,
sé það gefið undir húð, geta
líkzt þeim, er koma við adrena-
lingjöf, þó að venjulega séu þær
minni.
Ephedrin er einungis gefið
um munn. Það er til í 20 mg
töflum, en einnig er mjög al-
gengt að blanda því í alls kyns
mixtúrur. Þetta lyf verkar ágæt-
lega í fyrstu, en verður gagns-
lítið, þegar til lengdar lætur.
Það er því tæpast rétt að gefa
það að staðaldri, heldur láta
sjúklinginn grípa til þess, þegar
hann er slæmur. Venjulegur
skammtur er 20 mgX3-4. Sum-
ir verða taugaspenntir og fá
hjartslátt af ephedrini, og er þá
stundum gefið phenemal, 15 mg
II.
Lyf, sem koma í veg fyrir
niðurbrot cyklisks 3'—5'
AMP (hindra hvatana phos-
phodiesterase):
Theophyllamine
Proxiphylline (Neofyllin
(R))
Choline theofyllinate
(Choledyl (R))
III.
Lyf, sem kemur í veg fyrir,
að histamin SRS-A o. fl.
efni losni úr mast-frumum:
Disodium cromoglycate
(Intal (R))
IV.
Lyf, gagnleg við asthma, en
óvíst hvernig verka:
Barksterar
Fúkkalyf
TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS 13