Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 16

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1973, Blaðsíða 16
með hverri ephedrintöflu, til þess að vega upp á móti þessum aukaverkunum. Lyf, sem komu í veg fyrir niöur- brot cyklisks AMP. Theophyllamine má gefa um munn, í endaþarm og í æð. Theo- phyllamine-töflur (100 mg) eru oft gefnar sjúklingum að stað- aldri. Því miður berst þetta efni ógreiðlega frá þörmum út í blóðrásina, og er talið, að þyrfti að gefa að meðaltali um 12 töflur á dag til þess að fá verulegan árangur af því. Gefið í slíkum skömmtum þolist það illa í maga, getur valdið brjóst- sviða, verkjum og uppköstum. Venjulega eru því gefnar 4 töfl- ur á dag, og telja margir lyfið gagnslaust í slíkum skömmtum. Betra er að gefa theophyllamine í stikkpillum (500 mg). Þannig berst það betur inn í blóðið, en því miður ertir það endaþarm- inn talsvert. Er því nauðsynlegt að rjóða stikkpillurnar vel með vaselíni, og minnkar það erting- una. Sjúklingum með nætur- asthma er gott að gefa stikk- pillur á kvöldin, en fæstir þola það oftar en einu sinni á sólar- hring að staðaldri vegna erting- ar í endaþarmi. Þó má grípa til þess oftar þá daga, sem sjúkl- ingur er slæmur. Gefið í æð er theophyllaminið eitt bezta asthmalyfið. Til þess er notað injectabile theophyllamini mite (2%) og gefnir 10 ml (200 mg) á 3—5 mínútum, og verkar það nær samstundis. Ekki má gefa þetta lyf liratt, því að þá getur það valdið banvænni hjarta- óreglu. Sé rnikið gefið af theo- phyllamini, veldur það ógleði og uppköstum. Proxiphylline (Neofyllin (R)) og cholin theophyllinut (Choledyl (R)) eru náskyld t.heophyllamini og hvort tveggja or gefið um munn. Þau berast greiðar frá þörmunum í blóðrás en theophyllamine og því tekin fram yfir það. Gefin eru 200— 400 mg í einu þrisvar til f j órum sinnum á dag. Lyf, sem kemur í veg fyrir los- un histamins og annarra efna úr mast-frumum. Disodium cromoglycate (Intal (R)). Miklar vonir voru bundn- ar við þetta lyf, þegar það fyrst kom fram, en það hefur því mið- ur ekki valdið neinni byltingu á asthmameðferð. Þetta lyf er tor- leyst og gagnslaust gefið um munn. Það er einungis gefið sem duft til innöndunar úr sérstök- um úðara (“Spin-haler”). Því hefur verið haldið fram, að um 30 % asthmasj úklinga f inni verulegan bata af þessu lyfi og fremur asthmasjúklingar með ákveðna sögu um ofnæmi og þeir, sem fá einkum asthma við áreynslu. Kostur við lyfið er, að aukaverkanir virðast fáar og hefur engum alvarlegum verið lýst enn sem komið er. Talsverð- ar vonir eru enn bundnar við, að fleiri lyf finnist í þessum flokki, sem reynist áhrifaríkari og hægt sé að taka um munn. Lyf gagnleg gegn asthma, en óvíst um verkanir. Barksterar hafa komið að gagni við meðferð á asthma. Ekki er vitað nákvæmlega, hvernig þeir verka, en þeir slá á asthma, þótt hann blossi gjarnan upp aftur, þegar hætt er við sterameðferð. Langtíma barksterameðferð fylgja oft al- varlegar aukaverkanir. Má þar nefna minnkað mótstöðuafl gegn ýmsum bólgum (t. d. berklum), aukna fitusöfnun á búk, sér- kennilegt, kringluleitt andlit (“tunglfés”), bólur á húð, auk- inn hárvöxt hjá konum, aukna hættu á magasári og sykursýki, úrkölkun beina, vöðvarýrnun, aukinn vökva í líkamanum, og er þó ekki allt talið. Er því aug- ljóst, að sjúklingur verður að hafa slæman asthma, svo að borgi sig að taka alla þessa áhættu með langtíma sterameð- ferð. Hins vegar fylgja sjaldan aukaverkanir, þó að gripið sé til þeirra í 7—10 daga, þegar önn- ur meðferð bregzt. Prednison og Prednisolon eru þeir barksterar, sem oftast eru notaðir. Þegar gefinn er stuttur kúr, er gjarnan byrjað með 30 —40 mg á dag og síðan smá- minnkað niður í ekki neitt á 7— 10 dögum. Aðrirtelja jafngóðan árangur af því að gefa 20 mg á dag í viku og hætta síðan snögg- lega. Langtíma sterameðferð er réttlætanleg, ef 1) sjúklingurinn þarf sterakúr á 3—4 vikna fresti, 2) ef hann er að mestu óvinnufær vegna asthma og 3) ef hann hefur nokkrum sinnum fengið langvinn og lífshættuleg asthmaköst (status asthmatic- us). Langvinn barksterameðferð lamar að miklu leyti starfsemi barkar nýrnahettnanna.Talið er, að draga megi úr þessari hömlu á starfsemi kirtlanna með því að gefa stera ekki daglega, heldur t. d. annan hvern dag eða 3 daga í röð í hverri viku. Þetta gengur þó oft illa með asthmasjúklinga, þar sem þeim hættir til að fá köst þá dagana, sem þeir fá ekki stera. Mun hættara er við auka- verkunum, þegar stórir skammt- ar eru gefnir að staðaldri, og er því reynt að takmarka viðhalds- skammtinn af prednisoni eða prednisoloni við 15—20 mg á dag, þegar gefið er annan hvern dag, eða 7,5—10 mg, þegar lyf- in eru gefin daglega. Lífshættu- legt getur reynzt að hætta skyndilega við langtíma stera- meðferð. Það er því brýnt fyrir slíkum sjúklingum að gleyma aldrei að taka lyfið, og víða er þeim fengið einhvers konar merki, t. d. hálsmen, sem greinir frá því, að þeir taka slíkt lyf að staðaldri, finnist þeir meðvit- undarlausir. Corticotrophin (ACTH). Þetta er hormón, sem heiladingullinn framleiðir og hvetur nýrnahett- urnar til þess að framleiða bark- stera, og er því stundum notað í stað þeirra. Það hefur þó fáa 14 TÍMARIT HJÚKRUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.